Ragnheiður Jónsdóttir | september. 2. 2022 | 18:00

Evróputúrinn: Thriston Lawrence sigraði í Omega European Masters

Það var heimamaður, Svisslendingurinn Thriston Lawrence, sem sigraði í Omega European Masters, en mótið fór fram 25.-28. ágúst sl. Mótið fór að venju fram í Crans-sur-Sierre GC, í Crans Montana, Sviss. Sigurinn kom eftir bráðabana við Englendinginn Matt Wallace, en báðir voru á samtals 18 undir pari, eftir 72 holur. Í 3. sæti varð Richard Mansell frá Englandi á samtals 16 undir pari. Þrír deildu 3. sætinu á samtals 15 undir pari, Jorge Campilo frá Spáni; Scott Jamieson frá Skotlandi og Frakkinn Antoine Rozner. Sjá má lokastöðuna í Omega European Masters með því að SMELLA HÉR:   


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 2. 2022 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Bergsveinn Þórarinsson og Sigurður Jónsson – 2. september 2022

Afmæliskylfingar dagsins eru báðir fæddir 2. september 1957 og eru því 65 ára í dag, en það eru: Bergsveinn Þórarinsson og Sigurður Jónsson.  Innilega til hamingju báðir tveir!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Marian McDougall, f. 2. september 1913 – d. 14. maí 2009 (hefði átt 109 ára afmæli í dag); Bergsveinn Þórarinsson, GKG, 2. september 1957 (65 ára); Sigurður Jonsson, 2. september 1957 (65 ára); Einar Long, GR, 2. september 1958, (64 ára); Hörður Þorsteinsson, fv. framkvæmdastjóri GSÍ, 2. september 1961 (61 árs);  Robert Coles, 2. september 1972 (50 ára STÓRAFMÆLI!!!); Ingunn Rós Valdimarsdóttir 2. september 1978 (44 ára); Föt Á Uppbodi (26 ára); Hee Jeong Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 2. 2022 | 14:00

LPGA: Paula Reto sigraði á CP Women’s Open

Það var hin suður-afríska Paula Reto sem sigraði á CP Women’s Open, en mótið fór fram dagana 25.-28. ágúst 2022. Mótsstaður var Ottawa Hunt and Golf Club í Ottawa, Kanada. Sigurskor Reto var 19 undir pari, 265 högg (62 – 69 – 67 – 67). Fyrir sigurinn hlaut Reto $352,500. Öðru sætinu deildu Nelly Korda og Hye-Jin Choi, báðar á 18 undir pari. Reto, sem er 29 ára, var nýliði á LPGA árið 2016. Þetta er 3. sigur Reto á LPGA; hinir komu 2018 og 2020, þannig að hún virðist sigra á 2 ára fresti 🙂 Auk þess var hún í Olympíugolfliði S-Afríku bæði í Ríó 2016 og Tokyo 2020. Sjá Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 1. 2022 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Al Geiberger, Manuel Piñero Sanchez og Breki Marinósson – 1. september 2022

Afmæliskylfingar dagsins eru þrír:Al Geiberger, Manuel Piñero Sanchez og Breki Marinósson. Al Geiberger er fæddur 1. september 1937 og fagnar því 85 ára afmæli í dag. Hann er á mjög sérstakt met en hann er einn fárra sem spilað hafa á 59 höggum í móti á PGA Tour. Manuel Piñero Sanchez er fæddur  1. september 1952 í Badajoz, á Spáni og á því 70 ára afmæli í dag.  Hann gerðist atvinnumaður í golfi árið 1968 og á í beltinu 14 sigra sem atvinnumaður; 9 á Evróputúrnum og þar að auki7 aðra. Hann býr í Malaga á Spáni í dag. Breki Marinósson er fæddur 1. september 1997 og á því 25 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 1. 2022 | 14:00

Íslandsmót unglinga í holukeppni 2022: Katrín Sól Íslandsmeistari í fl. 17-18 ára stúlkna

Íslandsmót unglinga í holukeppni 2022 fór fram á Hlíðavelli í Mosfellsbæ dagana 27.-29. ágúst. Leikin var útsláttarkeppni án forgjafar. Katrín Sól Davíðsdóttir, GM, sigraði í flokki 17-18 ára. Í úrslitaleiknum var Berglind Erla Baldursdóttir, GM, mótherji Katrínar en úrslitaleikurinn fór 3/2 fyrir Katrínu Sól. Sara Kristinsdóttir, GM, varð þriðja en hún sigraði Nínu Margréti Valtýsdóttur, GR, 5/4 í leiknum um bronsverðlaunin. Á leið sinni að titlinum sigraði Katrín Sól, Berglindi Ósk Geirsdóttur, GR 1/0 í 16-manna úrslitum. Hún sigraði Katrínu Hörn Daníelsdóttur, GKG, 1/0 í 8-manna úrslitum. Í undanúrslitum sigraði Katrín Sól, Söru Kristinsdóttur, GM, 2/1. Sjá má öll úrslit leikja hér að neðan eða með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 1. 2022 | 13:00

