Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 17. 2014 | 22:25
Rory og Caroline giftast í NY

Rory McIlory áætlar að kvænast Caroline Wozniacki í íburðamikilu brúðkaupi í New York í nóvember á þessu ári. Sagt er að gestalistinn í veislu þeirra sé eins og „hver er hvað“ listi í íþróttum. Þau skötuhjúin hafa jafnvel boðið Bill Clinton, fyrrum Bandaríkjaforseta. Engu verður til sparað til þess að gera brúðkaupsdaginn eins tilkomumikinn og mögulegt er. Fjölskylda og vinir eru mjög mikilvægir báðum aðilum. Þar sem peningar eru engin fyrirstaða fylgir boðskortinu í brúðkaupsveisluna farmiði til New York, búi sá sem boðinn er ekki í New York. Búist er við að svaramaður Rory verði æskuvinur hans og samkylfingur Harry Diamond, sem mun á árinu kvænast Belfast módelinu Katie Larmour. Þau Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 17. 2014 | 21:59
Afmæliskylfingur dagsins: Tumi Hrafn Kúld – 17. mars 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Tumi Hrafn Kúld. Hann er fæddur 17. mars 1997 og á því 17 ára afmæli í dag. Tumi er í Golfklúbbi Akureyrar (GA). Tumi varð m.a. holukeppnismeistari Akureyrar 2011. Hann hefir tekið þátt í mótum Unglingamótaraðarinnar á undanförnum árum og gengið vel. Það sama má segja um fjölmörg opin mót sem Tumi Hrafn hefir verið þátttakandi í. Sumir ferðuðust langa leið til að spila í Febrúarmóti GSG 2012 – Feðgarnir Arinbjörn og Tumi Kúld komu alla leið frá Akureyri. Mynd: Golf 1. Komast má á facebook síðu Tuma til þess að óska honum til hamingju með afmæli hér að neðan: Tumi Hrafn Kúld (17 ára – Innilega til Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 17. 2014 | 19:35
GK: Aron Atli sigraði á 1. sunnudagspúttmóti FJ og Hraunkots – var á 23 púttum!!! – Myndasería

Sunnudaginn 17. mars var haldið fyrsta púttmótið af fjórum sem verða haldin í samvinnu Hraunkots við FootJoy. Vegleg verðlaun verða fyrir fyrstu sex sætin og einnig aukaverðlaun fyrir 20. sæti. 50 manns komu í Hraunkot á sunnudaginn og tóku þátt í fyrsta mótinu. Keppendur púttuðu 2 hringi og taldi betri hringurinn. Mótið byrjaði kl 13:00; stóð til 18:00 og tókst vel. Hér má sjá litla myndseríu úr mótinu SMELLIÐ HÉR: Úrslit urðu eftirfarandi: 1. sæti Aron Atli Bergmann 23 pútt (12-11) Glæsilegur!!! 2. sæti Sigurður Ó Sumarliðasson 26 pútt (13-13) 3. sæti Ragnar Pétur Hannesson 27 pútt (15-12) 4. sæti Atli Már Grétarsson 27 pútt (14-13) 5. sæti Benedikt Árni Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 17. 2014 | 10:00
Hvað var í sigurpoka Cañizares?

Spánverjinn Alejandro Cañizares sigraði á Trophée Hassan II móti Evrópumótaraðarinnar í Marokkó nú um helgina. Eftirfarandi var í poka sigurvegarans Cañizares: Dræver: Ping G15 (8.5°) 3-tré: Ping G25 (15°) Blendingur: Ping G25 (30°) Dræving járn: Ping Rapture 4-9 járn: Ping i25 48° fleygjárn: Ping i25 52° fleygjárn: Ping Tour Gorge 55° fleygjárn: Ping Tour Gorge Pútter: Ping Scottsdale Wolverine H Bolti: Titleist Pro V1X
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 17. 2014 | 07:50
Hver er kylfingurinn: Charley Hull?

Charley Hull, sem aðeins er 17 ára sigraði á fyrsta móti sínu á Evrópumótaröð kvenna nú um helgina; Lalla Meryem mótinu í Marokkó, sem fram fór samhliða Trophée Hassan II, mótinu hjá körlunum á Evrópumótaröð karla í Marokkó. Hún gerði það með tilþrifum; knúði fram bráðabana við hina frönsku Gwladys Nocera með glæsihring upp á 62 högg og sigraði síðan á 1. holu bráðabanans. En hver er þessi ungi enski kylfingur, Charley Hull? Charley fæddist 20. mars 1996 í Kettering á Englandi. Hún byrjaði í golfi aðeins 5 ára og er félagi í Woburn golfklúbbnum í Kettering. Hún gerðist atvinnumaður 1. janúar 2013 aðeins 16 ára. Charley er 1,65 að Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 17. 2014 | 07:30
Hvað var í sigurpoka Senden?

