Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 26. 2012 | 07:30

PGA: Jason Dufner efstur þegar Crown Plaza Invitational er hálfnað

Það er Jason Dufner,  sem leiðir á Crown Plaza Invitational á Colonial þegar mótið er hálfnað. Dufner skilaði skollafríum hring í gær, skorkorti þar sem á voru 6 fuglar og enginn skolli eða þaðan af verra.  Samtals er Dufner búinn að spila á samtals -11 undir pari, 129 höggum (65 64). Dufner hefir 2 högga forystu á forystumann gærdagsins, Zach Johnson, sem samtals hefir spilað á -9 undir pari, 131 höggi (64 67). Þriðja sætinu deila Tommy Gainey og Bo Van Pelt á -7 undir pari hvor. Ýmsir þekktir kylfingar komust ekki í gegnum niðurskurð, t.a.m. Ryo Ishikawa, Henrik Stenson og Davis Love III. Til þess að sjá stöðuna á Crown Plaza Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 25. 2012 | 21:00

Viðtalið: Henning Darri Þórðarson, GK.

Viðtalið í kvöld er við 13 ára strák Henning Darra Þórðarson úr Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði, sem svo sannarlega sló í gegn á Unglingamótaröð Arion  banka s.l. helgi.  Samtals spilaði Henning Darri  á -2 undir pari, samtals 142 höggum (72 70). Þetta var næstbesta skorið í öllu mótinu og kemur hjá þeim sem spilar í yngsta aldursflokknum, þ.e. flokki 14 ára og yngri stráka!  Á seinni degi mótsins átti Henning Darri  frábæran hring, þar sem hann spilaði Garðavöll á -2 undir pari, 70 höggum.  Skyldi þetta vera eini hringur Hennings Darra undir pari? Það og ýmislegt fróðlegt kemur fram í eftirfarandi viðtali: Fullt nafn: Henning Darri Þórðarson. Klúbbur: Keilir í Hafnarfirði. Hvar og hvenær Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 25. 2012 | 18:45

Rory McIlroy ergilegur og með kylfukast eftir slakan hring í Wentworth – úr leik

Ergilegur Rory McIlroy henti kylfu sinni á jörðina eftir hring fullan af skollum á opnunarhring BMW PGA Championship. Þetta er í fyrsta sinn í 7 mánuði sem Rory spilar í Evrópu og nr. 1 á heimslistanum fékk 5 skolla og skramba á +2 yfir pari 74 högga hring í  Wentworth. Lægðinni var náð á par-5 12. brautinni þegar Rory henti kylfu sinni frá sér eftir slæmt högg og enduðu ósköpin á því að hann fékk skolla 6u á par-5 una. „Þetta voru heldur betur vonbrigði,“ sagði Rory, sem er í mikilli hættu á að falla af stalli 1. sætisins á heimslistanum. „mér finnst ég vera að spilavel, ég verð bara að Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 25. 2012 | 18:15

Evróputúrinn: James Morrison leiðir þegar BMW PGA Championship er hálfnað

Það er heimamaðurinn James Morrison, sem leiðir þegar BMW PGA Championship er hálfnað. James kom inn á frábærum 64 höggum og þó nokkrir eigi eftir að ljúka hringjum sínum er enginn sem getur náð honum. Morrison fékk 6 frábæra fugla og örn á 18. braut líkt og í gær þegar hann kom inn á 68 höggum.  Samtals er Morrison því búinn að spila á -12 undir pari, samtals 132 höggum. Í 2. sæti er Luke Donald ásamt Skotanum David Drysdale, sem var annar af forystumönnum gærdagsins. Luke endurtók leikinn frá því í gær kom aftur inn á 68 höggum og báðir eru þeir Drysdale búnir að spila á 136 höggum hvor, Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 25. 2012 | 18:00

Anna K. Ágústsdóttir fór holu í höggi á Bakkakotsvelli

Anna K. Ágústsdóttir, GKJ, náði draumahöggi allra kylfinga þegar hún fór holu í höggi á 6. holu Bakkakotsvallar. Hún notaði rescue kylfu í höggið. Hjónin Anna og Gunnar V. Andrésson voru í Texasmóti og náðu öðru sæti út á þetta frábæra högg. Golf 1 óskar Önnu innilega til hamingju með draumahöggið!

