Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 30. 2014 | 05:30
Enn 13 dagar til að bjóða í kylfur Ben Hogan frá 1953 – hæsta boð nú kr. 2.360.000,-

Golf 1 var nú fyrr í mánuðnum með frétt um uppboð Green Jacket Auctions á járnakylfum eins besta kylfings sögunnar, Ben Hogan frá 1953. Sjá með því að SMELLA HÉR: Árið 1953 var ár mikillar velgengni Hogan, en hann vann m.a. 3 risamót á því ári (The Masters, Opna breska og Opna bandaríska); einungis leiðindatímasetning á PGA Championship, sem fór fram á sama tíma og Opna breska, á því ári, kom í veg fyrir að Hogan næði Grand Slam þ.e. tækist að sigra í öllum 4 risamótunum á sama ári. „Green Jacket Auctions“ er með kylfur Hogan á uppboði, og stendur uppboðið til kl. 8 ET í Bandaríkjunum (að staðartíma) 12. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 30. 2014 | 04:00
PGA: Bowditch efstur – Hápunktar 3. dags

Steven Bowditch var á 3 undir pari eftir fyrstu tvær spiluðu holurnar á 3. hring Valero Texas Open, sem fram fer á TPC San Antonio. Samtals er Bowditch á 12 undir pari, 204 höggum. Andrew Loupe (70) og Matt Kuchar (65) deila 2. sætinu fyrir lokahringinn, báðir 3 höggum á eftir Bowditch á samtals 9 undir pari, 207 höggum. Pat Perez er síðan í 4. sæti á samtals 8 undir pari og Kevin Na í 5. sæti á samtals 7 undir pari. Örn Bowditch á 2. holu var örn nr. 2 í mótinu í þessari viku. Hann setti niður örn af 83 yarda (76 metra) færi á par-4, 12 holunni á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 29. 2014 | 22:00
Gerina Piller 29 ára

Golf 1 gleymdi að telja bandarísku Solheim Cup stjörnuna Gerinu Piller meðal afmæliskylfinga dagsins en hér verður bætt úr. Gerina á afmæli 29. mars 1985 og er því 29 ára í dag. Hún er fædd í Roswell, Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum. Gerina er gift Martin Piller, sem lék á Web.com túrnum og er oft kaddý hjá henni. Gerina útskrifaðist frá University of Texas í El Paso, en hún spilaði öll 4 ár sín þar með golfliði skólans og vann 4 sinnum í einstaklingskeppni þar. Gerina gerðist atvinnukylfingur 2007, en fyrstu 3 árin spilaði hún á Futures Tour. Á LPGA komst hún ekki fyrr en 2010 en hefir enn sem komið er Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 29. 2014 | 21:45
Golfgrín á laugardegi

Nr. 1 Golf er leikur stærðfræði. Þetta er formúlan sem hjálpar leik ykkar, SH=txF2. Þessi formúla sýnir líkurnar á slæmu höggi (SH), en t(ölulegur) fjöldi þeirra eykst sinnum annað veldið af F (ólkinu) sem er að horfa á. Nr. 2 Hér eru nokkrar golftilvitnanir sem hafðar eru eftir kylfingnum Dave Hill (f. 20. maí 1937 – d. 27. september 2011): a) Golf is the hardest game in the world to play, and the easiest to cheat at. b) The golf swing is like sex. You can’t be thinking about the mechanics of the act while you are performing. c) My game is so bad I gotta hire three caddies. One Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 29. 2014 | 20:30
GKJ: Axel Jóhann og Jón Hilmar sigruðu á Vormóti I

Í dag fór fram í sól og blíðu á Hlíðavelli, í Mosfellsbæ fyrsta stórmót ársins á höfuðborgarsvæðinu, Vormót 1. Í mótið voru skráðir 143 kylfingar og luku 139 keppni, 127 karlkylfingar og 12 kvenkylfingar. Golf 1 var á staðnum og má hér sjá litla myndaseríu frá þessu fyrsta móti SMELLIÐ HÉR: Veitt voru verðlaun fyrir 3 efstu sætin í annars vegar punktakeppni með forgjöf og hins vegar höggleik án forgjafar. Í verðlaun voru úttektir hjá Golf Outlet að verðmæti kr. 20.000 (1. sæti); 15.000 (2. sæti) og 10.000 (3. sæti). Sigurvegari í punktakeppni með forgjöf var Axel Jóhann Ágústsson, GR (39 punktar); í 2. sæti varð klúbbfélagi hans Örn Bermann Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 29. 2014 | 16:45
LPGA: Dori Carter efst e. 2. dag Kia Classic