Ástralinn John Senden, sem sigraði á Valspar-móti PGA Tour mótaraðarinnar í gær var með eftirfarandi kylfur í sigurpoka sínum: Dræver: TaylorMade SLDR 430 (12°, Aldila Tour Green 70 X skaft) 3-tré: TaylorMade RBZ Tour (14.5°, Aldila RIP Phenom 70 X skaft) 2-járn: Titleist 712U utility járn (Nippon N.S. Pro Modus 3 skaft) 3-9 járn: TaylorMade Tour Preferred MB (Nippon N.S. Pro Modus 3 sköft) 48° fleygjárn: TaylorMade Tour Preferred MB (Nippon N.S. Pro Modus 3 skaft) 54° fleygjárn: Cleveland 588 (Nippon N.S. Pro WV 125 skaft) 58° fleygjárn: Cleveland 588 (Nippon N.S. Pro WV 125 skaft) Pútter: TaylorMade Ghost Tour Monte Carlo 12 Bolti: Titleist Pro V1
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 17. 2014 | 07:00
PGA: Frábært chip Senden á 16. – Myndskeið

Ástralinn John Senden stóð uppi sem sigurvegari á Valspar mótinu í Palm Harbor, Flórída í gærkvöldi. Það sem öðru fremur innsiglaði sigur hans en nokkuð annað var frábært chip Senden á par-4, 16. holu Copperhead vallar Innisbrook golfstaðarins, þar sem mótið fór fram. Hann setti boltann niður úr röffi, af 68 yarda færi, þ.e. u.þ.b. 23 metra frá holu. Um höggið sitt góða, sem kom honum í forystu á lokahringnum sagði Senden m.a. þetta: „Þetta var bara töfrahögg!“ Til þess að sjá töfrahögg Senden á par-4 16. holu á lokahring Valspar mótsins SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 17. 2014 | 01:00
PGA: Senden sigraði á Valspar! – Hápunktar 4. dags

Ástralski kylfingurinn John Senden stóð uppi sem sigurvegari á Copperhead golfvellinum á Innisbrook golfstaðnum í Palm Harbor, Flórída, nú fyrr í kvöld á Valspar-mótinu, en mótið er hluti PGA Tour. Senden var á samtals 7 undir pari, 277 höggum (72 71 64 70) og átti 1 högg á bandaríska kylfinginn Kevin Na, sem varð í 2. sæti og tvö á Scott Langley sem varð í 3. sæti á samtals 5 undir pari. Robert Garrigus sem búinn var að leiða alla mótsdagana fór illa að ráði sínu, lék á 75 höggum og varð því að láta sér lynda 4. sætið í mótinu ásamt þeim Luke Donald og Will McKenzie, en þeir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 16. 2014 | 19:45
Afmæliskylfingur dagsins: Haraldur Franklín Magnús – 16. mars 2014

Það er Haraldur Franklín Magnús, GR, sem er afmæliskylfingur dagsins. Haraldur fæddist 16. mars 1991 og er því 23 ára í dag. Hann hóf 2011 keppnistímabilið á að sigra glæsilega Opnunarmót GR, 15. maí 2011 á 67 höggum! Um sumarið spilaði Haraldur Franklín á Eimskipsmótaröðinni með góðum árangri. Hann sigraði m.a. á Símamóti mótaraðarinnar á Hvaleyrinni, í Hafnarfirði, 26. júní 2011. Sumarið, 2012, varð Haraldur Franklín bæði Íslandsmeistari í holukeppni og höggleik! …. sá fyrsti úr röðum GR til að vinna Íslandsmeistara-titilinn í höggleik í 27 ár!! Eins var Haraldur Franklín í sigursveit GR í sveitakeppni GSÍ 2011 og tók í kjölfarið þátt í Evrópumóti golfklúbba í National Golf Club, Antalya í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 16. 2014 | 19:00
Evróputúrinn: Cañizares sigraði!!!

Það var spænski kylfingurinn Alejandro Cañizares sem sigraði á Hasasn Trophée II mótinu á Golf du Royal Palais, í Agadír, Marokkó. Samtals lék Cañizares á 19 undir pari, 269 höggum (62 67 68 69). Í 2. sæti varð Englendingurinn Andy Sullivan heilum 5 höggum á eftir á samtals 14 undir pari, 264 höggum (66 73 72 63) og í 3. sæti vað enn annar Englendingurinn Seve Benson auk Svíans Magnus A Carlson. Til þess að sjá lokastöðuna í Trophée Hassan II SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 4. dags Trophée Hassan II SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

