Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 3. 2014 | 12:30

Hver er kylfingurinn: Russell Henley?

Russell Henley sigraði fyrsta mót sitt á PGA Tour í 14. janúar 2013 þ.e. fyrir ári síðan… en það var í fyrsta sinn sem hann spilaði  á PGA Tour sem fullgildur félagi, því hann hlaut kortið sitt eftir gott gengi á Web.com mótaröðinni – sem er svona einskonar 2. deild golfsins vestra. Í gær, 2. mars 2014 bætti hann við 2. sigri sínum á PGA Tour og það ekki á móti af lakari sortinni, heldur sjálfu Honda Classic eftir bráðabana við þá Rory McIlroy, Ryan Palmer og nafna sinn Russell Knox. Russell Henley hefir verið rísandi golfstjarna vestur í Bandaríkjunum og sigur hans í gær undirstrikar það enn betur. Henley Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 3. 2014 | 07:30

PGA: Hvað var í sigurpoka Henley?

Russell Henley sigraði á Honda Classic í gær.  Eftirfarandi var í sigurpoka hans: Dræver: Nike VR_S STR8-FIT (Graphite Design HD-7X skaft), 9.5° 3-tré: Nike VR_S Covert 2.0 (Fukijura Rombax P95 X skaft), 15° 5-tré: Nike VR_S Covert 2.0 (Fukijura Rombax P95 X skaft), 19° Járn: Nike VR Pro Cavity (3-6; True Temper Dynamic Gold Tour Issue sköft), Nike VR Pro Combo (7-9; True Temper Dynamic Gold Tour Issue sköft) Fleygjárn: Nike VR Pro (48° og 53°; True Temper Dynamic Gold Tour Issue sköft), Nike VR Forged (59°; True Temper Dynamic Gold Tour Issue skaft) Pútter: Nike Method 006 Bolti: Nike RZN Black


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 3. 2014 | 07:00

PGA: Russell Henley sigraði í 4 manna bráðabana á Honda Classic

Það var Russell Henley sem stóð uppi sem sigurvegari á Honda Classic mótinu, sem lauk í gær á PGA National í Flórída. Eftir hefðbundinn 72 holu leik voru 4 efstir og jafnir: nafnarnir Russell Henley og Skotinn Russell Knox, Rory McIlroy, sem búinn var að leiða alla 3 dagana þar áður og Ryan Palmer. Allir voru þeir búnir að spila á samtals 8 undir pari, 272 höggum: Henley (64 68 68 72); Knox (70 63 68 71); McIlroy (63 66 69 74) og Palmer (68 66 69 69). Það varð því að koma til bráðabana milli efstu fjögurra og þar hafði Henley best þegar á 1. holu bráðabanans, en hann Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 2. 2014 | 22:00

Golfgrín á sunnudegi

Lítil, gömul kona gengur eftir gangstétt og dregur á eftir sér tvo stóra, svarta plastpoka. Öðru hverju flýgur $ 20 dollara seðill út um gat á öðrum pokanum. Lögreglan stöðvar litlu, gömlu konuna vegna gruns um að hún sé með þýfi í pokunum. Lögreglan: „Gerir þú þér grein fyrir að það fljúga 20 dollara seðlar út um gat á öðrum pokanum þínum?“ Konan hlær. Konan: „Það er nú saga að segja frá því. Þannig er nefnilega mál með vexti að húsið mitt er staðsett við golfvöll. Ég er að reyna að rækta blóm, en kylfingarnir eru svo ósvífnir að gera þarfir sínar á blómin mín og fyrir utan óþefin af Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 2. 2014 | 21:30

Bandaríska háskólagolfið: Sunna Víðis og Berglind Björns hefja leik á Kiawah Island Classic

Íslandsmeistarinn okkar í höggleik, Sunna Víðisdóttir og golflið Elon og klúbbmeistari GR 2013, Berglind Björnsdóttir og golflið UNCG, taka báðar þátt í Kiawah Island Intercollegiate: Kiawah Island Classic, en mótið fer fram í  Oak Point Golf Club & Cougar Point  á Kiawah Island, í Suður Karólínu. Mótið stendur dagana 2. – 4. mars 2014 og þátttakendur eru 192 frá 36 háskólum. Sunna hefir þegar lokið 1. hring og spilaði hann á 3 yfir pari, 75 höggum.  Sunna er á 2. besta skori liðs síns sem er sem stendur í 15. sæti en nokkrir keppendur eiga eftir að ljúka 1. hring þegar þetta er ritað og því getur sætisröðin raskast nokkuð. Berglind Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 2. 2014 | 16:30

