Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 9. 2013 | 09:15

Scott eykur forystuna á 3. degi

Adam Scott er enn efstur á  Australian PGA Championship styrkt af Coca-Cola, eftir 3. mótsdag og hefir aukið forystu sína um 1 högg. Leikið er RACV Royal Pines golfstaðnum á Gullströndinni (ens. Gold Coast). Scott er samtals á 10 undir pari, 203 höggum (65 67 71). Í 2. sæti nú 3 höggum á eftir Scott er landi hans David McKenzie á samtals 7 undir pari, 206 höggum (65 69 72) ásamt Golf Boys-num Rickie Fowler (63 72 71). Sjá má stöðuna eftir 3. dag PGA Australia með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 9. 2013 | 07:00

Púttuppákoma Olesen – Myndskeið

Danski kylfingurinn Thorbjörn Olesen lenti í skrítinni uppákomu á Turkish Airlines Open. Hann missti stutt pútt á 12. flöt á 2. hring mótsins, en dómari dæmdi að hann ætti að endurtaka púttið vítalaust. Þegar skorkort Olesen var skoðað var skolli hans á holunni hins vegar orðinn að skramba, þ.e. endurtekningin á púttinu hefir ekki verið vítalaus fyrir hann. Til þess að sjá myndskeið af atvikinu SMELLIÐ HÉR:           


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 9. 2013 | 04:00

PGA: Kirk leiðir eftir 2. dag McGladrey´s

Það er bandaríski kylfingurinn Chris Kirk sem leiðir eftir 2. dag McGladrey´s mótsins, sem fram fer á Seaside golfvellinum á Sea Island í Georgiu-ríki í Bandaríkjunum. Kirk er búinn að spila hringina 2 á McGladrey´s mótinu á samtals 8 undir pari, 132 höggum (66 66). Í 2. sæti eru 4 kylfingar John Senden frá Ástralíu og Bandaríkjamennirnir Webb Simpson, Briny Baird og Kevin Chappell, allir 1 höggi á eftir forystumanninum á samtals 7 undir pari, 133 höggum, hver. Annar hópur 4 kylfinga vermir síðan 6. sætið þ.á.m. Jason Kokrak, sem náði því einstæða afreki að fara holu í höggi á par-4 5. braut Seaside vallarins í Pro-Am hluta mótsins s.l. miðvikudag. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 8. 2013 | 16:00

Golfvellir í Frakklandi: Crécy (8/10)

Crécy golfklúbburinn er í Domaine de la Brie, 50 km í austur frá París. Hann státar af tveimur 18-holu golfvöllum; Montpichet golfvellinum, sem hannaður var af A. De Ormesson árið 1987 og Vignoly golfvellinum, sem hannaður var af golfgoðsögninni Arnold Palmer árið 2009 og er skrautfjöður Crécy. Montpichet er par-72, 6038 metra af öftustu teigum. Vignoly er líka par-72 en aðeins lengri 6342 af öftustu teigum.  Vignoly er auk þess mun meira krefjandi en Montpichet. Vignoly er fullvaxinn keppnisvöllur með fjölda vatnshindranna og sandglompa. Báðir eru vellirnir í hinum gullfallega Marne dal. Landslagið bylgjast áfram en hvorugur völlurinn er yfir um erfiður undir fótinn.  Vignoly er e.t.v. meiri völlur fyrir reynslumeiri Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 8. 2013 | 15:00

Evróputúrinn: Tiger lék gott golf í Tyrklandi – 4 deila efsta sæti í hálfleik

Tiger Woods lék gott golf á 2. degi Turkish Airlines Open mótsins. Þegar leik var frestað í gær vegna myrkurs var Tiger aðeins búinn að ná að spila 10 holur og var í 50. sæti. Hann átti töfrahring á 2. degi upp á 9 undir pari, 63 högg, hring þar sem hann skilaði „hreinu“ skorkorti, missti ekki högg og var með 9 fugla! Þar með sýndi hann og sannaði af hverju hann er nr. 1 á heimslistanum…. en sem stendur situr hann einn í 5. sæti mótsins. Sjá má myndskeið frá frábærum hring Tiger á 2. degi Turkish Open með því að SMELLA HÉR:  Aðeins 1 högg skilur að Tiger Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 8. 2013 | 14:00

