Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 2. 2014 | 09:00
LPGA: Paula Creamer sigraði í Singapúr

Það var Paula Creamer sem stóð uppi sem sigurvegari á HSBC Women´s Champions, eftir bráðabana við Azahara Muñoz. Eftir hefðbundinn leik á 72 holum, voru báðar á samtals 10 undir pari, 276 höggum; Creamer (67 73 69 69) og Muñoz (69 72 67 70). Par-5, 18. holan var leikin tvisvar: Í fyrra skiptið fengu Creamer og Muñoz báðar par og í seinna skiptið fékk Muñoz fugl og Creamer sigraði með erni! Og það ekki hvernig erni sem er heldur glæsilegu 25 metra arnarpútti!!! Glæsilegt að innsigla sigurinn með svona töfrapútti!!! „Þetta var eitt af þessum púttum, þar sem ef maður nær honum (boltanum) á réttan punkt þá fellur hann,“ sagði Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 2. 2014 | 00:15
PGA: Rory leiðir enn fyrir lokahring Honda Classic – Tiger stormar upp skortöfluna

Rory McIlroy er enn í forystu fyrir lokahring Honda Classic, en hann er búinn að leiða alla 3 mótsdaganna. Rory hefir 2 högga forrskot á þann sem næstur kemur; Russel Henley, en Rory er búinn að spila á samtals 12 undir pari, 198 högg (63 66 69). Russel Henley er hins vegar á samtals 10 undir pari, 200 höggum (64 68 68). Skotinn Russell Knox er í 3. sæti á samtals 9 undir pari og Jhonattan Vegas frá Venezuela er í 4. sæti á samtals 8 undir pari. Tiger stormar upp skortöfluna eftir frábæran hring upp á 65 högg í dag. Samtals er Tiger því búinn að spila á 5 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 1. 2014 | 18:50
Hvaða kylfingur tekur sig best út í sundfötum?

Hvaða kylfingur skyldi nú taka sig best út í sundfötum? Er það Jason Dufner eða Bubba Watson? Lexi Thompson eða Blair O´Neil? Dæmið sjálf en Golf Digest hefir tekið saman sína eigin sundfataútgáfu af kylfingum í bikiníum og sundskýlum SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 1. 2014 | 18:15
Evróputúrinn: Ross Fisher tekur afgerandi forystu á 3. degi Tshwane Open

Það er Englendingurinn Ross Fisher sem leiðir enn á Copperleaf Golf & Country Estate í Centurion, Suður-Afríku, á Tshwane Open mótinu eftir 3. dag, en mótið er samstarfsverkefni Evrópumótaraðarinnar og Sólskinstúrsins. Ross Fisher er samtals búinn að spila á 18 undir pari, 198 höggum (66 65 67) og hefir 5 högga forystu nú á þann sem er í 2. sæti, Norður-Írann Michael Hoey, sem spilað hefir á 13 undir pari, 203 höggum (69 65 69). Þriðja sætinu deila sem fyrr Simon Dyson og Carlos del Moral, báðir nú á samtals 12 undir pari hvor. Til að sjá stöðuna eftir 3. dag á Tshwane Open SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 3. dags Tshwane Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 1. 2014 | 18:00
Nýju stúlkurnar á LET 2014: Kim Williams (21/31)

Það var 31 stúlka sem komst í gegnum Lalla Aicha Tour School í Marokkó og hlaut kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour). Mótið fór fram dagana 14.-18. desember 2013 á golfvöllum Al Maaden og Samanah CC í Marrakech, Marokkó. Leiknir voru 5 hringir og eftir 4. hringinn var stúlkunum 92 sem upphaflega voru 94, fækkað niður í 60 og þar af hlutu 31 efstu eftir 5. og lokahringinn keppnisrétt á LET fyrir keppnistímabilið 2014. Það voru 5 stúlkur sem deildu 10. sætinu (voru jafnar í 10.-14. sætinu) og komust inn á mótaröðina með skor upp á samtals 2 undir pari, 358 högg: Ariane Provot, Kim Williams, Henni Zuël, Rebecca Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 1. 2014 | 17:30
DJ í Goldsmith

