Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 9. 2019 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Ingibergur Einarsson – 9. febrúar 2019

Afmæliskylfingur dagsins er Ingibergur Einarsson, en hann er fæddur 9. febrúar 1955 og á því 64 ára afmæli í dag. Ingibergur er í Golfklúbbi Vestmannaeyja (GV). Komast má á facebooksíðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með afmælið Ingibergur Einarsson (64 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Virginia Van Wie, f. 9. febrúar 1909 – d. 18. febrúar 1997, Sandy Lyle, 9. febrúar 1958 (61 árs) og Mark Tullo, 9. febrúar 1978 (41 árs); Anna Rossi, 9. febrúar 1986 (32 ára); Gary Stal, 9. febrúar 1992 (27 ára) Golf 1 óskar öllum kylfingum sem eiga Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 9. 2019 | 12:00

Verstu 20 afsakanirnar fyrir lélegum leik (1/2)

Afsakanir í golfi hafa verið til staðar í árhundruðir. Hvort heldur kylfingurinn er atvinnumaður sem segist hafa sofið á of mjúkri dýnu eða áhugamaður sem kennir um grastegundinni á golfvellinum; allt eru þetta fremur lélegar afsakanir vegna þess að menn vilja bara ekki hafa fyrir satt að þennan dag séu þeir einfaldlega ekki betri. Reyndar telja sumir sálfræðingar þetta gott að verja sjálfið fyrir hnekkjum, sem það kann að bíða af slæmum hring, sem allir eiga af og til … og síðan er kylfingum ráðlagt að gleyma slæma hringnum og gera betur næst. Hér er samsafn 20 lélegra afsakana, sumar sem þið hafið e.t.v. heyrt um … og aðrar sem Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 9. 2019 | 07:00

PGA: 4 í forystu í hálfleik á Pebble Beach

Það eru þeir Paul Casey, Lucas Glover, Scott Langley og Phil Mickelson sem leiða í hálfleik á Pebble Beach Pro-Am mótinu. Þeir hafa allir spilað á samtals 10 undir pari, hver. Fimmta sætinu deila síðan sá sem á titil að verja, Jason Day og fyrrverandi nr. 1 á heimslistanum, Jordan Spieth. Til þess að sjá stöðuna á Pebble Beach Pro Am SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá hápunkta 2. dags á Pebble Beach Pro Am SMELLIÐ HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 8. 2019 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Stefán Ottó Kristinsson – 8. febrúar 2019

Afmæliskylfingur dagsins er Stefán Ottó Kristinsson.  Hann er fæddur 8. febrúar 1997 og á því 22 ára afmæli í dag. Komast má á facebooksíðu Stefáns Ottó til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan Stefán Ottó Kristinsson – Innilega til hamingju með afmælið!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a. : Guðríður Ólafsdóttir; 8. febrúar 1950 (69 ára) Friðrik Friðriksson, GKG, fgj. 17.2, 8. febrúar 1957 (62 ára); Rósa Guðmundsdóttir, 8. febrúar 1963 (56 ára); Ari Arsalsson, 8. febrúar 1973 (46 ára) Arnbjörg Hlíf Valsdóttir, 8. febrúar 1976 (43 ára); Paige MacKenzie, 8. febrúar 1983 (36 ára); Kelly Tidy, 8. febrúar 1992 (27 Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 8. 2019 | 10:00

Nýju stúlkurnar á LPGA 2019: Cheyenne Knight (31/58)

Hér verða líkt og á undanförnum árum kynntar þær stúlkur sem hlutu kortin sín á LPGA fyrir 2019 keppnistímabilið. Þetta eru þær sem urðu í 45. sæti eða voru jafnar í 45. sæti á lokaúrtökumóti LPGA og efstu 10 á peningalista 2. deildarinnar þ.e. Symetra Tour. Í ár voru 48 stúlkur sem komust á LPGA gegnum lokaúrtökumótið og síðan einnig þær 10, sem efstar urðu á peningalista Symetra Tour eða alls 58 stúlkur. Hér hafa 10 efstu á peningalista Symetra Tour verið kynntar sem og þær sem jafnar voru í 45. sætinu á lokaúrtökumóti LPGA, en það eru þær Karen Chung, frá Bandaríkjunum; P.K. Kongkraphan frá Thaílandi; Louise Strahle frá Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 8. 2019 | 09:00

