Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 27. 2014 | 13:30
LET: Milljónaholan í Nýja-Sjálandi

ISPS Handa New Zealand Women´s Open fer fram í Christchurch 31. janúar-2. febrúar n.k. Sú sem á titil að verja er Lydia Ko, sem var áhugamaður þegar hún vann mótið. Auglýst hefir verið nýjung á mótinu, sem er hin svokallaða Milljónahola. Þar fá 4 af 5 síðustu sigurvegurum mótsins, allar að Ko undanskilinni að keppa í sérstakri Ása-keppni, þar sem þær munu reyna með sér í að fara holu í höggi á 18. brautinni í Christchurch. Takist einhverjum keppandanum að slá draumahöggið fær sá hinn sami $ 1 milljón (sem greiðist á 20 árum). Fyrrum 4 sigurvegarar mótsins á undan Ko eru: Lindsey Wright (Ástralia), Kristie Smith (Ástralia), Laura Davies (England) Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 27. 2014 | 10:30
Hver er kylfingurinn: Scott Stallings?

Scott Stallings veit það eflaust ekki en hann á sama afmælisdag og annar frábær kylfingur, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, í GK en bæði eiga afmæli 25. mars, Stallings er að vísu fæddur 1985 og er 28 ára en Guðrún Brá er fædd 1994 og 9 árum yngri. Þar að auki fæddist Stallings í Worcester, Massachusetts. Stallings var í Oak Ridge menntaskólanum í Oak Ridge, Tennessee og var all-state kylfingur og framúrskarandi námsmaður (þ.e. 4 ár á Dean’s List, sem þykir mikill heiður í Bandaríkjunum, en á lista skólastjóra komast aðeins bestu námsmennirnir). Eftir menntaskóla fór hann í Tennessee Tech, þar sem hann var tvö ár í röð Ohio Valley Conference leikmaður ársins, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 27. 2014 | 10:00
Sean Foley þjálfari Tiger biður fólk um að lesa ekki of mikið í hring Tiger upp á 79

Tiger Woods flýgur til Dubai í dag ásamt þjálfara sínum, Sean Foley, sem biður fólk um að lesa ekki of mikið í hring Tiger upp á 79 högg á Torrey Pines, þar sem hann hefir sigrað 8 sinum þ.á.m. Opna bandaríska 2008, fótbrotinn. Gagnrýninni hefir rignt yfir Tiger eftir hringinn. Þannig sagði Nick Faldo m.a. að sér fyndist Tiger „mjög ryðgaður“ og Brandel Chamblee, sem er einn helsti gagnrýnandi Tiger sagði að sveifla Tiger líktist sveiflu „55 ára manns.“ (Alltaf er nú allt jafn gáfulegt sem kemur út úr Chamblee! – Fæstir setja út á sveiflu Bernhard Langer sem vann 1. mótið á Champions Tour nú í ár og hann Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 27. 2014 | 08:00
LPGA: Jessica Korda vann á Bahamas

Það var bandarísk-tékkneski kylfingurinn Jessica Korda, sem sigraði á Pure Silk Bahamas LPGA Classic. Hún lék á samtals 19 undir pari, 273 höggum (69 66 72 66) og hlaut í sigurlaun $ 195.000 (u.þ.b. 24 milljónir íslenskra króna) eða um 5-falt lægri sigurlaun en Scott Stallings sem sigraði á PGA Tour Farmers Insurance mótinu. Korda hefir verið svo nærri því að ná 2. sigri sínum á LPGA mörgum sinnum á undanförnum 2 árum og nú tókst það loks. „Þetta er ótrúlegt,“ sagði Korda eftir að sigra í 2. sinn á LPGA. „Ég veit ekki, kannski veiti ég smáatriðunum meiri athygli og er afslappaðri. Ég veit ekki en hvað sem það Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 27. 2014 | 06:00
PGA: Scott Stallings sigraði á Farmers Insurance Open

Það var Bandaríkjamaðurinn Scott Stallings, sem sigraði í Farmers Insurance Open. Stallings lék á samtals 9 undir pari, 279 höggum (72 67 72 68). Fyrir sigurinn hlaut Stallings $ 1.098.000,- og fagnaði hann að lokum vel ásamt konu sinni Jennifer og litla syni sínum Finn. Hvorki fleiri né færri en 5 kylfingar deildu 2. sætinu aðeins 1 höggi á eftir Stallings en það voru þeir: KJ Choi, Pat Perez, Graeme DeLaet, Jason Day og Marc Leishman. Til þess að sjá lokastöðuna á Farmers Insurance Open SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta lokahringsins á Farmers Insurance Open SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 26. 2014 | 20:00
Viðtalið: Ólöf María Einarsdóttir, GHD

