Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 8. 2013 | 15:00

Evróputúrinn: Tiger lék gott golf í Tyrklandi – 4 deila efsta sæti í hálfleik

Tiger Woods lék gott golf á 2. degi Turkish Airlines Open mótsins.

Þegar leik var frestað í gær vegna myrkurs var Tiger aðeins búinn að ná að spila 10 holur og var í 50. sæti.

Hann átti töfrahring á 2. degi upp á 9 undir pari, 63 högg, hring þar sem hann skilaði „hreinu“ skorkorti, missti ekki högg og var með 9 fugla!

Þar með sýndi hann og sannaði af hverju hann er nr. 1 á heimslistanum…. en sem stendur situr hann einn í 5. sæti mótsins. Sjá má myndskeið frá frábærum hring Tiger á 2. degi Turkish Open með því að SMELLA HÉR: 

Aðeins 1 högg skilur að Tiger og forystumenn 2. dags, þá Henrik Stenson frá Svíþjóð, Frakkann Victor Dubuisson, Englendinginn Ian Poulter og Justin Walters frá Suður-Afríku.

Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag Turkish Airlines Open SMELLIÐ HÉR: