Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 26. 2014 | 11:55

Bandaríska háskólagolfið: Ragnar Már náði sér aldrei á strik

Ragnar Már Garðarsson, GKG og golflið McNeese luku í gær keppni á 21. móti UALR First Tee Classic, í Arkansas. Mótið var tveggja daga þ.e. stóð dagana 24.-25. mars 2014.  Þátttakendur voru  75 keppendur frá 14 háskólum, en auk McNeese tóku þátt:  Southland foes Abilene Christian, Oral Roberts, Sam Houston State og Stephen F. Austin, UALR. Jafnframt tóku þátt Arkansas State, Lipscomb, Louisiana-Monroe, Missouri State, Nebraska-Omaha, Northern Iowa, Southern Illinois og UT Martin. Í liði McNeese voru eftirfarandi keppendur: Hampus Bergman, Martin Eriksson, Geoff Fry, Shane Fontenot og Ragnar Már. Ragnar Már átti ekkert sérstakan 2. dag fremur en fyrstu tvo hringi fyrsta dags. Hann lék á óvenju háu skori miðað við hvernig Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 26. 2014 | 11:00

Hvaða risamót eru best?

Í vitund margra skiptast risamótin 4 niður á eftirfarandi máta: The Masters er „fallegasta“ risamótið; Opna breska er „sögufrægasta“ risamótið þ.e. það risamót með ríkustu hefðina; Opna bandaríska er „erfiðasta“ risamótið (í þessu risamóti er yfirleitt keppt við erfiðar aðstæður, slæmt veður um hásumar þ.e. ofboðslegan hita oft á tímum, auk þess sem völlurinn er yfirleitt níðingslega erfitt settur upp – sama hvar spilað er) þannig að yfirleitt eru lág skor hjá súperstjörnum golfsins sjaldséð og loks er „léttasta“ risamótið PGA Championship. Þannig að þegar fólk er spurt að því hvert sé uppáhaldsrisamótið eða hvaða risamót þeim finnist best þá skipta flestir sér niður á milli The Masters eða Opna Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 26. 2014 | 10:00

Alheimslögmál golfsins

Alheimslögmál golfsins (ens.: Cosmic laws of golf) Lögmál nr.  1: Það skiptir ekki máli hversu slæmt síðasta högg þitt var, þú átt eftir að sjá það verra. Þetta lögmál hverfur ekkert á 18. holu, þar sem það hefir þá yfirnáttúrulega tilhneigingu til þess að eiga við um heilt mót, heilt sumar eða jafnvel heila ævi. Lögmál nr. 2: Á eftir besta golfhring þínum áttu versta golfhringinn þinn. Líkindi á því síðarnefnda aukast eftir því sem þú segir fleirum frá því fyrrnefnda. Lögmál nr. 3: Glænýir golfboltar virðast vera með vatnshindranasegul. Jafnvel þó ekki sé hægt að sanna þetta á rannsóknarstofu, þá er það þekkt staðreynd að þeim mun dýrari sem golfboltinn er, þeim mun meiri líkur er Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 26. 2014 | 08:45

Frægðarhöll kylfinga breytir um valferli

Frægðarhöll kylfinga (ens.: World Golf Hall of Fame) hefir gert breytingar á valferli sínu, þ.e. hverjir velja kylfingana, sem hljóta þennan eftirsótta heiður. Hér áður fyrr voru það fjölmörg hundruð manna sem komu að vali á næsta frægðarhallarkylfingnum m.a. fjölmiðlamenn, forvígismenn innan golfsins og félagar, sem þegar höfðu hlotið inngöngu í frægðarhöllina. Þeir ákváðu hverjir til viðbótar hlytu inngöngu. Valnefndin nú er skipuð: 3 golffréttamönnum, 4 félögum sem þegar hafa hlotið inngöngu í frægðarhöllina og 9 stjórnendum í golfheiminum (ens. golf administrators), alls 16 mönnum.  Til þess að komast í frægðarhöllina verður kylfingur að hljóta 75% atkvæða nefndarinnar eða hljóta atkvæði 12 af þessum 16 nefndarmanna.  (Í fyrra komust Fred Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 25. 2014 | 23:45

Afmæliskylfingur dagsins: Guðrún Brá Björgvinsdóttir – 25. mars 2014

Afmæliskylfingur dagsins í dag er Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK. Guðrún Brá er fædd 25. mars 1994 og á því 20 ára stórafmæli í dag!!! Guðrún Brá er í Golfklúbbnum Keili og stundar nú nám og spilar golf með golfliði Fresno State háskólans í Kaliforníu.  Á afmælisdaginn er hún við keppni í Kapalua á Hawaii. Guðrún Brá var valin efnilegasta golfkona Íslands 2010. Guðrún Brá varð bæði Íslandsmeistari í höggleik og holukeppni í sínum aldursflokki 17-18 ára á Arionbankamótaröð unglinga 2011. Síðan unnu þau frænsdsystkinin Axel Bóasson og hún fyrsta mótið á Eimskipsmótaröðinni 2011. Guðrún Brá tók þátt í Duke of York mótinu 2011 og 2012 og stóð sig vel, bæði skiptin. Guðrún Brá Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 25. 2014 | 19:45

