Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 18. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Helgi Hólm ———— 18. mars 2014

Það er Helgi Hólm, sem er afmæliskylfingur dagsins. Helgi er fæddur 18. mars 1941 og á því 73 ára afmæli í dag!!! Helgi er í Golfklúbbi Sandgerðis, en með tilstuðlan Helga komst karlasveit GSG upp í 1. deild eftir sigur í sveitakeppni GSÍ 2012 og hélt sér þar 2013. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Helgi Hólm F. 18. mars 1941 (73 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir sem afmæli eiga í dag eru: Macdonald „Mac“ Smith,f. 18. mars 1892 – d.  31. ágúst 1949;  Adele Bannermann (áströlsk), 18. mars 1976 (38 ára); Bri Vega, 18. mars 1982 (32 ára); Marousa Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 18. 2014 | 14:00

Golfútbúnaður: Golfboltaauglýsing frá Nike í sögulegum anda – Myndskeið

Hér má sjá myndskeið með nýjustu auglýsingunni frá Nike en þar er verið að auglýsa nýja RZN golfboltann. Myndskeiðið er sögulegt að því leyti að sett er á svið atriði úr sögu golfsins, en í gegnum tíðina hafa kylfingar deilt um hver sé besti golfboltinn. Var það á sínum tíma „The Ferthery“ (ísl: fjaðurboltinn – þ.e. golfbolti fylltur með hænsna eða gæsafjöðrum) eða Gutta Percha boltinn „The Gutty“, sem líkist meir nútíma boltum, þó enn sé langt í land, sem var bestur? Til að sjá nýju Nike auglýsinguna þar sem RZN golfbolti Nike er auglýstur SMELLIÐ HÉR:


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 18. 2014 | 13:00

Daly og nýi tíminn í golfinu

Nú nýlega náði John Daly nýjum lágpunkti í mjög svo mislitum ferli sínum á golfvellinum.  Hann var á 90 höggum í PGA Tour móti, sem er skor sem meðalskussinn ætti að ná á góðum degi!  Daly er þó vorkunn þar sem hann er kominn með yips s.s. Golf 1 greindi frá SMELLA HÉR:  En það er ýmislegt annað sem upp úr stendur eftir þetta slæma skor Daly. Það eru einfaldleg aðrir tímar núna heldur en þegar Daly var upp á sitt besta í kringum 1990 og að byrja sem atvinnumaður. Í dag leggja hvortheldur eru atvinnukylfingar sem og hinn metnaðargjarni áhugamaður miklu meiri áherslu á líkamsrækt og mataræði samhliða golfæfingum.   Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 18. 2014 | 12:00

Jim Furyk: „Við McGinley erum vinir þrátt fyrir Ryder Cup 2002″

Hér er smá þraut fyrir ykkur kylfinga: Hver var andstæðingur Paul McGinley, þegar hann setti niður sigurpúttið fyrir Evrópu í Ryder Cup 2002? Rétt svar: Jim Furyk. Næstum eftir 12 ár, þar sem Furyk var skammaður fyrir að vera sá kylfingur sem tapaði Ryder bikars titilinum þegar hann tapaði á móti McGinley í tvímenningunum á sunnudeginum, þá talar Furyk en um McGinley sem vin sinn. Meðan McGinley var að spila í sínu fyrsta Ryder Cup móti á Belfry þá hafði Furyk verið með þegar Bandaríkin töpuðu í keppninni 1997, en var einnig með í sigurliði Bandaríkjanna 1999 og svo var hann með 2002. „Ég þekki Paul McGinley ansi vel og Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 18. 2014 | 09:15

Natalie Gulbis æfir af krafti

Í gær, 17. mars var dagur heilagur Patreks, sem haldinn er hátíðlegur, einkum á Írlandi og í Bandaríkjunum meðal írskra innflytjenda. Á degi heilags Patreks er haldið upp á heilagan Patrek sem er verndardýrlingur Írlands; var uppi  385–461 og vann m.a. að því að innleiða kristni á Írlandi.  Dagurinn er þjóðhátíðardagur Írlands. Í tilefni af degi heilags Patreks bera menn 4 laufa smára eða klæðast grænum lit til að minnast heilags Patreks en grænn var litur hans og er m.a. í fána Írlands.  Í raun ættu menn að bera 3 laufa smára en hann er heilagur Patrekur sagður hafa notað þegar hann kenndi heiðingjunum kenninguna um heilaga þrenningu (lat.: trinitas)  sem Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 18. 2014 | 08:56

