Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 11. 2013 | 11:30

Afmæliskylfingur dagsins: Ólöf Baldursdóttir – 11. nóvember 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Ólöf Baldursdóttir. Ólöf er í Golfklúbbnum Keili og m.a. í kvennanefnd Keilis.

Ólöf 2. frá hægri ásamt holli sínu á Lancôme mótinu á Hellu 5. maí 2013. Mynd: Golf 1

Ólöf 2. frá hægri ásamt holli sínu á Lancôme mótinu á Hellu 5. maí 2013. Mynd: Golf 1

Ólöf er gift Arnari H. Ævarssyni og á 3 börn.  Auk þess að taka sjálf þátt í mótum í sumar, þar sem hápunkturinn er e.t.v. sigur hennar á Lancôme mótinu á Hellu s.l. vor þá hefir Ólöf verið dugleg að draga fyrir son sinn, Arnar Gauta Arnarsson, sem spilaði á Áskorendamótaröð Íslandsbanka s.l. sumar.

Ólöf í kaddýstörfum fyrir soninn Arnar. Mynd: Golf 1

Ólöf í kaddýstörfum fyrir soninn Arnar. Mynd: Golf 1

Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska henni til hamingju með afmælið:

Ólöf Baldursdóttir (Innilega til hamingju með afmælið!!!)

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Fuzzy Zoeller, 11. nóvember 1951 (62 ára);  Róbert Garrigus, 11. nóvember 1977 (36 ára)

….. og ……

Gunnar Ringsted (61 árs)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is