Ragnheiður Jónsdóttir | september. 8. 2018 | 21:00

LET: Ólafía T-7 e. 3. dag í Frakklandi

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir er að leika frábært golf á Lacoste Ladies Open de France. Hún er jöfn 2 öðrum í 7. sæti eftir 3. keppnisdag mótsins. Í dag lék Ólafía á 3 undir pari, 68 höggum. Samtals er Ólafía búin að spila á 6 undir pari, 207 höggum (71 68 68). Í efsta sæti eftir 3. dag er danski kylfingurinn Nanna Koerstz Madsen á samtals 10 undir pari, 203 höggum (69 65 69) og munar því aðeins 4 höggum á Ólafíu Þórunni og þeirra sem er efstí mótinu. Til þess að sjá stöðuna á Lacoste Ladies Open de France að öðru leyti SMELLIÐ HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 8. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ólafur William Hand – 8. september 2018

Það er Ólafur William Hand, sem er afmæliskylfingur dagsins. Ólafur William er fæddur 8. september 1968 og á því 50 ára stórafmæli í dag. Ólafur William Hand – Innilega til hamingju með 50 ára stórafmælið!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Ólína Þorvarðardóttir, 8. september 1958 (60 ára STÓRAFMÆLI – Innilega til hamingju með merkisafmælið1!!); Margrét Elsa Sigurðardóttir, 8. september 1966 (52 ára); Þórður Rafn Gissurarson, 8 . september 1987 (31 árs);  Cyna Rodriguez, frá Filippseyjum (spilar á LPGA), 8. september 1991 (27 ára) ….. og …… Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 8. 2018 | 12:00

PGA: Schauffele efstur í hálfleik á BMW Championship

Það er Xander Schauffele sem er efstur í hálfleik á BMW Championship. Schauffele er búinn að spila á samtals 13 undir pari, 127 höggum (63 64). Í 2. sæti eru Rory McIlroy og Justin Rose, báðir á 11 undir pari, 129 höggum; McIlroy (62 69) og Rose (66 63). Til þess að sjá stöðuna á BMW Championship að öðru leyti SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá hápunkta 2. dags á BMW Championship SMELLIÐ HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 8. 2018 | 10:00

Ísland lauk keppni í 16. sæti á EM kvenna 50+

Íslenska kvennalandsliðið 50+ lauk keppni í 16. sæti á EM kvenna. Íslenska kvennalandsliðið var skipað þeim, Önnu Snædísi Sigmarsdóttur, Ásgerði Sverrisdóttur, Málfríði Guðnadóttur, Steinunni Sæmundsdóttur, Svölu Óskarsdóttur og Þórdísi Geirsdóttur. Ísland vann lokaleikina gegn Slóveníu og Póllandi 5:0. Sjá má lokastöðuna og úrslit einstakra leikja í mótinu með því að SMELLA HÉR:  Lokastaðan var eftirfarandi: 1. sæti Þýskaland 2. sæti Svíþjóð 3. sæti Spánn 4. sæti Belgía 5. sæti Frakkland 6. sæti England 7. sæti Írland 8. sæti Holland 9. sæti Ítalía 10. sæti Sviss 11. sæti Skotland 12. sæti Tékkland 13. sæti Austurríki 14. sæti Noregur 15. sæti Finnland 16. sæti Ísland 17. sæti Slóvenía 18. sæti Pólland

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 8. 2018 | 07:00

Bandaríska háskólagolfið: Saga stóð sig vel í 1. móti sínu

SagaTraustadóttir, GR er gengin til liðs við Colorado State University (CSU) og keppti í sínu fyrsta móti 17.-19. september sl. Það var í Col Wollenberg´s Ptarmigan Ram Classic, sem fram fór í Fort Collins, Colorado. Sunna lék á samtals 10 yfir pari, 226 höggum og lék sífellt betur í mótinu (80 76 70) var virkilega farin að finna sig á lokahringnum. Sunna lék sem einstaklingur í mótinu og varð T-28, en alls tóku 75 þátt frá 13 háskólum. Lið CSU lenti í 6. sæti. Til þess að sjá lokastöðuna á Col Wollenberg´s Ptarmigan Ram Classic SMELLIÐ HÉR:  Næsta mót CSU er 24. september n.k.

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 8. 2018 | 07:00

Áskorendamótaröð Evrópu: Axel og Haraldur úr leik í Englandi

Atvinnukylfingarnir Axel Bóasson og Haraldur Franklín Magnús eru úr leik á Bridgestone Challenge, en mótið er hluti af Áskorendamótaröð Evrópu. Mótið fer fram á golfvelli Luton Hoo hótelsins, í Bedfordshire í Englandi, dagana 6.-9. september. Axel lék á samtals 2 undir pari, 140 höggum ( 68 72) og munaði aðeins 1 höggi að hann næði niðurskurði sem var miðaður við samtals 3 undir pari eða betra eftir 2 hringi. Haraldur Franklín lék á samtals sléttu pari, 142 höggum (73 69) og er einnig úr leik eins og segir. Sjá má stöðuna á Bridgestone Challenge með því að SMELLA HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 7. 2018 | 18:00

Evróputúrinn: Tanihara á toppnum í Crans e. 2. dag

Það er japanski kylfingurinn Hideto Tanihara, sem leiðir í hálfleik á Omega European Masters. Tanihara er búinn að spila fyrstu 2 hringina í mótinu á samtals 9 undir pari, 131 höggi (65 66). Í 2. sæti 2 höggum á eftir Tanihara eru þeir Doug Ghim frá Bandaríkjunum, Daninn Lukas Bjerregaard og Matthew Fitzpatrick frá Englandi. Til þess að sjá hápunkta 2. dags á Omega Europan Masters SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá stöðuna á Omega Europan Masters SMELLIÐ HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 7. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Louise Suggs ——– 7. september 2018

„Golf er eins og ástarævintýri. Ef þú tekur það ekki alvarlega, þá er ekkert gaman að því, en ef þú gerir það þá mun hjarta þitt bresta. Forðist hjartabresti en daðrið við möguleikann,” er haft eftir einum helsta frumkvöðli LPGA-mótaraðarinnar, Louise Suggs. Það er Louise Suggs, sem er afmæliskylfingur dagsins. Mae Louise Suggs fæddist 7. september 1923 í Atlanta, Georgia og hefði því orðið 95 ára dag! Louise Suggs lést 7. ágúst 2015. Hún bjó á Delray Beach í Flórída. Bob Hope uppnefndi þessa 1,68 metra háu konu “Miss Sluggs”, sem er ekki sluggsari í beinni þýðingu á íslensku heldur eitthvað meira í áttina að sleggju, því Louise Suggs var Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 7. 2018 | 15:00

LET: Ólafía T-17 – Valdís úr leik

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Valdís Þóra Jónsdóttir eru báðar á meðal keppenda á LET Evrópumótaröðinni í þessari viku. Mótið hófst á fimmtudag og heitir það Lacoste Ladies Open de France. Keppt er á Golf du Medoc – Chateaux Course. Keppnishringirnir eru alls fjórir. Sjá má stöðuna á Lacoste Ladies Open de France með því að SMELLA HÉR:  Ólafía Þórunn er jöfn 4 öðrum í 17. sæti þegar keppni er hálfnuð, á -3 samtals. Ólafía lék fyrsta hringinn á pari vallar eða 71 höggi. Hún lék á -3 í dag eða 68 höggum. Valdís Þóra er úr leik en hún lék á -3 í dag eða 68 höggum og bætti sig Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 6. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ragnhildur Kristinsdóttir – 6. september 2017

Afmæliskylfingur dagsins er Ragnhildur Kristinsdóttir . Hún er fædd 6. september 1997 og á því 21 árs afmæli í dag! Ragnhildur er afrekskylfingur í GR og búin að standa sig hreint frábærlega á mótum nú í ár. Ragnhildur stundar nám í Bandaríkjunum við Eastern Kentucky University og verður að sjálfsögðu með í bandaríska háskólagolfinu!!! Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska henni til hamingju með afmælið Ragnhildur Kristinsdóttir – 21 árs – Innilega til hamingju með afmælið!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Dow Finsterwald, 6. september 1929 (89 ára); Jóhann Smári Jóhannesson, 6. september 1935 (83 ára); Sigríður Margrét Gudmundsdottir Lesa meira