Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 30. 2015 | 20:00
Nordic Golf League: Birgir Leifur lauk leik T-12 í Danmörku

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG endaði í 12.–15. sæti á Nordic League atvinnumótaröðinni sem fram fór um helgina. Kitchen Joy meistaramótið fór fram á H. C. Andersen vellinum í Danmörku. Birgir, sem er sexfaldurÍslandsmeistari í golfi, lék hringina þrjá á -5 samtals (70-72-69). Hann var sjö höggum á eftir Svíanum Per Barth sem sigraði á -12 samtals. Birgir Leifur er með takmarkaðann keppnisrétt á næststerkustu atvinnumótaröð Evrópu, Áskorendamótaröðinni, og bíður hann eftir tækifæri til þess að fá að spreyta sig á þeirri mótaröð. Hann er á biðlista fyrir hvert einasta mót en samkvæmt upplýsingum á heimasíðu Europeantour er Birgir Leifur á meðal keppenda á Swiss Challenge sem hefst á fimmtudaginn í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 30. 2015 | 19:00
Bandaríska háskólagolfið: Guðmundur Ágúst með ás á lokaúrslitamóti NCAA

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR, gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á fyrsta keppnisdeginum á lokamóti NCAA háskóladeildarinnar í Bandaríkjunum í gær. Mótið er eitt það allra sterkasta á NCAA og aðeins bestu kylfingarnir í bandaríska háskólagolfinu komast á mótið. Guðmundur er aðeins annar Íslendingurinn í sögunni sem nær þessum áfanga en Úlfar Jónsson lék á þessu móti árið 1988 og endaði á meðal 20 efstu. Guðmundur Ágúst lék fyrsta hringinn á 78 höggum eða +6 en hann fékk nokkrar „sprengjur“ á hringnum sem gerðu honum erfitt um vik. Hann fór holu í höggi á 6. braut sem er rétt um 165 metrar að lengd og á þeim Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 30. 2015 | 18:00
LET Access: Valdís Þóra T-25 – Ólafía náði ekki niðurskurði í Noregi

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni er í 25.–32. sæti að loknum öðrum keppnisdegi af alls þremur á Drøbak Ladies meistaramótinu sem fram fer í Noregi. Mótið er hluti af LET Access atvinnumótaröðinni sem er næst sterkasta atvinnumótaröð kvenna í Evrópu. Valdís hefur leikið tvo fyrstu hringina á 147 höggum (73-74) +7 samtals. Lokahringurinn fer fram á morgun, sunnudag. Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR komst ekki í gegnum niðurskurðinn á þessu móti. Íslandsmeistarinn frá árinu 2014 lék fyrsta hringinn á 80 höggum eða þann síðari á pari vallar eða 72 höggum. Það dugði ekki til þess að komast í gegnum niðurskurðinn. Ólafía ætlar að taka sér frí frá keppnisgolfinu á næstu Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 30. 2015 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Eiður Ísak Broddason – 30. maí 2015

Afmæliskylfingur dagsins er Eiður Ísak Broddason. Eldur Ísak fæddist 30. maí 1995 og á því 20 ára stórafmæli í dag! Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan Eiður Ísak Broddason (20 ára – Innilega til hamingju með afmælið!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Jocelyne Bourassa, 30. maí 1947 (68 ára); Sverrir Friðþjófsson, GR, 30. maí 1950 (65 ára); Þórir Gíslason kenndur við Burkna, 30. maí 1954 (61 árs); Michael Clayton, 30. maí 1957 (58 ára); HólaPrjónn Ingu (56 ára)Rubén Alvarez, 30. maí 1961 (54 ára); Jerry Springer, 30. maí 1968 (47 ára); Audrey Wooding, 30. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 30. 2015 | 14:00
Jafnvel atvinnumönnum getur mistekist! – Myndskeið

Hér má sjá fyndið myndskeið sem sýnir að jafnvel atvinnumnnum getur mistekist í golfinu eins og okkur hinum. Til þess að sjá myndskeiðið SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 30. 2015 | 12:00
LPGA: Pressel efst á Shoprite

Það er bandaríski kylfingurinn Morgan Pressel sem er efst eftir 1. dag Shoprite Classic mótsins. Hún lék á 5 undir pari, 66 höggum. Fjórar deila 4. sætinu þ.á.m. hin sænska Anna Nordqvist aðeins 1 höggi á eftir. Til þess að fylgjast með Shoprite Classic SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 30. 2015 | 10:00
Evróputúrinn: Fylgist með stöðunni á Opna írska hér!