Það eru 5 bandarískir kylfingar sem raða sér í efstu sætin á Kia Classic mótinu í Aviara golfklúbbnum í Carlsbad, Kaliforníu e. 2. dag mótsins. Í efsta sæti er Dori Carter á samtals 10 undir pari, 134 höggum (70 64). Í 2. sæti, tveimur höggum á eftir á samtals 8 undir pari, 136 höggum eru þær Stacy Lewis og Cristie Kerr. Í 4. sæti er mexíkósk-bandaríski kylfingurinn Lisette Salas, sem oft er ofarlega í mótum en á enn eftir að sigra á fyrsta LPGA mótinu sínu. Fimmta sætinu deila síðan þær Tiffany Joh frá Bandaríkjunum og Marijo Uribe frá Kólombíu, báðar á samtals 6 undir pari, hvor. Meðal þeirra sem Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 29. 2014 | 16:30
Afmæliskylfingur dagsins: Toggi Bjöss —— 29. mars 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Toggi Bjöss, en hann er fæddur 29. mars 1944 og á því 70 ára stórafmæli í dag!!! Komast má á facebook síðu Togga til þess að óska honum til hamingju með merkisafmælið hér að neðan Toggi Bjöss F. 29. mars 1944 (70 ára stórafmæli!!! – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Ernest Joseph (E. J.) „Dutch“ Harrison f. 29. mars 1910 – 19. júní 1982; Sue Fogleman, 29. mars 1956 (58 ára) spilaði á LPGA; Gunnar Páll Þórisson GKG, 29. mars 1961 (53 ára); Kirk Allan Triplett, 29. mars 1962 (52 ára); Lori Atsedes 29. mars 1964 (50 ára stórafmæli!!!); Gerina Piller, 29. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 29. 2014 | 11:45
Sandgerði eða Þorlákshöfn? Fullt í vormót I hjá GKJ

Nú er veðrið hagstætt kylfingum á þessu umhleypingasama vori og hægt að spila golf. Tveir klúbbar, báðir í um 1 klst fjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu hafa auglýst að hægt sé að spila inn á sumargrín nú um helgina; það er hægt á Kirkjubólsvelli í Sandgerði og á Þorlákshafnarvelli í Þorlákshöfn. Í fréttatilkynningu frá GSG frá því í morgun sagði þannig: „Í morgun kl 07:00 var mjög gott veður á Kirkjubólsvelli. Vindur NA 4 metrar hiti 4° og úrkomulaust. Enginn snjór er á Kirkjubólsvelli í Sandgerði og opið er inn á sumargrín. Vinsamlegast skráið ykkur á golf.is, en vallargjaldið er einungis kr. 2.000 og kr. 3.000 fyrir hjón.“ Í fréttatilkynningu frá GÞ segir: „ Á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 29. 2014 | 11:30
Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn á 78 – Berglind á 79 fyrsta dag Bryan mótsins

Íslandsmeistarinn okkar í holukeppni 2013, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og golflið Wake Forest og klúbbmeistari kvenna í GR 2013, Berglind Björnsdóttir og golflið UNCG,hófu í gær leik á Bryan National Collegiate mótinu. Mótið fer fram á Bryan Park Champions golfvellinum í Browns Summit, Norður-Karólínu. Þátttakendur eru 96 frá 19 háskólum. Berglind lék fyrsta hring á 7 yfir pari, 79 höggum en Ólafía Þórunn var högginu betri á 6 yfir pari, 78 höggum. Ólafía Þórunn er á 3 besta skori Wake Forest og telur það því í að koma liðinu í 14. sætið, sem það er í, sem stendur og Berglind var á 2. besta skori liðs síns, en lið hennar UNCG vermir botnssætið. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 29. 2014 | 11:00
Kylfingurinn Babe Didrikson Zaharias – II. grein

Hér biritst að nýju ein fyrsta golfgrein greinarhöfundar (þýðing af Wikipedia), en hún birtist fyrst með góðfúslegu leyfi hennar á iGolf, fyrir rúmum 4 árum, fimmtudaginn 21. janúar 2010. Þetta er önnur greinin í röð þriggja golfgreina um einn fremsta kvenkylfing allra tíma Mildred „Babe“ Didrikson Zaharias. Hér fer 2. greinin og sú 3. og síðasta verður birt á morgun: Babe Didrikson fæddist 26. júní 1911. Árið 1935 hóf hún að spila golf, þá 24 ára, sem er nokkuð seint fyrir afrekskylfing, en þetta varð þó sú íþróttagrein, sem hún varð hvað frægust fyrir. Henni, sem eitt sinn var neitað um áhugamannatitil, keppti í janúar 1938 (þá 27 ára) á Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