Myndskeið af sigurvegurum helgarinnar

Hér að neðan er tengill inn á vídeóver Sky Sports en þar má sjá á einu bretti myndskeið af sigurvegurum helgarinnar á helstu mótaröðum heims þ.e. John Senden, sem sigraði á Valspar mótinu á PGA Tour;  viðtal við sigurvegara Lalla Meryem mótsins á LET, Charley Hull og sigurvegara Trophée Hassan II mótsins, sem var mót vikunnar á Evróputúrnum, Alejandro Cañizares. Sjá myndskeiðin með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 18. 2014 | 07:50

Rickie Fowler með í mottumars?

Rickie Fowler hefir látið raka af sér mikið yfirvaraskegg sem hann var með og prýddi hann m.a.  í myndskeiðum, þar sem hann lék „golfleynilöggu“ sem fylgdist með reglubrotum á golfvöllum.  Sjá m.a. með því að SMELLA HÉR RICKIE 1 og SMELLA HÉR RICKIE 2 Eitthvað hefir hann ekki alveg skilið við yfirvaraskeggin. Rickie Fowler tvítaði nefnilega í gær eftirfarandi: Mustache on my #TourTrusty @cobragolf…@PUMAGolf Fall ’14 campaign shoot m.ö.o.  hann segir að mynd af yfirvaraskeggi verði á járni hans á Arnold Palmer Inv. og jafnframt lét hann fylgja með mynd af sér og járninu. Er Fowler þar með ekki að taka þátt í mottumars? … þó með óbeinum hætti sé. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 18. 2014 | 07:30

Bandaríska háskólagolfið: Guðrún Brá og Fresno í 3. sæti í Kaliforníu e. 1. dag

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og golflið Fresno State hóf í gær leik á Fresno State Lexus Classic mótinu, en mótið fer fram í Copper River Country Club í Fresno, Kaliforníu. Mótið stendur 17.-18. mars og verður lokahringurinn leikinn í dag. Þátttakendur í mótinu eru 44 frá 7 háskólum. Guðrún lék fyrstu tvo hringina á 154 höggum (79 75) og er sem stendur í 18. sæti  í einstaklingskeppninni og á 4. besta skori Fresno, sem er er í 3. sæti í liðakeppninni. Sjá má stöðuna eftir fyrri dag Fresno State Lexus Classic mótsins með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 18. 2014 | 07:00

Bandaríska háskólagolfið: Sunna og Elon höfnuðu í 1. sæti og Berglind og UNCG í 14. sæti á JMU Eagle Inv.

Sunna Víðisdóttir GR og golflið Elon og Berglind Björnsdóttir, GR og golflið UNCG tóku þátt í JMU Eagle Invitational. Mótið fór fram á golfvelli Eagle Landing golfklúbbsins í Orange Park, Flórída dagana 14.-16. mars 2014. Þátttakendur í mótinu voru 93 frá 16 háskólum. Sunna lék  mótshringina 3 á samtals á 7 yfir pari (75 69 79) og hafnaði í 13. sæti í einstaklingskeppninni. Hún var á 3. besta skori liðs síns og taldi það því þeim árangri Elon að verða í sigursæti þ.e. 1. sætinu í liðakeppninni!!! Íslandsmeistarinn okkar í höggleik (Sunna) átti svo sannarlega stórglæsilegan 2. hring, þar sem hún lék á 3 undir pari, 69 höggum og var fyrir Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 17. 2014 | 22:45

Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst í 6. sæti á Seahawk mótinu e. fyrri dag!

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og golflið ETSU taka þátt í Seahawk Intercollegiate golfmótinu, sem fram fer í Wilmington, Norður-Karólínu. Mótið stendur dagana 16.-17. mars og hófst því í gær. Þátttakendur eru 78 frá 13 háskólum. Guðmundur Ágúst er á samtals 2 undir pari átti glæsihring upp á 67 og síðan annan mun lakari á 75 á fyrsta keppnisdegi. Hann er í 6. sæti í einstaklingskeppninni.  Í liðakeppninni, stóð Guðmundur Ágúst sig best af liðsfélögum ETSU en liðið er í 2. sæti í mótinu!!! Sjá má umfjöllun um glæsilega frammistöðu Guðmundar Ágústs á heimasíðu ETSU, sem sjá má með því að SMELLA HÉR:  Til þess að sjá stöðuna í Seahawk Intercollegiate Lesa meira