Evróputúrinn: Heimamenn í efstu sætum í hálfleik ISPS Handa Vics Open

Það eru áströlsku kylfingarnir Nick Flanagan og Jason Scrivener sem deila efsta sæti á ISPS Handa Vics Open. Báðir hafa spilað á samtals 14 undir pari, 130 höggum; Scrivener (64 66) og Flanagan (62 68). Reyndar eru ástralskir kylfingar í 5 efstu sætunum; því í 3. sæti er Wade Ormsby á samtals 13 undir pari og 4. sætinu deila þeir Matt Jager og Brad Kennedy á 12 undir pari. Það er ekki fyrr en í 6. sæti sem kylfingar annars þjóðernis sjást þ.e. Clément Sordet frá Frakklandi og David Law frá Skotlandi og reyndar enn annar Ástralinn, Nick Cullen, en allir þessir 3 hafa spilað á 11 undir pari. Sjá Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 8. 2019 | 08:00

PGA: Huey Lewis m/ högg dagsins á Pebble Beach

Það var popparinn Huey Lewis, sem átti högg 1. dags á Pebble Beach Pro-Am. Hann sló beint úr flatarglompu ofan í holu á par-5 18. holu Pebble Beach Golf linksaranum. Huey Lewis er fæddur 5. júlí 1950 og því 68 ára. Hann hefir átt smelli á borð við „If this is it“ (1983); „The Power of Love“ (1985) og „Stuck with you„, „Hip to be Square“ og „Jacobs Ladder“ (1986), af plötunni Fore! Sjá má högg dagsins hjá Huey Lewis með því að SMELLA HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 8. 2019 | 02:00

LPGA: Valdís Þóra úr leik á ISPS Handa Vic Open í Ástralíu

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr GL var meðal 156 keppenda á móti vikunnar á LPGA; ISPS Handa Vic Open í Ástralíu. Margir af bestu kvenkylfingum heims eru meðal keppenda. Eftir 1. dag var Valdís Þóra fyrir miðjan hóp eftir ágætis hring upp á slétt par, 72 högg. Og það var parið sem þurfti að vera á samtals eftir 2 hringi, en því miður náði Valdís Þóra ekki að fylgja eftir fínum 1. hring og lék á 2 yfir pari, 75 höggum (á Creek golfvellinum, sem er par-73) og er því miður úr leik. Valdís Þóra fékk líkt og fyrri hringinn 3 fugla og 3 skolla en því miður líka 1 Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 8. 2019 | 01:00

PGA: Gay og Langley í forystu á Pebble Beach – Hápunktar 1. dags

Tveir fremur óþekktir kylfingar Brian Gay og Scott Langley eru í forystu eftir 1. dag Pebble Beach Pro-Am mótsins, sem er mót vikunnar á PGA Tour. Sjá má nýlega kynningu Golf 1 á Scott Langley með því að SMELLA HÉR:  Brian Gay hefir áður sigrað á PGA Tour, þ.e. fyrir 6 árum á Humana Challenge, þegar hann hafði best í 3 manna bráðabana. Venju skv. er spilað á 3 völlum í mótinum: Pebble Beach, Spyglass Hills og Monterey Peninsula. Gay og Langley voru að spila Monterey Peninsula og báðir komu í hús á glæsilegum 7 undir pari, 64 höggum. Hvorki fleiri né færri en 6 kylfingar deila 3. sætinu, 1 Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 7. 2019 | 18:30

Golfreglur: R&A og USGA skýra „kaddýregluna“

Stjórnsýsla golfsins R&A á St. Andrews og bandaríska golfsambandið, USGA hafa tilkynnt að nýju reglunni sem varðar kaddýa sem hjálpa kylfingum sínum að stilla sér upp hafi opinberlega verið breytt. Reglubreytingin kemur í kjölfar þess að kínverski kylfingurinn Haotong Li fékk á sig 2 högga víti vegna brots á reglunni í Dubai og Denny McCarthy í Phoenix á PGA Tour þ.e. á Waste Management Phoenix Open, en hvorutveggja hlaut mikla gagnrýni bæði á golf- og félagsmiðlum, bæði frá golfáhangendum, sem atvinnukylfingum. Nýja reglan sem hér er nefnd „kaddýreglan“ segir að kylfusveinar megi ekki standa beint fyrir aftan kylfinga sína „þegar leikmaður tekur sér stöðu til að taka púttstroku og þar til Lesa meira