Vonn vill stuðning Tiger í Sochi

Frá því að Lindsey Vonn og  Tiger Woods hófu samband sitt í vor hefir Vonn líklega sést meira á grasi en snjó. Mestan part sumars hefir Vonn verið á hliðarlínum á golfvöllum víðsvegar um heiminn að hvetja betri helming sinn og hún er meðal þekktustu kæresta kylfingar um allan heim. Hún var m.a. á Forsetabikarnum, þar sem hún var ákafur stuðningsmaður bandaríska liðsins…. auðvitað. En skv. ýmsum bandarískum heimildum virðist sem Tiger ætli ekki að endurgjalda greiðann á næsta ári á Vetrar-Ólympíuleikunum í Sochi. Þegar Vonn var spurð að því að Access Hollywood hvort Tiger myndi hvetja hana áfram þegar hún hefur Ólympíutitlsvörn sína í bruni í Sochi svaraði hún Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 8. 2013 | 12:00

Afmæliskylfingar dagsins: Dagný Marín og Heiðar Davíð – 8. nóvember 2013

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir Dagný Marín Sigmarsdóttir og Heiðar Davíð Bragason. Dagný er fædd 8. nóvember 1962 og á því 51 árs afmæli í dag!!! Heiðar Davíð er fæddur 8. nóvember 1977 og því 36 ára í dag. Dagný Marín er klúbbmeistari Golfklúbbs Skagastrandar 2012. Hún vinnur við Spákonuhof á Skagaströnd og á 3 börn: Sonju, Sverri og Sigurbjörgu. Heiðar Davíð er golfkennnari við Golfklúbbinn Hamar á Dalvík (GHD). Hann er tvöfaldur klúbbmeistari í ár 2013 þ.e. bæði klúbbmeistari Golfklúbbs Ólafsfjarðar og Golfklúbbsins Hamars á Dalvík. Auk framangreinds hefir Heiðar Davíð  gert ýmislegt og unnið marga aðra sigra í golfíþróttinni. Sem dæmi mætti nefna að hann keppti á danska Scanplan túrnum 2007 og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 8. 2013 | 10:30

LPGA: Oyama efst eftir 1. dag Mizuno Classic

Í nótt hófst í Japan, nánar tiltekið á Kintetsu Kashikojima vellinum í Shima-Shi, Mie, Mizuno Classic mótið. Eftir 1. dag er það heimakonan Shiho Oyama sem leiðir á 4 undir pari, 68 höggum. Oyama er 43 ára, fædd 31. desember 1969 og er því að spila við margar sér allt að helmingi yngri samkeppendur. Oyama gerðist atvinnumaður árið 2000 og hefir á ferli sínum unnið sér inn $234,170. Í 2. sæti, 1 höggi á eftir eru eftirfarandi kylfingar:  þær Hee-Won Han, Eun-bi Jang , Na-Ri Lee, Jiyai Shin og Chella Choi frá Suður-Kóreu, Pernilla Lindberg frá Svíþjóð,  Brittany Lincicome frá Bandaríkjunum og síðan tvær heimakonur frá Japan: Kaori Nakamura og Junko Omote. Til þess Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 8. 2013 | 10:00

Kokrak fékk ás á par-4 holu

Jason Kokrak er einn högglengsti kylfingur PGA mótaraðarinnar bandarísku, en hann slær að meðaltali 300 metra í upphafshöggum sínum í mótum PGA Tour. Kokrak er meðal keppenda á McGladreys mótinu, sem hófst í gær og fer fram á Seaside golfvellinum á Sea Island í Georgíu-ríki í Bandaríkjunum. Kokrak tók m.a. þátt í Pro-Am mótinu, sem er oftast haldið fyrir mótið og viti menn hann fór holu í höggi á 409 yarda (374 metra) par-4 5. holu Seaside vallarins; en líkurnar á að slá draumahöggið á par-4 holu eru 1 á móti milljón. Til þess að setja hlutina í eitthvert samhengi þá er par-4 5. brautin á Seaside golfvellinum næstum jafnlöng Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 8. 2013 | 09:30

Adam Scott efstur í hálfleik

Adam Scott er efstur á  Australian PGA Championship styrkt af Coca-Cola, eftir 2. mótsdag, þ.e. nú þegar mótið er hálfnað. Leikið er RACV Royal Pines golfstaðnum á Gullströndinni (ens. Gold Coast). Scott er samtals á 10 undir pari, 132 höggum (65 67). Í 2. sæti 2 höggum á eftir Scott er landi hans David McKenzie á samtals 8 undir pari, 134 höggum (65 69). Í 3. sæti er forystumaður gærdagsins Rickie Fowler, en hann deilir sætinu með 2 heimamönnum: Garreth Paddison og Nathan Green, en allir hafa þeir leikið á 7 undir pari, 135 höggum. Sjá má stöðuna eftir 2. dag PGA Australia með því að SMELLA HÉR: