Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 25. 2014 | 10:00

GB: Vonda liðið og Strympurnar jafnar í liðakeppninni Einpúttaranum!

Úrslitin í Einpúttaranum (liðakeppni) voru þau að Vonda liðið og Stympurnar urðu jafnar með 26 einpútt (36 holur). Í þriggja holu umspili var það Anna Ólafsdóttir sem tryggði sigurinn fyrir Vonda liðið en meðspilarinn var Þórhallur Teitsson . Í Strympu voru þeir feðgar Finnur Ingólfsson  og Arnór Tumi Finnsson. auk Guðríðar Ebbu Pálsdóttur. Þetta var hörkukeppni og skemmtu keppendur sér verulega.  Sjá má mynd af þátttakendum í Einpúttaranum og verðlaunahöfum hér að neðan.


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 25. 2014 | 09:15

GKG 20 ára – Skrifað undir viljayfirlýsingu um byggingu íþróttamiðstöðvar

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar, GKG átti 20 ára afmæli í gær mánudaginn, 24. mars 2014.  Haldið var upp á afmælið í stórri afmælisveislu helgina þar áður.  Í tilefni afmælisins var undirrituð viljayfirlýsing til byggingar nýrrar íþróttamiðstöðvar. Hér má lesa grein Agnars Más Jónssonar, framkvæmdastjóra GKG um afmælið og viljayfirlýsinguna, en hann sendi auk þess Golf 1 meðfylgjandi myndir af undirritun viljayfirlýsingarinnar og teikningar af íþróttamiðstöðinni fyrirhuguðu. Hér fer grein Agnars: „Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar, GKG, er 20 ára á þessu ári. Af því tilefni var skrifað var undir  viljayfirlýsingu um byggingu nýrrar íþróttamiðstöðvar GKG af bæjarstjórum Kópavogs og Garðabæjar, þeim Gunnari Einarssyni og Ármanni Kr. Ólafssyni ásamt formanni GKG Guðmundi Oddsyni. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 25. 2014 | 08:15

Bandaríska háskólagolfið: Guðrún Brá í 12. sæti e. 1. dag á Hawaii

Afmæliskylfingur dagsins hér á Golf 1, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK  (Guðrún Brá á 20 ára stórafmæli!!!) og „The Bulldogs“ golflið Fresno State hófu í gær keppni á Avenue Spring Break Classic mótinu í Kapalua, Maui á Hawaii. Spilað er á Bay golfvellinum. Mótið stendur dagana 24.-26. mars 2014 og þátttakendur eru 88 frá 15 háskólum. Guðrún Brá er í 12. sæti í einstaklingskeppninni eftir 1. dag, lék á 2 yfir pari, 74 höggum. Á hringnum fékk Guðrún Brá 3 fugla og 5 skolla. Guðrún Brá er á 1.-2. besta skorinu í liði sínu, en lið Fresno State er í 10. sæti í mótinu. Í dag fer Guðrún Brá út af Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 25. 2014 | 07:45

Golfútbúnaður: Lúxusgolfbílar

Nú nálgast sumarið óðfluga og margir sem ekki getað spilað golf ýmissa hluta vegna nema á golfbíl. Til eru margar gerðir golfbíla og Bubba Watson efast ekki um hvaða golfbíll honum finnst bestur – Garia golfbíllinn, en meðal staðalútbúnaðar í bílnum er kælifag til þess að halda drykkjum köldum meðan hringur er spilaður.  Fyrir utan svifnökkvann sinn kýs Bubba líka venjulegri gerð golfbíla og þá er það Garia golfbíllinn sem verður fyrir valinu.  Hann segir golfbílinn svo þægilegan að vel geti verið að hann verði meira í honum en bílnum sínum en allir vita að Bubba á „General Lee.“  Það sem Bubba finnst þægilegt við Garia bílinn er m.a. háklassa Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 24. 2014 | 20:30

GK: Gísli Sveinbergs sigraði í sunnudagspúttmóti nr. 2 – Myndasería

Í gær sunnudaginn 23. mars 2014 var annað mótið af fjórum haldið í Hraunkoti í samvinnu við FootJoy á Íslandi. Það eru glæsilegir vinningar í boði frá FootJoy og Hraunkoti. Efstu sex sætin gefa vinning og aukaverðlaun veitt fyrir 20. sæti. Sigurvegarinn fær flotta skó frá FootJoy og einnig gefur FootJoy golfboli, húfur og hanska. Hraunkot gefur Gullkort og Platínukort. Um 60. manns púttuðu og aftur var frábært veður í Hraunkoti , eins og fyrir viku síðan Sjá má litla myndaseríu frá sunndagspúttmóti 2 með því að SMELLA HÉR:  Úrslit urðu eftirfarandi: 1. sæti Gísli Sveinbergsson 25 pútt (12-13) 2. sæti Þór Breki Davíðsson 27 pútt (15-12) 3. sæti Birgir Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 24. 2014 | 19:45

