Íslandsbankamótaröðin (3): Íslandsmót í holukeppni unglinga hjá GO – 22. júní 2014 – Myndasería
PGA: Kevin Streelman sigraði á Travelers – Hápunktar 4. dags
Það var bandaríski kylfingurinn Kevin Streelman sem stóð uppi sem sigurvegari á The Travelers. Streelman var á samtals 15 undir pari, 265 höggum (69 68 64 64) – glæsilegt heildarskor þar sem allt var undir 70 höggum hjá honum!!! Öðru sætinu deildu Sergio Garcia og KJ Choi aðeins 1 höggi á eftir á samtals 14 undir pari. Til þess að sjá lokastöðuna á The Travelers SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta frá 4. degi The Travelers SMELLIÐ HÉR:
LPGA: Michelle Wie sigraði á Opna bandaríska
Michelle Wie sigraði í dag á Opna bandaríska kvenrisamótinu. Þetta er 1. sigur Wie á risamóti og kærkomin, því jafnan var vitnað til hennar sem „besta kvenkylfings í heimi sem aldrei hefir sigrað á risamóti.“ Sigurskor Wie var samtals 2 undir pari, 276 högg (66 68 72 70) – …. og „borðplatan“ (tabletop) greinilega að virka! Í 2. sæti var nr. 1 á Rolex-heimslistanum, Stacy Lewis 2 höggum á eftir Wie þ.e. samtals á sléttu pari (65 73 74 66). Í 3. sæti var enski kylfingurinn Stephanie Meadows á samtals 1 yfir pari og í 4. sæti, Amy Yang, frá Suður-Kóreu, á 2 yfir pari. Til þess að sjá lokastöðuna Lesa meira
Evróputúrinn: Mikka Ilonen sigraði á Opna írska – Hápunktar 4. dags
Finnski kylfingurinn Mikka Ilonen sigraði á Opna írska í dag, sem fram hefir farið á Fota Island á Írlandi. Sigurskor Ilonen var 13 undir pari, 271 högg (64 68 69 70). Aðeins einu höggi á eftir var Edoardo Molinari frá Ítalíu á 12 undir pari, 272 höggum (67 69 69 67). Þrír kylfingar deildu síðan 3. sætinu: Matthew Baldwin og Danny Willett frá Englandi og Kristoffer Broberg; allir á samtals 11 undir pari, hver. Til þess að sjá lokastöðuna á Opna írska SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 4. dags á Opna írska SMELLIÐ HÉR:
Viðtalið: Erna Guðmundsdóttir, GMS
Í gær, á Jónsmessudag, var Golf 1 á ferð í Stykkishólmi þar sem fram fór 3. mótið á Áskorendamótaröð Íslandsbanka. Í skálanum var kona nokkur að hamast við að færa inn skor keppenda og afhenti síðan sigurvegurum mótsins verðlaunapeninga ásamt formanni mótanefndar Kjartani Páli Einarssyni. Viðtal kvöldsins er við þennan klúbbfélaga Golfklúbbsins Mostra: Fullt nafn: Erna Guðmundsdóttir. Klúbbur: GMS. Hvar og hvenær fæddistu? Í Reykjavík, 27. maí 1957. Hvar ertu alin upp? Í Reykjavík. Í hvaða starfi/námi ertu? Ég er framhaldsskólakennari. Hverjar eru fjölskylduaðstæður og spilar einhver í fjölskyldunni golf? Já við erum 3 í heimili og höfum öll spilað golf, en sonurinn er svona nánast hættur, farinn að vinna á Lesa meira
Íslandsbankamótaröðin (3): Tumi Hrafn Kúld er Íslandsmeistari í holukeppni í piltaflokki
Tumi Hrafn Kúld, GA, varð í dag Íslandsmeistari í holukeppni í piltaflokki á Urriðavelli, hjá Golfklúbbnum Oddi. Tumi Hrafn sigraði í úrslitaviðureigninni Aron Snæ Júlíusson, GKG, 2&0. Í 3. sæti varð Birgir Björn Magnússon, GK en hann vann Kristófer Orra Þórðarson 7&6. Í undanúrslitunum vann Tumi Hrafn, Kristófer Orra, 3&2. Aron Snær vann sinn leik gegn Birgi Birni 1&0 í undanúrslitunum.
Íslandsbankamótaröðin (3): Ólöf María varð Íslandsmeistari í holukeppni 2. árið í röð og fékk ás!!!
Ólöf María Einarsdóttir, GHD, varð í dag Íslandsmeistari í holukeppni í telpuflokki 15-16 ára. Ólöf María vann viðureign sína við Sögu Traustadóttur, GR, með minnsta mun 1&0. Á úrslitahringnum fór Ólöf María jafnframt holu í höggi og er þetta í 3. sinn sem Ólöf María fer holu í höggi!!! Í 3. sæti varð Eva Karen Björnsdóttir, GR en hún vann Melkorku Knútsdóttur, GKG 2&1. Í undanúrslitakeppninni sigraði Ólöf María, Evu Karenu 2&1 og Saga sigraði Melkorku 3&1.
Íslandsbankamótaröðin (3): Fannar Ingi er Íslandsmeistari í holukeppni í drengjaflokki
Fannar Ingi Steingrímsson, GHG, varð í dag Íslandsmeistari í holukeppni í drengjaflokki á Urriðavelli í Golfklúbbnum Oddi. Hann sigraði í úrslitaviðureigninni við Hákon Örn Magnússon, GR, 5&3. Þeir Kristján Benedikt Sveinsson, GA og Arnór Snær Guðmundsson, GHD áttust við um 3. sætið í mótinu og þar stóð Kristján Benedikt uppi sem sigurvegari. Viðureign þeirra Kristjáns Benedikts og Arnórs Snæs fór 5&4. Í undanúrslitum vann Fannar Ingi Kristján Benedikt 2&1 og Hákon Örn hafði betur gegn Arnóri Snæ 1&0.
Íslandsbankamótaröðin (3): Ragnhildur Kristinsdóttir er Íslandsmeistari í holukeppni í stúlknaflokki
Það er Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, sem varð Íslandsmeistari í holukeppni stúlkna í dag á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi. Ragnhildur hafði betur í viðureign sinni við Birtu Dís Jónsdóttur, GHD, sigraði með minnsta mun 1&0. Í 3. sæti varð Helga Kristín Einarsdóttir, NK, en hún sigraði viðureign sína við Karenu Ósk Kristjánsdóttur, GR. Viðureign Helgu Kristínar og Karenar Ósk fór 3&2. Í undanúrslitum sigraði Birta Dís, Karenu Ósk 5&4 og Ragnhildur vann Helgu Kristínu 4&3.
Íslandsbankamótaröðin (3): Sigurður Arnar Garðarsson er Íslandsmeistari í holukeppni í strákaflokki!
Það var Sigurður Arnar Garðarsson, GKG, sem tryggði sér á Íslandsmeistartitilinn í holukeppni unglinga, í strákaflokki, í viðureign sinni við Birki Orra Viðarsson, GS, sem varð í 2. sæti. Viðureign þeirra fór 3&2. Í 3. sæti varð Ingvar Andri Magnússon, GR, en hann bar sigurorð af Ragnari Má Ríkharðssyni, GKJ, 4&3. Í undanúrslitunum hafði Birkir Orri betur gegn Ragnari Má 3&2 og Sigurður Arnar vann Ingvar Andra með minnsta mun 1&0. Til þess að sjá öll úrslit SMELLIÐ HÉR:










