Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 20. 2013 | 14:00
Afmæliskylfingur dagsins: Anna Sólveig Snorradóttir – 20. maí 2013
Það er Anna Sólveig Snorradóttir, GK, sem er afmæliskylfingur dagsins. Anna Sólveig er fædd 20. maí 1995 og því 18 ára í dag. Hún byrjaði að æfa golf 9 ára, en prufaði fyrst þegar hún var 8 ára. Í dag er Anna Sólveig í afrekshóp GSÍ. Hún tók þátt í Opna írska U-18 ára mótinu í apríl 2012 og stóð sig mjög vel, náði 2. besta árangri íslensku þátttakendanna. Anna Sólveig Snorradóttir, GK. Mynd: Dalli Í fyrra spilaði Anna Sólveig bæði á Unglingamótaröð Arion banka og Eimskipsmótaröðinni. Þar er eftirminnilegt þegar Anna Sólveig landaði 2. sætinu á Íslandsmótinu í höggleik á Hellu á Eimskipsmótaröðinni og eins var hún í úrslitaleiknum um Íslandsmeistaratitilinn í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 20. 2013 | 12:00
GKG: Frændurnir Alfreð Brynjar og Jón Sveinbjörn Jónsson sigruðu í Atlantsolíumótinu
Síðastliðinn laugardag, 18. maí 2013 fór hið árlega Opna Atlantsolíumótið fram. Mikill vindur setti mark sitt á Opna Atlantsolíumótið í ár. Mætingin var engu að síður góð en 70 kylfingar tóku þátt í mótin. Jón Sveinbjörn Jónsson, GKJ sigraði mótið á 36 punktum. Hann er frændi Alfreðs Brynjars Kristinssonar, GKG sem kom inn á besta skori og sigraði höggleikinn með 75 höggum. Alfreð var jafn Kjartani Dór Kjartanssyni, GKG, en var betri á síðustu 6 holunum en Alfreð fékk örn á fjórtándu, sem tryggði honum sigurinn. Úrslitin eru annars sem hér segir: Punktakeppni: 1. sæti – Jón Sveinbjörn Jónsson , GKJ – 36 punktar 2. sæti – Björn Þór Heiðdal, GKG – 34 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 20. 2013 | 10:00
9 mót – 530 spila golf í mótum í dag 2. í Hvítasunnu

Það eru 9 mót sem fara fram í dag. Seinni hlut Íslandsbankamótaraðar unglinga fer fram í Þorlákshöfn (þar sem mótinu var frestað vegna kulda og hvassviðris í gær). 130 börn og unglingar keppa. Tvö eldri kylfinga mót fara fram í dag. Í Leirunni fer fram MP banka LEK mót og taka 68 þátt. Í GKJ er haldið 3. úrtökumót fyrir val á sveitum eldri kylfinga, en ekkert er gefið upp um þátttakandafjölda. Opnunarmót Bakkakots fer fram í Mosfellsdalnum og er það innanfélagsmót þar sem 27 taka þátt. Annað innanfélagsmót er haldið á Hellu, Hvítasunnumótið og er þátttakendur þar 19. Og Afmælismót hefir farið fram hjá GKV og voru þátttakendur 7. Í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 20. 2013 | 09:45
GB: Bjarki sigraði á Vormótinu

Það var Bjarki Pétursson, GB, sem sigraði í Vormóti GB í höggleik þ.e. lék Hamarsvöll á 75 höggum. Í punktakeppninni varð Stefán Fannar Haraldsson, GOS, hlutskarpastur á 41 punkti. Þátttakendur voru 17, þar af luku 12 leik, þar af 1 kona: heimakonan Ásta Sigríður Eyjólfsdóttir í GB. Sjá má úrsltin í heild hér að neðan (í höggleikshlutanum): 1 Bjarki Pétursson GB -2 F 36 39 75 4 75 75 4 2 Haraldur Már Stefánsson GB 2 F 39 40 79 8 79 79 8 3 Pétur Sverrisson GB 10 F 43 39 82 11 82 82 11 4 Ingvi Árnason GB 8 F 41 44 85 14 85 85 14 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 20. 2013 | 08:00
GKV: Kjartan, Anna Huld og Brynjar sigruðu í afmælismóti GKV

Kjartan Kárason formaður GKV bar sigur úr býtum á afmælismótinu sem haldið var 18. maí í brakandi sumarblíðu á Golfvellinum í Vík. Logn og 14 gráðu hiti lék við klúbbmeðlimi sem mættu á mótið. Kjartan sigraði í höggleik á 75 höggum eða 3 yfir pari. Í punktakeppni í kvennaflokki sigraði Anna Huld Óskarsdóttir á 28 punktum og Brynjar Vigfússon vann yfirburðasigur í karlaflokki og fékk hvorki fleiri né færri en 47 punkta. Afmælismótið var haldið í tilefni af 20 ára afmæli GKV og var frestað frá því í fyrra. Nándarverðlaun voru veitt á par 3 brautum og gáfu veitingahús í Vík verðlaun. Veitingahúsin Halldórskaffi, Ströndin og Suður-Vík gáfu öll gjafabréf, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 20. 2013 | 04:00
LPGA: Jennifer Johnson sigraði í 1. sinn á LPGA á Mobile Classic

Tiltölulega óþekktur kylfingur, Jennifer Johnson frá Bandaríkjunum vann sinn fyrsta sigur á LPGA mótaröðinni þ.e. á Mobile Bay LPGA Classic mótinu sem lauk í gær. Ýmsir þekktari kylfingar s.s. Chella Choi, Jessica Korda og Lexi Thompson voru búnar að skiptast á um forystuna í lok hvers keppnisdags mótsins, dagana þar á undan. Jennifer Johnson lék á samtals 21 undir pari, 267 höggum (67 70 65 65). Hún er sem stendur í 78. sæti á Rolex-heimslista kvenna og ekki ólíklegt að hún hækki á listanum eftir sigurinn. Johnson byrjaði að spila golf 9 ára, en í dag eru hún 21 árs (fædd 8. ágúst 1991 og á þ.a.l. sama afmælisdag og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 20. 2013 | 01:30
PGA: Bae með 1.sigurinn á PGA

Það var Sang Moon Bae frá Suður-Kóreu, sem vann fyrsta sigur sinn á PGA Tour þegar hann vann HP Byron Nelson mótið í Irving, Texas í kvöld. Bae var á samtals 13 undir pari, 267 höggum (66 66 66 69). Í 2. sæti varð maðurinn, sem búinn er að leiða allt mótið, Keegan Bradley, 2 höggum á eftir á samtals 11 undir pari, 269 höggum (60 69 68 72) og má segja að hann hafi gefið mótið frá sér á lokahringnum, sem var eini hringur hans yfir 70. Í 3. sæti var risamótsmeistarinn suður-afríski Charl Schwartzel á samtals 10 undir pari og í 4. sæti varð nýliðinn Justin Bolli aðeins Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 19. 2013 | 19:00
HP Byron Nelson beint

Mót vikunnar á PGA Tour er HP Byron Nelson mótið sem fram fer á TPC Four Season golfstaðnum í Irving, Texas. Eftir 3. dag leiðir Keegan Bradley, sem setti vallarmet á 1. mótsdegi með 60 glæsihöggum, en Sang-Moon Bae sækir á. Til þess að sjá HP Byron Nelson í beinni SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 19. 2013 | 16:15
GMac sigraði í Búlgaríu

Eftir spennandi viku og öllu sem gerst getur í holukeppni á frábæra, nýja Þrakíu golfvellinum í Búlgaríu stóð Norður-Írinn Graeme McDowell uppi sem sigurvegari í 48. Volvo World Match Play Championship. McDowell er 33 ára og nr. 8 á heimslistanum. Í spennandi úrslitaleik hafði McDowell betur gegn Thongchai Jaidee frá Thaílandi 2&1. Hann fær því þátttökurétt í Volvu Golf Champions 2014. Sjá má allar niðurstöður mótsins með því að SMELLA HÉR: Sjá má heimasíðu mótsins með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 19. 2013 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Ingjaldur Valdimarsson – 19. maí 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Ingjaldur Valdimarsson. Ingjaldur er fæddur 19. maí 1961 og því 52 ára í dag. Ingjaldur er í Golfklúbbi Reykjavíkur. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju hér: Ingjaldur Gjalli Valdimarsson (52 ára) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Michael Dean Standly 19. maí 1964 (49 ára); KJ Choi 19. maí 1970 (43 ára); Brynja Þórhallsdóttir, GK, 19. maí 1970 (43 ára) ….. og …….. Vilborg Ingvaldsdottir (62 ára) Áslaug Birna Bergsveinsdóttir (18 ára) Fatasíða Á Akureyri Kærleikskrásir Og Kruðerí Flúðum (19 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að afmælisgrein Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