Bandaríska háskólagolfið: Ragnar Már átti erfiða byrjun á UALR First Tee Classic mótinu

Ragnar Már Garðarsson, GKG og golflið McNeese  hófu í gær keppni í 21. móti UALR First Tee Classic, í Arkansas. Mótið er tveggja daga þ.e. stendur dagana 24.-25. mars 2014 og lýkur því í kvöld.  Þátttakendur eru lið 14 háskóla, en auk McNeese taka þátt:  Southland foes Abilene Christian, Oral Roberts, Sam Houston State and Stephen F. Austin, UALR. Jafnframt taka þátt Arkansas State, Lipscomb, Louisiana-Monroe, Missouri State, Nebraska-Omaha, Northern Iowa, Southern Illinois og UT Martin. Þátttakendur eru 75 frá 14 háskólum. Í liði McNeese eru eftirfarandi keppendur: Hampus Bergman, Martin Eriksson, Geoff Fry, Shane Fontenot og Ragnar Garðarsson. Ragnar Már átti ekkert sérstakan 1. dag lék á samtals 157 höggum (79 78) Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 25. 2014 | 19:30

Nýju stúlkurnar á LET 2014: Isabell Gabsa (24/31)

Það var 31 stúlka sem komst í gegnum Lalla Aicha Tour School í Marokkó og hlaut kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour). Mótið fór fram dagana 14.-18. desember 2013 á golfvöllum Al Maaden og Samanah CC í Marrakech, Marokkó. Leiknir voru 5 hringir og eftir 4. hringinn var stúlkunum 92 sem upphaflega voru 94, fækkað niður í 60 og þar af hlutu 31 efstu eftir 5. og lokahringinn keppnisrétt á LET fyrir keppnistímabilið 2014. Nú er aðeins eftir að kynna þær stúlkur sem urðu í 9 efstu sætunum. Byrjað verður á að kynna þær 3, sem deildu 7. sætinu þ.a. þær Juliu Davidsson, Isabell Gabsa og Virigina Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 25. 2014 | 14:30

GMac: „EurAsiu bikarinn ágætis upphitun fyrir Ryderinn“

Graeme McDowell (GMac) segir að EurAsíu bikarinn muni verða fullkominn undirbúningur fyrir Ryder Cup, sem fram fer á seinna á árinu í Gleneagles, í Skotlandi. Hvað snertir EurAsíu bikarinn þá er taldar 4/9 líkur á að lið Evrópu sigri í Glenmarie golfklúbbnum í Malasíu. GMac er eini kylfingurinn í evrópska liðinu, sem lék í „kraftaverkinu í Medinah“ 2012, en margir félaga hans þar berjast nú um að komast í Ryder Cup liðið aftur. Thomas Björn, Victor Dubuisson, Jamie Donaldson og Stephen Gallacher eru allir sem stendur í liðinu en menn á borð við Joost Luiten, Gonzalo Fernandez-Castano og Pablo Larrazabal eru nálægt því að komast í liðið. Með svona marga sem hugsanlega koma til Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 25. 2014 | 14:00

Bandaríska háskólagolfið: Íris Katla og „The Royals“ luku keppni í 6. sæti Wingate mótsins – Stefanía Kristín á besta skori „The Falcons“

 Íris Katla Guðmundsdóttir, GR og „The Royals“ golflið Queens og klúbbmeistari GA, Stefanía Kristín Valgeirsdóttir og golflið Pfeiffer „The Falcons“ tóku þátt í Wingate Pinehurst Challenge mótinu, en mótinu sem var tveggja daga og stóð 23.-24. mars 2014 lauk í gær.  Þátttakendur voru 90 frá 18 háskólum. Íris Katla varð í 31. sæti í mótinu lék á samtals 173 höggum (89 84) en Stefanía Kristín varð í 47. sæti lék á samtals 177 höggum (90 87). Báðar bættu sig um nokkur högg milli hringja, Íris Katla um 5 högg og Stefanía Kristín um 3 högg. Íris Katla var á 2. besta skori „The Royals, sem hafnaði í 6. sætinu í liðakeppninni af 18 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 25. 2014 | 10:30

Champions Tour: Maggert sigraði í Mississippi – Frábær ás Nick Price!

Það var Jeff Maggert sem sigraði á Champions Tour móti s.l. helgi í Mississippi Gulf Resort Classic. Maggert lék hringina 3 á samtals 11 undir pari, 205 höggum (68 69 68) og átti 2 högg á þann sem varð í 2. sæti Bill Andrade, sem lék á samtals 9 undir pari, 207 höggum. Sjá má kynningu Golf 1 á Jeff Maggert með því að SMELLA HÉR:  Þriðja sætinu deildu síðan þýski golfsnillingurinn Bernhard Langer og Jay Haas (pabbi Bill Haas) á samtals 8 undir pari, hvor og í 5. sæti varð sigurvegari síðustu helgi Fred Couples á samtals 7 undir pari. Eitt flottasta högg mótsins var ás Nick Price, sem Lesa meira