Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 19. 2014 | 18:53

Tiger ekki gott vitni

Lögmaður Gotta Have it Golf, fyrirtækisins, sem vann mál sitt gegn fyrirtæki Tiger Woods, ETW Corporation, var ekkert að detta af stólnum af hrifningu yfir Tiger sem vitni fyrir rétti. „Hann er svolítið útsmoginn, og hreint út sagt var frammistaða hans flöt,“ sagði lögmaðurinn Eric Isicoff í viðtali við John Pacenti hjá  South Florida’s Daily Business Review. Tier bar vitni lengur en í 45 mínútur í síðustu viku og allt kom fyrir ekki. Kviðdómur þar sem einungis voru í kvenmenn dæmdu ETW Corp til þess að greið Gotta Have it Golf $668,000 í skaðabætur, en þessi fjárhæð gæti hækkað upp í $1.3 million að viðbættum vöxtum. „Eina ástæðan fyrir því að hann Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 19. 2014 | 18:40

Mickelson með í Valero Texas Open

Valero Texas Open er mót næstu viku á PGA Tour.  Þar mun ein helsta golfstjarna túrsins, Phil Mickelson spila, en hann hefir sem kunnugt er gefið út að hann ætli að minnka við sig keppnisþátttöku. Það verður þvi gaman að fylgjast aftur með Phil! Mickelson hefir sigrað í 42 PGA mótum og er nr. 5 sem stendur á heimslistanum.  Valero Texas Open fer fram 27.-31. mars á  Oaks golvelli TPC San Antonio. „Phil færir mótinu allt annað stig spennu þegar hann tekur þátt og við erum mjög þakklát að hann hafi ákveðið að vera með í næstu viku,“ sagði framkvæmdastjóri Valero Texas Open, Larson Segerdahl.


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 19. 2014 | 18:23

Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Kristín Bachmann – 19. mars 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Guðrún Kristín Bachmann, GR. Guðrún Kristín er fædd 19. mars 1953 og á því 61 árs afmæli í dag!!! Guðrún Kristín hefir tekið þátt í opnum golfmótum  með góðum árangri.  Þannig var Guðrún Kristín m.a. í 3. sæti í Vetrarmóti GS  13. nóvember 2011 með 40 glæsipunkta í móti þar sem þátt tóku um 100 manns, en þar af voru kvenþátttakendur 5. Eins hefir hún staðið sig vel í púttmótaröð GR-kvenna nú í vetur. Guðrún Kristín er gift Pétri Georg Guðmundssyni.  Komast má á facebooksíðu afmæliskylfingsins til þess að óska henni til hamingju með stórafmælið hér að neðan Guðrún Kristín Bachmann (61 árs – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 19. 2014 | 17:00

Stenson vonast til að bæta sig

Henrik Stenson hefir ekkert alltof miklar áhyggjur af því þó árið byrji heldur dauflega hjá honum eftir flugeldasýningar síðasta árs. Nr. 3 á heimslistanum (Stenson) lauk árinu 2013 með stæl í Dubai og átti þar að auki 2. sætis árangur á Opna breska risamótinu eftir að hafa sigrað á FedEx Cup, um haustið. Og ef það væri ekki alveg nóg.  Nei, Stenson var tvívegis meðal efstu 5, þ.e.  á  Nedbank Challenge í Suður-Afríku og á  Thailand Golf Championship. Og svo spilaði hann í órúlegum fjölda móta á síðasta ári 31….. og kannski ekkert nema von að hann sé þreyttur núna. Því það sem af er árinu 2014 hefir ekki gengið vel hjá Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 19. 2014 | 12:29

Bandaríska háskólagolfið: Guðrún Brá og félagar sigruðu í Fresno State Lexus Classic

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og golflið Fresno State luku í gær keppni á Fresno State Lexus Classic mótinu og stóðu uppi sem sigurvegarar!!! Mótið fór fram í Copper River Country Club í Fresno, Kaliforníu dagana  17.-18. mars. Þátttakendur í mótinu voru 44 frá 7 háskólum. Guðrún lék samtals á 17 yfir pari, 233 höggum (79 75 79) og lauk keppni  í 20. sæti  í einstaklingskeppninni. Hún  var jafnframt á 4. besta skori Fresno og taldi skor Guðrúnar Brár því í sigri liðsins. Næsta mót „The Bulldogs“, golfliðs Fresno State, er Avenue Spring Break Classic, sem fram fer á Kapalua, Maui, á Hawaii 24.-26. mars n.k. Til þess að sjá úrslitin Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 19. 2014 | 12:00

Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst og ETSU höfnuðu í 2. sæti á Seahawk mótinu

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR og golflið ETSU tóku þátt í Seahawk Intercollegiate golfmótinu, sem fram fór í Wilmington, Norður-Karólínu, 16.-17. mars. Mótið var 36 holu mót en ekki hefðbundið 54 holu þar sem 36 holur eru spilaðar fyrri daginn. Golf 1 er því þegar búið að birta úrslit mótsins, þó staðið hafi verið í þeirri trú að einn óspilaður hringur væri eftir. Er beðist velvirðingar á því. Úrslitin hafa í raun þegar birtst…. en svona til upprifjunar…. Þátttakendur voru 78 frá 13 háskólum. Guðmundur Ágúst lék á samtals 2 undir pari átti glæsihring upp á 67 og síðan annan mun lakari á 75. Hann varð í 6. sæti í einstaklingskeppninni. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 19. 2014 | 11:45

Hverju klæðast Rory og Caroline í brúðkaupi sínu? Myndasería

Golf 1 var með frétt þess efnis að nr. 7 á heimslistanum (Rory McIlroy) muni kvænast sinni heittelskuðu, Caroline Wozniacki í nóvember n.k. Sjá frétt Golf 1 með því að SMELLA HÉR:  Menn eru þegar farnir að velta fyrir sér hverju þau skötuhjú muni klæðast á deginum stóra. Í eftirfarandi myndaseríu eru nokkrar tilgátur: SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 19. 2014 | 00:45

Playboy-módel í skaðabótamál – Myndskeið

Playboy módelið Elizabeth Dickson , 28 ára, krefst 300.000 punda (þ.e.a.s. um 56 milljónir íslenskra króna) skaðabóta auk miska vegna þess að útvarpsmaðurinn Kevin Kline sló í afturenda hennar, en þar hafði verið komið fyrir tíi og átti Kline að slá boltann af tíinu. Ekki vildi betur til en að Kline tók fulla baksveiflu og dúndraði í afturenda Dickson, sem marðist illilega (sjá má mynd af marinu hér að neðan). Atvikið átti sér stað í atburði (golfmóti áhugamanna í Kaliforníu, Playboy Golf Finals) sem Playboy Enterprises stóð fyrir 30. mars 2012, en Elizabeth hefir höfðað mál bæði gegn Playboy og Kline. Lesa má stefnu lögmanns Elizabeth með því að SMELLA HÉR:  Sjá Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 19. 2014 | 00:10

Tiger ekki með í Bay Hill – óvíst með Masters

Tiger Woods hefir séð sig knúinn til þess að draga sig úr móti vikunnar á PGA Tour, sem hann var skráður í, þ.e. Arnold Palmer Invitational á Bay Hill í Orlando, Flórída. Nr. 1 á heimslistanum, Tiger, sem á titil að verja þjáist enn af bakmeiðslum og vonar nú að hann geti náð sér nógu góðum til þess að geta tekið þátt í Masters risamótinu. Í yfirlýsingu á vefsíðu sinni sagði Tiger:„Ég hringdi í Arnold (Palmer) og sagði honum persónulega að því miður gæti ég ekki tekið þátt í móti hans í ár.“ „Ég vil lýsa yfir hversu leitt mér þykir þetta við aðdáendur í Orlando, sjálfboðaliða, starfsmenn mótsins og styrktaraðila Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 18. 2014 | 18:00

Nýju stúlkurnar á LET 2014: Julia Davidsson (23/31)

Það var 31 stúlka sem komst í gegnum Lalla Aicha Tour School í Marokkó og hlaut kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour). Mótið fór fram dagana 14.-18. desember 2013 á golfvöllum Al Maaden og Samanah CC í Marrakech, Marokkó.  Leiknir voru 5 hringir  og eftir 4. hringinn var stúlkunum 92 sem upphaflega voru 94, fækkað niður í 60 og þar af hlutu 31 efstu eftir 5. og lokahringinn keppnisrétt á LET fyrir keppnistímabilið 2014. Nú er aðeins eftir að kynna þær stúlkur sem urðu í 9 efstu sætunum. Byrjað verður á að kynna þær 3, sem deildu 7. sætinu þ.a. þær Juliu Davidsson, Isabell Gabsa og Virigina Espejo, Lesa meira