Viðtalið í kvöld er við Íslandsmeistara stelpna í holukeppni og höggleik 2013. Hún býr á Dalvík ásamt foreldrum sínum og er ein af unglingunum þaðan sem segja má að hafi slegið í gegn á Íslandsbankamótaröðinni s.l. sumar. Jafnframt er viðmælandi kvöldsins stigameistari í stelpuflokki á Íslandsbankamótaröðinni 2013. Hér fer viðtalið: Fullt nafn: Ólöf María Einarsdóttir. Í hvaða klúbb ertu félagi?: Golfklúbbnum Hamar á Dalvík (GHD). Hvar og hvenær fæddistu?: Á Akureyri, 9. apríl 1999. (Innskot: Ólöf María á sama afmælisdag og golfsnillingurinn Seve Ballesteros!) Hverjar eru fjölskylduaðstæður og spilar einhver í fjölskyldunni golf? Ég á mömmu, pabba og tvo bræður einn yngri og einn eldri. Mamma spilar smá og yngri Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 26. 2014 | 19:00
Rory: „Dubai er heimili mitt að heiman“

Fyrir 5 árum í þessari viku tryggði Rory McIlroy fyrsta sigur sinn í atvinnumóti, þegar hann sigraði Omega Dubai Desert Classic, 2009 …. átti 1 högg á þann sem næstur kom, Justin Rose. Omega Dubai Desert Classic er einmitt mót vikunnar á Evrópumótaröðinni núna í nk. viku. Sem áhugamanni hafði Rory verið boðið tvisvar áður í mótið – þ.e. 2007 sem var fysta reynsla hans af atvinnumóti – og síðan þá hafa tengsl hans við Dubai stöðugt styrkst. Nú er Omega Dubai Desert Classic mótið haldið í 25. sinn og af því tilefni tók The National langt og mikið viðtal við Rory, sem aðeins verður gripið niður í hér. Spurning: Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 26. 2014 | 18:00
Ástæðan fyrir að Tiger var að spila illa?

Í þýska dagblaðinu Express segir í dag að Lindsey Vonn , kærasta Tiger, sé æf af reiði. Kannski að þar sé komin skýringin á slæmu gengi hans á Torrey Pines í gær? Fyrst meiddi Lindsey sig í hnénu þannig að hún getur ekki tekið þátt í Ólympíuleikunum í Sochi og nú á Tiger að vera dottinn í sama farið!!!!!! Fyrrum (eða e.t.v. verðandi) hjákona Tiger, Rachel Uchitel á að hafa verið að reyna eitthvað við hann aftur og Tiger á síður en svo að hafa verið fráhverfur tilburðum hennar. Rachel á m.a. að hafa beðið Tiger um að hitta sig. Lindsey er sögð afar hrædd um Tiger skv. bandaríska slúðurblaðinu National Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 26. 2014 | 17:00
Afmæliskylfingur dagsins: Sir Henry Cotton – 26. janúar 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Sir Henry Thomas Cotton, KCMG og MBE, en hann fæddist 26. janúar 1907 og hefði því orðið 107 ára í dag, hefði hann lifað, en Henry dó 22. desember 1987 og er því 27 ára afmæli dánardægurs hans jafnframt síðar á þessu ári. Henry fæddist í Holmes Chapel í Cheshire á Englandi. Hann er þekktastur fyrir að hafa unnið Opna breska risamótið þrisvar sinnum, 1934, 1937 og 1948. Eins var Sir Henry 4 sinnum í breska Ryder Cup liðinu og fyrirliði þess tvívegis. Eftir að hann hætti keppnisgolfi varð hann golfvallararkítekt við góðan orðstír, en hann hannaði m.a Le Meridien Penína golfvöllinn frábæra í Portúgal. Sir Henry Cotton Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 26. 2014 | 14:30
Hver er kylfingurinn: Joanna Klatten?

Joanna Klatten sigraði í dag NSW Open í Oatlands golfklúbbnum í New South Wales, Ástralíu. Fram til dagsins í dag hefir besti árangur hennar á Evrópumótaröð kvenna verið 4. sætið og lægsti hringur hennar í atvinnumannamóti til þessa verið 65 högg! Hún bætti því hvorutveggja í dag þegar hún setti nýtt vallarmet í Oatlands golfklúbbnum upp á 9 undir pari, 63 högg, varð í 1. sæti og nældi sér í fyrsta sigur sinn á Evrópumótaröð kvenna. En hver er Joanna Klatten? Joanna fæddist í París 2. mars 1985 og er því 28 ára. Joanna byrjaði að spila golf 8 ára og það var fjölskylda hennar sem kom henni af stað Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