Í gær var Dustin Johnson (DJ) í Goldsmith golfversluninni á Myrtle Beach í Flórída. Goldsmith er ein stærsta golfverslunarkeðja Bandaríkjanna og hefir á boðstólum allt varðandi golf: golfútbúnað, golffatnað, golfaukahluti ; stutt: allt sem snertir golf. DJ fylgdist m.a. með hinum 3 ára Anthony Tatro pútta, en litli guttinn þykir mikið efni! Sjá má fleiri myndir af þeim DJ og Tatro með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 1. 2014 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Sigurmann Rafn Sigurmannsson – 1. mars 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Sigurmann Rafn Sigurmannsson. Sigurmann er fæddur 1. mars 1983 og á því 31 árs afmæli í dag. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmæli hér að neðan Sigurmann Rafn Sigurmannsson (31 árs – Innilega til hamingju með daginn!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Pat Perez, 1. mars 1976 (38 ára) ….. og ….. Islensk Grafik (45 ára) Jón Hallvarðsson (36 ára) Opni Listaháskólinn (24 ára) Larus Ymir Oskarsson FashionMonster Sölusíða (33 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 1. 2014 | 13:30
Tiger ánægður með að hafa komist í gegnum niðurskurð

Tiger átti enn einn erfiða hringinn á 2. hring Honda Classic á Palm Beach og rétt slapp með skrekkinn og náði niðurskurði í mótinu. Hefði hann ekki komist í gegnum niðurskurðinn hefði það verið í 11. skipti á öllum ferli hans, sem honum hefði ekki tekist ætlunarverkið. Þetta eru enn ein vonbrigðin en Tiger hefir ekkert verið að spila vel það sem af er árs, byrjaði illa í Torrey Pines og Dubai. Engu að síður staðhæfir hann að hann sé ánægður með árangur sinn í Flórída. „Þetta var barátta, það er ekki nokkur vafi á því,“ sagði Tiger. „Ég barðist um völlinn hér í dag. Ég var bara ekkert að slá Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 1. 2014 | 13:15
Bernhard Gallacher hlýtur heiðursviðurkenningu fyrir lífstíðarstörf sín í þágu golfíþróttarinnar

Fyrrum Ryder Cup fyrirliði Evrópu Bernard Gallacher OBE hlaut heiðursvíðurkenningu í gær fyrir lífstíðarstörf sín í þágu golfíþróttarinnar á 2014 Scottish Golf Awards, sem er vel við hæfi í upphafi Ryder Cup árs. Gallacher tók við viðurkenningunni á Hilton Glasgow hótelinu fyrir framan 650 gesti. Lófatakinu ætlaði aldrei að linna þegar Gallacher tók við viðurkenningunni úr höndum tvöföldum risamótssigurvegaranum Sandy Lyle. Eftir að hafa átt stefnumót við dauðann s.l. ágúst þaðan sem hann rétt slapp – en Gallacher fékk hjartaáfall – þá átti hann í gær notalega kvöldstund með fjölskyldu, vinum og skoskum íþróttastjörnum, alls 650 manns – þ.á.m. skoska krulluliðinu sem stóð sig svo vel í Sochi. Gallacher átti þátt Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 1. 2014 | 13:00
Eldingar skildu eftir far á Narooma

Golfvöllurinn getur verið hættulegur staður. Það er ekki vanþörf á að vera með nokkur varúðarorð nú þegar þúsundir íslenskra golfara fara að leggja land undir fót og spila á erlendum golfvöllum. Það er stórhættulegt að spila golf í þrumuveðri þegar eldingum getur lostið niður. Að ganga um golfvöll við slíkar aðstæður, sveiflandi járnkylfum kallar bara á stórslysin. Hér má sjá mynd af 2. flöt á Narooma golfvellinum í Ástralíu – Til að sjá heimasíðu Narooma SMELLIÐ HÉR: Myndina hér að ofan setti klúbburinn á Facebook síðu sína. Enginn var á golvellinum s.l. miðvikudag þegar eldingunni laust niður , sem betur fer, en myndin bara góð áminning hvað hefði getað gerst ef einhver hefði Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