Afmæliskylfingur dagsins: Baldvin Jóhannsson – 24. mars 2014

Það er Baldvin Jóhannsson, GK, sem er afmæliskylfingur dagins. Baldvin er fæddur 24. mars 1938 og því 76 ára í dag.  Sjá má skemmtilegt viðtal við afmæliskylfinginn með því að SMELLA HÉR:  Elsku Balli – innilega til hamingju með afmælið!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Aðrir frægir sem eiga afmæli í dag eru: Pat Bradley,(frænka Keegan) 24. mars 1951 (63 ára);  Andrés Jón Davíðsson, golfkennari, 24. mars 1968 (46 ára); Jason Dufner, 24. mars 1977 (37 ára); Elliot Saltman, 24. mars 1982 (einn skosku golfbræðranna – 32 ára);  Maria Hernandez, 24. mars 1986 (28 ára) …. og ….. Golfklúbbur Kópavogs Og Garðabæjar (20 ára stórafmæli!!!) Golf 1 óskar öllum kylfingum, Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 24. 2014 | 19:30

Hvað er í pokunum hjá sigurvegurum helgarinnar?

Hér að neðan fer það sem var í sigurpokum sigurvegara helgarinnar: Matt Every, sem sigraði á Arnold Palmer Invitational á PGA Tour; Karrie Webb sem sigraði á JTBC Founders Cup á LPGA mótaröðinni og Jeff Maggert sem sigraði á Mississippi Resort Golf Classic, á Champions Tour. Eftirfarandi var í sigurpoka Matt Every:  • DRÆVER: Callaway Big Bertha (9.0°, Fujikura Motore Speeder VC 7.0 X skaft) • BRAUTARTRÉ: Callaway X2 Hot Pro (15 °, Aldila Tour Blue 75 X skaft) and TaylorMade Burner SuperFast (18°, Nventix Nunchuk skaft) • JÁRN: Callaway Apex Pro (4-9 járn, KBS Tour-V 125 X sköft) • FLEYGJÁRN: Callaway Apex Pro (48° KBS Tour-V 125 X sköft) Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 24. 2014 | 19:00

Sigurði Arnari gekk vel á US Kids móti!

Sigurður Arnar Garðarsson, 12 ára kylfingur í GKG, lauk keppni í sínu fyrsta alþjóðlega móti í gær, en hann tók þátt í USKids mótaröðinni á Jekyll Island vellinum í Georgíu í Bandaríkjunum. Sigurður stóð sig með stakri prýði og hafnaði í 12. sæti, en hann lék hringina tvo á 79 og 75 höggum (+10). Það var Bandaríkjamaðurinn Tyler Lipscomb, sem sigraði 12 ára flokkinn á 6 höggum undir pari. Úrslit mótsins er hægt að sjá hér. USKids mótaröðin er leikin víðvegar í Bandaríkjunum og í Evrópu, og er mjög góður vettvangur til að öðlast reynslu í mótum erlendis. Þátttakan í mótinu eflir áhugann enn frekar hjá Sigurði og hvetur hann Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 24. 2014 | 10:30

Bandaríska háskólagolfið: Guðrún Brá hefur keppni á Hawaii

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og „The Bulldogs“ golflið Fresno State hefja leik á Avenue Spring Break Classic í Kapalua, Maui á Hawaii í dag. Þátttakendur í mótinu eru 88 frá 15 háskólum. Guðrún Brá fer út af 11. teig og á rástíma kl. 8:45 en mótið er með shotgun starti þ.e. allir hefja leik samtímis. Að okkar tíma hér á Íslandi er það kl. 18:45 í kvöld. Til þess að fylgjast með gengi Guðrúnar Brá SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 24. 2014 | 10:00

Bandaríska háskólagolfið: Ragnar Már öðlast fast sæti í keppnisliði McNeese það sem eftir er keppnistímabilsins

Ragnar Már Garðarsson, GKG og golflið McNeese hefja keppni í 21. móti UALR First Tee Classic, í Arkansas í dag. Mótið er tveggja daga þ.e. stendur dagana 24.-25. mars 2014.  Þátttakendur eru lið 14 háskóla, en auk Mc Neese taka þátt:  Southland foes Abilene Christian, Oral Roberts, Sam Houston State and Stephen F. Austin, UALR. Jafnframt taka þátt Arkansas State, Lipscomb, Louisiana-Monroe, Missouri State, Nebraska-Omaha, Northern Iowa, Southern Illinois og UT Martin. Í liði McNeese eru eftirfarandi keppendur: Hampus Bergman, Martin Eriksson, Geoff Fry, Shane Fontenot og Ragnar Garðarsson. Á heimasíðu McNeese segir að Ragnar snúi aftur til keppni eftir að hafa ekki verið með á Border Olympics mótinu í síðustu viku. Þjálfari Lesa meira