Rory McIlroy nr. 1 á heimslistanum komst ekki í gegnum niðurskurð í 3 sinn í röð á Opna írska. Það eru 6 sem deila forystunni: Bernd Wiesberger, Tyrell Hatton, Rafa Cabrera Bello, Sören Kjeldsen, Chris Wood og Richie Ramsay. Þeir hafa allir spilað Royal County Down á samtals 3 undir pari. Sjá má hápunkta 2. dags með því að SMELLA HÉR: Fylgjgast má með stöðunni á Opna írska með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 30. 2015 | 09:00
PGA: 3 efstir e. 2. dag Byron Nelson mótsins þegar leik er frestað vegna myrkurs

Það eru þeir Jimmy Walker, Steven Bowditch og Jon Curran sem eru efstir og jafnir eftir 2. dag Byron Nelson mótsins í Irving, Texas. Allir hafa þeir leikið á 9 undir pari, 130 höggum; Walker (64 66); Bowditch (62 68) og Curran (67 63). Þeir hafa allir lokið hringjum sínum, en ekki tókst að ljúka leik í gær vegna myrkurs og verður því lokið við 2. hring í dag. Cameron Percy og Ryan Palmer eru aðeins höggi á eftir á 8 undir pari, en þeir hafa einnig lokið hringjum sínum. Sjá má stöðuna eftir 2. dag Byron Nelson mótsins með því að SMELLA HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 29. 2015 | 23:00
Eimskipsmótaröðin 2015: Tinna leiðir f. lokahringinn í Securitasmótinu

Tinna Jóhannsdóttir, GK leiðir fyrir lokahring Securitasmótsins úti í Eyjum. Tinna er búin að spila hringina tvo á samtals 5 yfir pari, 145 höggum (74 71). Tveimur höggum á eftir henni eru klúbbfélagar hennar Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og Anna Sólveig Snorradóttir, GK báðar á 7 yfir pari, hvor; Guðrún Brá (74 73) og Anna Sólveig (76 71). Í 4.-5. sæti eru síðan systurnar Heiða, GM og Karen Guðnadætur, GS, báðar á 10 yfir pari, hvor. Sjá má stöðu 10 efstu hér fyrir neðan: 1. Tinna Jóhannsdóttir, GK 5 yfir pari, 145 högg (74 71). 2. – 3. Anna Sólveig Snorradóttir, GK, 7 yfir pari, 147 högg (76 71). 2. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 29. 2015 | 22:00
Eimskipsmótaröðin 2015: Haraldur Franklín efstur f. lokahring Securitasmótsins

Það er Haraldur Franklín Magnús, GR, sem er efstur fyrir lokahring Securitasmótsins. Securitas mótið fer fram 29.-30. maí 2015 og voru 36 holur leiknar í dag og fer lokahringurinn fram á morgun. Hringina tvo lék Haraldur á samtals 4 undir pari, 136 höggum (71 65) og átti glæsi- seinni hring í dag upp á 5 undir pari!!! Í 2. sæti eru 5 kylfingar aðeins 1 höggi á eftir: Benedikt Sveinsson, GK (68 69); Stefán Þór Bogason, GR (68 69); Ragnar Már Garðarsson GKG, (69 68); Hlynur Geir Hjartarson, GOS (65 72) og Andri Þór Björnsson, GR (71 66). Rúnar Arnórsson, GK (70 68) og Aron Snær Júlíusson, GKG (70 68) deila 7. sætinu Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