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 25. 2012 | 15:11

1. mót Eimskipsmótaraðarinnar stytt í 36 holu mót – skor dagsins í dag gilda ekki

Mótsstjórn 1. móts Eimskipsmótaraðarinnar styrktu af Örninn golfverslun, tók þá ákvörðun fyrir skemmstu að stytta mótið í 36 holur vegna mikils hvassviðris. Fyrsta hring er því aflýst. Í Leirunni voru um 14 m/sek og boltar farnir að fjúka til á flötum. Skor þeirra sem fóru út í dag gilda ekki.  Enginn niðurskurður verður eftir 2 daga s.s. hefð er fyrir heldur fá allir að spila 36 holur, en spáð er betra veðri nú um helgina. Mótið gildir til stigagjafar á heimslista áhugamanna þrátt fyrir að hafa verið stytt.

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 25. 2012 | 14:50

Afmæliskylfingur dagsins: Rafael Cabrera-Bello – 25. maí 2012

Afmæliskylfingur dagsins er Rafael Cabrera-Bello frá Gran Canary. Hann fæddist í Las Palmas 25. maí 1984 og er því 28 ára í dag. Hann byrjaði að spila golf 6 ára og spilar á Evróputúrnum í dag. Hann hefir tvívegis sigrað á Evróputúrnum í fyrra skipið á Austrian Golf Open, 20. september 2009 og í það síðara á Omega Dubai Desert Classic mótinu, 12. febrúar 2012.  Rafael á eina systur, Emmu, sem spilar á Evrópumótaröð kvenna (LET= Ladies European Tour) og bæði eru þau í Maspalomas golfklúbbnum heima á Kanarí. Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:    Robert A. Shearer, 25. maí 1948 (64 ára);  Donald Albert Weibring Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 25. 2012 | 12:35

Leik frestað á 1. móti Eimskipsmótaraðarinnar í Leirunni

Í morgun hófst á Hólmsvelli í Leiru fyrsta mót á Eimskipsmótaröðinni. Fyrir rúmum hálftíma síðan (kl. 12:00) var ákveðið að fresta leik í tvo tíma enda komið hávaðarok. Skor keppenda hefir verið mjög hátt það sem af er. Mótsstjórn mun funda um framhaldið kl. 14 í dag og gefur þá út nýja tilkynningu.

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 25. 2012 | 09:15

LET: Booth, Michl, Koch og Westrup efstar eftir 1. dag Uni Credit í München

Það eru hin skoska Carly Booth, hin austurríska Stefanie Michl og sænsku stúlkurnar Carin Koch og Caroline Westrup, sem voru efstar og jafnar eftir 1. dag Uni Credit í München.  Allar léku þær á -5 undir pari á golfvelli Golfpark Gut Häusern. Í 2. sæti voru m.a. hin tékkneska Klara Spilkova og hin sænska Pernilla Lindberg, sem báðar spiluðu á -4 undir pari. Önnur umferð er hafin.  Sem stendur þegar þetta er ritað (kl. 9:15) hefir Pernilla Lindberg tekið forystuna er komin í -9 undir par eftir 9 holur á 2. hring.  Margar eiga eftir að ljúka leik og t.a.m. eiga Michl og Koch eftir að fara út. Til þess Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 25. 2012 | 07:00

PGA: Zach Johnson leiðir á Crown Plaza Invitational – hápunktar og högg 1. dags

Það er Bandaríkjamaðurinn Zach Johnson, sem leiðir eftir 1. dag Crown Plaza Invitational, sem hófst í Colonial CC, Fort Worth, Texas. Hann spilaði Colonial völlinn á -6 undir pari, 64 höggum.  Zach spilaði skollafrítt, skilaði hreinu skorkorti með 6 fuglum og 12 pörum. Öðru sætinu deila 4 kylfingar: Jason Dufner, nýliðinn Harris English, Tom Gillis og Kyle Reifers, allir á -5 undir pari, hver. Spánverjinn Sergio Garcia deilir 6. sætinu ásamt 3 öðrum á -4 undir pari, 66 höggum Til þess að sjá stöðuna á Crown Plaza Invitational eftir 1. dag smellið HÉR: Til þess að sjá hápunkta 1. dags á Crown Plaza Invitational smellið HÉR: Til þess að sjá högg Lesa meira