Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 22. 2012 | 21:15

Afmæliskylfingur dagsins: Emma Cabrera Bello – 22. nóvember 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Emma Cabrera Bello. Emma er fædd 22. nóvember 1985 og á því 27 ára afmæli. Emma byrjaði að spila golf 5 ára og býr nálægt Maspalomas golfvellinum, sem mörgum Íslendingum er að góðu kunnur. Hún er samt félagi í fínasta golfklúbbnum á Gran Kanarí: Real Club de Golf de Las Palmas, en völlur klúbbsins er byggður ofan í eldfjallagíg.  Meðal áhugamála afmælisbarnsins er lestur góðra bóka, að vera á skíðum hvort heldur svig eða vatns-, henni finnst auk þess gaman að fara í kynnisferðir til að kynna sér nýja staði sem hún ferðast til.

Bróðir Emmu er Rafael, sem er sem stendur í Dubaí og spilar á Evrópumótaröðinni.

Emma er með gráðu í viðskiptafræði og stjórnun frá University of Las Palmas de Gran Canaria. Hún var í mastersnámi, Master of Science (MSc.) í frumkvöðlafræðum frá  september 2011-september 2012 við University of ESADE í Barcelona (en háskólinn þykir meðal  15 bestu á heimsvísu). Hún segir að það hafi verið frábær reynsla, sem bæti golfið hjá sér.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Ralph Guldahl, f. 22. nóvember 1911 – d.  11. júní 1987

….. og …….


Golf 1 óskar öllum  kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is