Afmæliskylfingur dagsins: Þorsteinn J. Vilhjálmsson – 2. mars 2014

Það er sjónvarpsmaðurinn og stórkylfingurinn Þorsteinn J. Vilhjálmsson sem er afmæliskylfingur dagsins. Þorsteinn er fæddur 2. mars 1964 og á því 50 ára stórafmæli  í dag!!! Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan:   Thorsteinn J. Vilhjalmsson (50 ára stórafmæli!!! Innilega til hamingju!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Pamela Barnett, 2. mars 1944 (70 ára stórafmæli – lék á LPGA); Jorge Soto 2. mars 1945 (69 ára),  Ólafur Örn Ólafsson, GKB, 2. mars 1956 (58 ára); Ian Harold Woosnam, 2. mars 1958  (56 ára); Phil Jonas (kanadískur kylfingur á Senior Tour – evrópsku öldungamótaröðinni), 2. mars 1962 (52 ára); Joanna Klatten, 2. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 2. 2014 | 14:30

Evróputúrinn: Ross Fisher sigraði á Tshwane Open

Það var enski kylfingurinn Ross Fisher sem landaði sigri á Tshwane Open, á Copperleaf Golf & Country Estate í Centurion, Suður-Afríku. Fisher stóðst áhlaup frá Michael Hoey, sem gerði heiðarlega tilraun til sigurs, sem og heimamaðurinn Danie Van Tonder. Fisher lék á samtals 20 undir pari, 268 höggum (66 65 67 70). Van Tonder og Hoey voru 3 höggum á eftir á 17 undir pari, hvor og í 4. sæti varð spænski kylfingurinn Carlos del Moral enn öðru höggi á eftir. Til þess að sjá lokastöðuna á Tshwane Open SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 2. 2014 | 14:00

Arnarpútt Paulu Creamer – Myndskeið

Paula Creamer alías bleiki pardusinn sigraði Azahöru Muñoz í bráðabana á Sentosa, í Singapúr fyrr í dag með glæsilegu arnarpútti. Þannig var að þær voru báðar jafnar á 10 undir pari, hvor og því var par-5 18. holan spiluð aftur í bráðabana.  Í fyrra skiptið fengu þær báðar par en í seinni skiptið setti Muñoz niður fugl en Creamer átti eftir 25 metra fyrir erni …. og sigri ….. og púttið datt. Sjá má arnarpútt Creamer með því að SMELLA HÉR:  Hér má sjá viðbrögð Creamer eftir að hún setti arnarpúttið niður:


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 2. 2014 | 12:00

Hvað skal gera í eldingu á golfvöllum?

Í gær birti Golf 1 mynd af 2. flötinni á Narooma golfvellinum í Ástralíu en þar hafði eldingu lostið niður. Hér á Íslandi erum við svo heppin að þrumur og eldingar eru sárasjaldgæfar og því meginpartur íslenskra kylfinga því e.tv. ekki með það á hreinu hvað gera skuli þegar vart verður þruma og eldinga á golfvelli. Það fer yfirleitt ekki milli mála þegar von er á þrumum og eldingum – það dimmir skyndilega og fer að rigna eins og hellt væri úr fötu.  Yfirleitt heyrist fyrsta þruman í einhverri fjarlægð OG ÞÁ BER KYLFINGUM AÐ YFIRGEFA GOLFVÖLLINN OG LEITA SKJÓLS HELST Í KLÚBBHÚSI, SEM YFIRLEITT ER MEÐ ELDINGAVARA. Alls ekki Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 2. 2014 | 10:00

Af hákörlum og öðru hættulegu við golfholur

Sumar holur í golfi eru hættulegri en aðrar.  Sú sem fengið hefir einhverja mestu umfjöllunina í því efni er sú 15. í  Carbrook golfklúbbnum í  Queensland, Ástralíu. Fimmtánda brautin liggur öll meðfram vatnshindrun og í henni eru hákarlar.  Hákarlarnir komust í vatnið þegar flóð var á þessum slóðum fyrir nokkrum árum, en þá er talið að þeim hafi „skolað á land“ og þeir orðið eftir þegar flóðinu linnti.  Þeir eru raunverulegir u.þ.b. 2,5-3 metra langir,  svangir og eru núorðið á lógói klúbbsins og í raun flaggskip hans.  Það er reyndar ansi taugatrekkjandi að spila 15. brautina, en engar fréttir hafa borist frá vellinum af kylfingum sem dottið hafi í vatnið og Lesa meira