Ragnheiður Jónsdóttir | október. 18. 2012 | 11:00

Tiger og Rory spila á Abu Dhabi HSBC Championship í stað Humana Challenge í ársbyrjun 2013

Olíuaurar Mið-Austurlanda heilla!

A.m.k. hafa tveir af toppkylfingum heims, Tiger Woods og Rory McIlroy tilkynnt að þeir muni spila í Abu Dhabi HSBC Championship 2013 á Evrópumótaröðinni. Það er í sömu viku og  Humana Challenge í samstarfi við the Clinton Foundation í La Quinta fer fram.

Ástæður þess að Tiger tók ekki þátt var í upphafi ferilsins var einhver stirðleiki við mótshaldara bandaríska mótsins, sem þá hét Bob Hope Classic, en síðar þegar úr því leystist hentaði mótið Tiger einfaldlega ekki – því hann vildi ekki spila í 5 daga móti á 4 mismunandi golfvöllum með einhverjum stórstjörnum og áhugamönum – hann var einfaldlega of mikill einvaldur á vellinum þá.

Og svo er golfstjörnum borgað fyrir það eitt að taka þátt á mótum Evrópumótaraðarinnar, sem er ekki gert á PGA Tour en á síðarnefndu mótaröðinni getur hins vegar verðlaunaféð í mótinu sjálfu verið allt að tvöfalt hærra.

Talið er að fleiri af bestu kylfingum heims muni spila í Abu Dhabi, menn á borð við  Luke Donald, Ian Poulter og Justin Rose.

Á Humana Challenge munu hins vegar þeir toppklassa kylfingar taka þátt sem þekktir eru fyrir framlag sitt til góðgerðarmála, menn á borð við Phil Mickelson en líka heimamenn á borð við Tour Championship sigurvegarann Brant Snedeker og liðsmenn bandaríska  Ryder bikarsliðsins á borð við  Dustin Johnson og  Jason Dufner.  Eins og 2012 er viðbúið að Bill Clinton muni beita áhrifum sínum til að laða að nokkur þekkt nöfn í þágu heilbrigðis en stór hluti innkomu í mótinu fer beint til styrktar heilbrigðismálum í Bandaríkjunum.

A.m.k. verða Rory McIrloy og Tiger fjarri góðu gamni…..

Heimild: Desert Sun, í Kaliforníu