Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 18. 2014 | 07:00

Bandaríska háskólagolfið: Sunna og Elon höfnuðu í 1. sæti og Berglind og UNCG í 14. sæti á JMU Eagle Inv.

Sunna Víðisdóttir GR og golflið Elon og Berglind Björnsdóttir, GR og golflið UNCG tóku þátt í JMU Eagle Invitational.

Mótið fór fram á golfvelli Eagle Landing golfklúbbsins í Orange Park, Flórída dagana 14.-16. mars 2014.

Þátttakendur í mótinu voru 93 frá 16 háskólum.

Sunna lék  mótshringina 3 á samtals á 7 yfir pari (75 69 79) og hafnaði í 13. sæti í einstaklingskeppninni. Hún var á 3. besta skori liðs síns og taldi það því þeim árangri Elon að verða í sigursæti þ.e. 1. sætinu í liðakeppninni!!!

Íslandsmeistarinn okkar í höggleik (Sunna) átti svo sannarlega stórglæsilegan 2. hring, þar sem hún lék á 3 undir pari, 69 höggum og var fyrir lokahringinn T-2 þ.e. deildi 2. sætinu með öðrum keppenda, Tiffany Chan úr Daytona State College! S

Berglind lék á samtals 19 yfir pari (69 83 83) og varð í 50. sæti í einstaklingskeppninni.  Hún var á 2. besta skori liðs síns, UNGC, sem varð í 14. sæti í liðakeppninni.  Berglind leiddi eftir 1. dag mótsins, þ.e. var í 1. sæti ásamt öðrum keppanda á stórglæsilegu skori 3 undir pari, en náði því miður ekki að fylgja því eftir á næstu 2 hringjum, en þá lék hún báða á 11 yfir pari.

Sunna og Elon leika næst í John Kirk Panther mótinu 30. mars n.k. og Berglind og UNGC taka þátt í Bryan National mótinu á heimavelli í Greensboro, Norður-Karólínu, 28. mars n.k.

Til þess að sjá lokastöðuna á JMU Eagle Invitational  SMELLIÐ HÉR: