PGA: Koepka sigurvegari CJ Cup
Það var Brooks Koepka, sem stóð uppi sem sigurvegari á CJ Cup. Sigurskor Koepka var 21 undir pari, 267 högg (71 65 67 64) og átti hann 4 högg á næsta mann, landa sinn Gary Woodland, sem varð í 2. sæti. Fyrir sigur sinn í mótinu hlaut Koepka $1,710,000, sem er hæsta verðlaunafé það sem af er 2018-2019 keppnistímabilsins á PGA Tour. Til þess að sjá lokastöðuna á CJ Cup SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 4. dags á CJ Cup SMELLIÐ HÉR:
Bandaríska háskólagolfið: Hlynur og félagar í 15. sæti e. 1. dag á Tavistock
Hlynur Bergsson GKG og félagar í North Texas taka þátt í Tavistock Collegiate Invitational, sem fram fer í Windemere, Flórída, dagana 21.-23. október. Þátttakendur eru 75 frá 15 háskólum. Hlynur lék 1. hring á 7 yfir pari, 79 höggum og er T-67 eftir 1. dag. North Texas, lið Hlyns, er í 15. og síðasta sæti í liðakeppninni eftir 1. dag. Ekki gæfuleg byrjun en 2 keppnisdagar eftir! Til þess að sjá stöðuna á Tavistock Collegiate Invitationl eftir 1. dag SMELLIÐ HÉR:
Afmæliskylfingur dagsins: Hrafn Guðlaugsson – 21. október 2018
Það er Hrafn Guðlaugsson, sem er afmæliskylfingur dagsins. Hrafn er fæddur 21. október 1990 og á því 28 ára afmæli í dag. Hann er klúbbmeistari Golfklúbbsins Setbergs (GSE) í Hafnarfirði 2012, 2014 og nú í ár 2018. Sjá má viðtal Golf1, sem tekið var við Hrafn í byrjun árs 2013 með því að SMELLA HÉR: Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Hrafni til hamingju með afmælið hér að neðan: Hrafn Guðlaugsson (28 ára – Innilega til hamingju með daginn!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Willy Anderson, f. 21. október 1879 – d. 25. október 1910 – Anderson er m.a. frægur fyrir að Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Kristján Þór Kristjánsson – 20. október 2018
Það er Kristján Þór Kristjánsson, sem er afmæliskylfingur dagsins. Kristján Þór fæddist 20. október 1967 og á því 51 árs afmæli í dag. Hann er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði og er kvæntur Helgu Loftsdóttur. Komast má á facebooksíðu Kristjáns Þórs til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan Kristján Þór Kristjánsson (51 árs – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Tsuneyuki „Tommy“ Nakajima, 20. október 1954 (64 ára); David Lynn, 20. október 1973 (45 ára); Veronica Zorzi, 20. október 1980 (38 ára); Danielle Kang, 20. október 1992 (26 ára) og Þórir Jakob Olgeirsson (27 ára) …… og Lesa meira
Evróputúrinn: Birgir Leifur T-55 e. 1. hring á Valderrama Masters
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, tekur þátt í móti vikunnar á Evróputúrnum, sem er Valderrama Masters. Eftir 1. hring er Birgir Leifur T-55, en hann lék hringinn á 2 yfir pari, 75 höggum. Þegar leik var frestað á 2. hring vegna veðurs var Birgir Leifur búinn að ljúka leik á 12. holu (en hann hóf leik á 1. holu á 2. hring) og var búinn að fá 3 fugla og 1 skolla. Það er vonandi að það takist að ljúka 2. hring í dag annars er hætta á að allt mótið fari úr skorðum. Sjá má stöðuna á Valderrama Masters með því að SMELLA HÉR:
PGA: Koepka m/4 högga forystu á CJ Cup
Það er bandaríski kylfingurinn Brooks Koepka sem tekið hefir forystu eftir 2. dag á CJ Cup, sem er mót vikunnar á PGA Tour. Koepka hefir spilað á samtals 13 undir pari, 203 höggum (71 65 67). Í 2. sæti eru Ian Poulter og Scott Piercy, báðir á 9 undir pari, hvor. Sjá má hápunkta í leik Koepka á 3. hring CJ Cup með því að SMELLA HÉR: Sjá má hápunkta 3. hrings CJ Cup með því að SMELLA HÉR: Til þess að sjá stöðuna á CJ Cup SMELLIÐ HÉR:
Bandaríska háskólagolfið: Arnar Geir lauk keppni í 2. sæti á Lindenwood-Belleville
Arnar Geir Hjartarson, GSS og félagar í Missouri Valley tóku þátt í Lindenwood-Belleville Fall Invite, sem fram fór 15.-16. október s.l. Mótið fór fram í Stonewolf Country Club í Belleville, Illinois. Þátttakendur voru 52 frá 9 háskólum. Arnar Geir náði þeim glæsilega árangri að landa 2. sætinu í einstaklingskeppninni, sem er besti árangur hans til þessa í bandaríska háskólagolfinu!!! Arnar Geir var á skori upp á 3 yfir pari, 224 högg (76 75 73). Missouri Valley lið Arnars Geirs varð í 1. sæti í mótinu í liðakeppninni!!! Næsta mót Missouri Valley verður á vorönn.
Bandaríska háskólagolfið: Egill Ragnar og félagar í 3. sæti
Egill Ragnar Gunnarsson, GKG og félagar í Georgia State tóku þátt í Autotrader Collegiate Classic mótinu, sem fram fór 15.-16. október sl. í Berkley Hills CC í Duluth, Georgia. Þátttakendur voru 75 frá 12 háskólum. Egill Ragnar varð T-40 í einstaklingskeppninni með skor upp á 3 yfir pari, 219 högg (74 75 70). Lið Georgia State varð í 3. sæti í liðakeppninni. Til þess að sjá lokastöðuna á Autotrader Collegiate Classic SMELLIÐ HÉR: Næsta mót Egils Ragnars og Georgia State er Tiger Inv. sem fram fer 24. október n.k.
Afmæliskylfingur dagsins: Sara Margrét Hinriksdóttir – 19. október 2018
Það er Sara Margrét Hinriksdóttir, sem er afmæliskylfingur dagsins. Hún er fædd 19. október 1996 og á því 22 ára afmæli í dag. Sara Margrét Hinriksdóttir – Innilega til hamingju með 22 ára afmælið!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Stefán Már Stefánsson, prófessor, 19. október 1938 (80 ára STÓR- AFMÆLI!!!); Hjörtur Sigurðsson, GA, 19. október 1956 (62 árs) ; Dawn Coe-Jones, 19. október 1960 (58 ára); Rúna Baldvinsdóttir, 19. október 1960 (58 ára); Brian H Henninger, 19. október 1963 (55 ára); Gaukur Kormáks, 19. október 1970 (48 ára); Kristvin Bjarnason, GB, 19. október 1971 (47 ára); Jamie Donaldson, 19. október 1975 (43 árs), Louis Oosthuizen, Lesa meira
PGA: Frábær ás Casey á CJ Cup!
Enski kylfingurinn Paul Casey var með frábæran ás á móti vikunnar á PGA Tour, CJ Cup, Ásinn kom á 2. hring á par-3 7. holunni á THE CJ CUP @ NINE BRIDGES 2018. Höggið var 176 yarda eða 161 metra langt. Sjá má höggið góða með því að SMELLA HÉR: Sjá má stöðuna á CJ Cup með því að SMELLA HÉR:










