Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn varð í 20. sæti á Darius Rucker Intercollegiate
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Wake Forest, lauk leik á Darius Rucker Intercollegiate, sem fram fór í Long Cove Club á Hilton Head Island, í Suður-Karólínu. Mótið var stytt í 36 holu mót vegna óveðurs. Ólafía Þórunn spilaði seinni hringinn á 75 höggum, líkt og fyrri daginn og lauk því leik á +8 yfir pari, samtals 150 höggum (75 75) og deildi 20. sæti með 6 öðrum. Ólafía spilaði best allra í Wake Forest. Wake Forest deildi 9. sætinu í liðakeppninni með Tennessee háskóla. Í 1. sæti og 2. sæti á mótinu urðu tveir liðsmenn Alabama háskóla, sem fyrir vikið varð efstur í liðakeppninni: þær Stephanie Meadow sem varð í Lesa meira
Nýju strákarnir á PGA Tour: nr. 21 – Marco Dawson
Nú er komið að topp-10, þ.e. af þeim 29 strákum sem hlutu kortið sitt á PGA Tour 2012, eftir að hafa orðið efstir í Q-school PGA í La Quinta í Kaliforníu í desember á s.l. ári. Næst verða kynntir þeir 3 kylfingar, sem deildu 8. sætinu: T8 T19 Bob Estes (NT) -5 F -13 67 73 69 74 69 67 419 T8 T5 Brian Harman (NT) -2 F -13 69 71 67 74 68 70 419 T8 1 Marco Dawson (NT) 4 F -13 73 68 67 67 68 76 419 Í gær var Brian Harman kynntur og í dag er það Marco Dawson. Hann leiddi fyrir lokadaginn á Q-school PGA, en afleitur hringur Lesa meira
GO: Hildur og Sólveig efstar á púttmótaröð GO-kvenna
Á heimasíðu Golfklúbbsins Odds gefur að finna eftirfarandi frétt um púttmótaröð GO-kvenna: (Mánudaginn, þann 27. febrúar) lauk 8. umferð í pútt mótaröð GO kvenna og var spilamennskan hreint frábær því lægsti hringurinn var 28 högg og hæsti 33. Þó fréttist af einum hring sem var uppá 25 högg en sá var leikinn utan mótsins og því ekki marktækur. Efstu konur kvöldsins voru: Nafn Pútt sæti Hildur Pálsdóttir 28 1.-2. Sólveig Guðmundsdóttir 28 1.-2. Ásta Fríða Baldvinsdóttir 29 3.-11. Auður Ólafsdóttir 29 3.-11. Hulda Hallgrímsdóttir 29 3.-11. Inga Engilberts 29 3.-11. Margrét Árnadóttir 29 3.-11. Margrét Ólafsdóttir 29 3.-11. Ragnheiður Ragnarsdóttir 29 3.-11. Rósa Sigtryggsdóttir 29 3.-11. Sigurveig Hafsteinsdóttir 29 3.-11. Ekki verður birt staðan í heildarkeppninni fyrr en á konukvöldinu sem haldið verður í golfskála Golfklúbbsins Odds föstudagskvöldið 16.mars 2012. Nánari upplýsingar um konukvöldið Lesa meira
GL: Veggir vélaskemmu GL komnir upp
Í gær (3. mars 2012) kom saman vaskur hópur félagsmanna GL og reistu veggi vélaskemmu GL. Veggeiningar er forsteyptar frá Smellinn og tók það um 8 klst. að reisa veggeiningarnar af þessari 500 m2 vélaskemmu. Byggingarnefnd GL þakkar þeim sem komu, fyrir aðstoðina við þetta verk enda er það ómetanlegt fyrir GL að hafa svona kraftmikinn hóp innan sinna vébanda. Framkvæmdir við vélskemmu GL eru komnar mjög vel af stað, næsti verkþáttur er að koma fyrir lögnum í gólf og steypa gólfplötu. Meðfylgjandi myndir tók Hörður Kári þegar var verið að leggja síðustu hönd á verkið í gær.
Frægir kylfingar: Donald Trump
Fasteignamógúllinn, Donald Trump (fæddur 14. júní 1946 – 65 ára) er forfallinn kylfingur með 4 í fogjöf. En hann er ekki sá eini í fjölskyldunni sem spilar golf – dóttir hans Ivanka Trump (sjá mynd) er líka vel frambærilegur kylfingur. En Donald elskar ekki bara að spila golf hann á líka fjölda golfvalla. Sjá má 10 af þeim golfvöllum sem Donald Trump á með því að smella HÉR: Donald sagði eitt sinn í viðtali við Ron Whitten, blaðamann Golf Digest að hann græddi meira á því að selja eina fasteign í New York heldur en á rekstri golfvallar heilt ár. En svo á hann að hafa bætt við: „but I get Lesa meira
Hver er kylfingurinn: Rory McIlroy? Grein nr. 1 af 8
Hver skyldi nú kylfingurinn Rory McIlroy vera? Flestir kannast við unga, brúnkrullinhærða piltinn frá Norður-Írlandi, sem þykir algert undrabarn í golfinu. Ef allt gengur að óskum verður Rory McIlroy nr. 1 á heimslistanum, þ.e. ef hann sigrar á Honda Classic í kvöld. Hér fer nú af stað 1. grein af 8 um hver kylfingurinn Rory McIlroy er: Rory fæddist 4. maí 1989 í Holywood County Down, á Norður-Írlandi og er því 22 ára. Hann er 1,75 m á hæð og 73 kg og býr til dagsins í dag á Norður-Írlandi, þ.e. í Carryduff. Rory gerðist atvinnumaður 2007 og hefir þrátt fyrir ungan aldur 5 sinnum sigrað á stærstu mótaröðum heims: Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: – Helgi Dan Steinsson 4. mars 2012
Afmæliskylfingur dagsins er Helgi Dan Steinsson, GL, en hann er fæddur 4. mars 1976 og því 36 ára í dag. Helgi byrjaði í golfi aðeins 5 ára, eftir að hafa fengið gefins golfkylfu. Helgi er núverandi klúbbmeistari GL þ.e. 2011, en hefir auk þess hlotið klúbbmeistaratitil GL 5 sinnum: 2010, 2007, 2006, 2001 og 1999. Eins hefir Helgi sigrað á ýmsum opnum mótum t.a.m. Haraldarmótinu á Akranesi 1990; Aquarius móti GB 1995; Opna Akranesmótinu 2001 og á Landsmóti lögreglumanna 2002. Helgi var í sigursveit Íslands á NM lögreglumanna 2002. Árið 2002 setti Helgi Dan vallarmet á Vestmannaeyjarvelli, lék hann á 63 höggum, -7 undir pari. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli Lesa meira
LET: Shanshan Feng sigraði á World Ladies Championship í Kína
Kínverska stúlkan Shanshan Feng sigraði á World Ladies Championship í morgun. Shanshan spilaði hringina 3 á samtals -10 undir pari, samtals 206 höggum (66 69 71). Sú sem varð í 2. sæti aðeins 2 höggi á eftir var thaílenska stúlkan Pornanong Phattlum á -9 undir pari, 207 höggum (68 69 70). Í 3. sæti varð fyrrum skólafélagi Eyglóar Myrru Óskarsdóttur, GO, sænska stúlkan Pernilla Lindberg á -8 undir pari, 208 höggum (69 70 69). Fjórða sætinu deildu Diana Luna frá Ítalíu og Li Ying Ye frá Kína á -7 undir pari, samtals 209 höggum hvor. Áhugamaðurinn ungi frá Nýja-Sjálandi, Lydia Ko deildi 27. sætinu með tveimur Rebeccum Flood (Ástralíu) og Lesa meira
PGA: Áhorfandi vildi vita hvaða sjampó Rory notaði – myndskeið: viðtal við Rory
Sigurvegari Opna bandaríska, Rory McIlroy var með hreinustu golfsýningu á PGA National í gær. Sem dæmi mætti nefna þegar hann tók 7-járn í karganum á 11. braut og 181 yarda frá pinna og sló yfir vatnshindrunina fyrir framan flötina. Boltinn lenti ekki meira en 1/2 metra frá vatninu og Rory setti síðan niður 17 metra fuglachipp. Eins bjargaði hann tveimur pörum á seinni 9 og fuglinn úr sandglompunni á par-5 18. brautinni færði skor hans niður í -4 undir par, 66 högg. Eftir fremur vindasaman hring átti hann 2 högg á keppinauta sína. Rory er aðeins 1 hring frá því að vera 2. yngsti kylfingur, á eftir Tiger Woods, að Lesa meira
PGA: Rory McIlroy kominn á toppinn fyrir lokahring Honda Classic – hápunktar og högg 3. dags
Rory McIlroy er kominn í efsta sætið á Honda Classic mótinu fyrir lokahringinn, sem spilaður verður á morgun. Rory er samtals á -11 undir pari, samtals 199 höggum (66 67 66) og hefir 2 högga forystu á þá sem næstir koma. Rory fékk 6 fugla í dag og 2 skolla. Þeir sem deila 2. sætinu eftir 3. dag eru báðir Bandaríkjamenn, Tom Gillis, sem leiddi eftir gærdaginn og nýliðinn á PGA Tour, Harris English (sem Golf 1 hefir kynnt til sögunnar sem einn af nýju strákunum á PGA Tour, smellið HÉR:) Báðir hafa Gillis og English spilað á samtals -9 undir pari, 201 höggi. Í 4. sæti eru 3 kylfingar Lesa meira