Íslandsmót unglinga í holukeppni: Gunnar Þór Íslandsmeistari í fl. 13-14 ára stráka

Íslandsmót unglinga í holukeppni 2022 fór fram á Hlíðavelli í Mosfellsbæ dagana 27.-29. ágúst. Leikin var útsláttarkeppni án forgjafar. Gunnar Þór Heimisson, GKG, sigraði í flokki 13-14 ára. Í úrslitaleiknum var Guðlaugur Þór Þórðarson, GL, mótherji Gunnars Þórs en úrslitaleiknum lauk með 4/2 sigri sigri Gunnars Þórs. Arnar Heimir Gestsson, GKG, varð þriðji en hann sigraði Hafstein Thor Guðmundsson, GHD, 2/0 í leiknum um bronsverðlaunin. Á leið sinni að titlinum sigraði Gunnar Þór, Thomas Ásgeir Johnstone, GKG, 1/0 í 16-manna úrslitum. Hann sigraði Óliver Elí Björnsson, GK, 4/2 í 8-manna úrslitum. Í undanúrslitum sigraði Gunnar Þór, Hafstein Thor Guðmundsson, GHD, 3/2. Sjá má öll úrslit hér að neðan eða með Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 1. 2022 | 10:00

Íslandsmót unglinga í holukeppni 2022: Guðjón Frans Íslandsmeistari í fl. 15-16 ára drengja

Íslandsmót unglinga í holukeppni 2022 fór fram á Hlíðavelli í Mosfellsbæ dagana 27.-29. ágúst. Leikin var útsláttarkeppni án forgjafar. Guðjón Frans Halldórsson, GKG, sigraði í flokki 15-16 ára. Í úrslitaleiknum var Markús Marelsson, GK, mótherji Guðjóns Frans en úrslitaleikurinn fór 5/3 fyrir Guðjón Frans. Veigar Heiðarsson, GA, varð þriðji en hann sigraði Andra Erlingsson, GV, 2/1 í leiknum um bronsverðlaunin. Á leið sinni að titlinum sigraði Guðjón Frans, Valdimar Kristján Ólafsson, GR 7/5 í 16-manna úrslitum. Hann sigraði Ragnar Orra Jónsson, GA, 6/4 í 8-manna úrslitum. Í undanúrslitum sigraði Guðjón Frans, Veigar Heiðarsson, GA, 1/0. Sjá má úrslit í öllum leikjum hér að neðan eða með því að SMELLA HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | september. 1. 2022 | 08:00

Íslandsmót unglinga í holukeppni 2022: Pamela Ósk Íslandsmeistari í fl. 13-14 ára stelpna

Íslandsmót unglinga í holukeppni 2022 fór fram á Hlíðavelli í Mosfellsbæ dagana 27.-29. ágúst sl. Leikin var útsláttarkeppni án forgjafar. Pamela Ósk Hjaltadóttir, GM, sigraði í flokki 13-14 ára. Í úrslitaleiknum var Vala María Sturludóttir GL, mótherji Pamelu en úrslitaleiknum lauk með 6/5 sigri sigri Pamelu. Eva Fanney Matthíasdóttir, GKG, varð þriðja en hún sigraði Ernu Steinu Eysteinsdóttur, GR, á 19. holu í bráðabana í leiknum um bronsverðlaunin. Pamela Ósk sat yfir í 16-manna úrslitum vegna stöðu sinnar á stigalistanum. Á leið sinni að titlinum sigraði Pamela Ósk, Margréti Jónu Eysteinsdóttur, GR, 6/5 í 8-manna úrslitum. Hún sigraði Ernu Steinu Eysteinsdóttur, GR, 5/4 í undanúrslitum. Sjá má öll úrslit í Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 31. 2022 | 23:00

Íslandsmót unglinga í holukeppni 2022: Máni Freyr Íslandsmeistari í fl. 12 ára og yngri

Íslandsmót unglinga í holukeppni 2022 fór fram á Hlíðavelli í Mosfellsbæ dagana 27.-29. ágúst. Leikin var útsláttarkeppni án forgjafar. Máni Freyr Vigfússon, GK, sigraði í flokki 12 ára og yngri. Í úrslitaleiknum var Hjalti Kristján Hjaltason GM, mótherji Mána Freys en úrslitaleiknum lauk með 5/3 sigri Mána Freys. Björn Breki Halldórsson, GKG, varð þriðji en hann sigraði Halldór Jóhannsson, GK, 2/1, í leiknum um bronsverðlaunin. Á leið sinni að titlinum sigraði Máni Freyr, Ívar Örn Sigurðarson, 1/0 í 16-manna úrslitum. Hann sigraði Ingimar Jónasson, GR, 7/6 í 8-manna úrslitum. Í undanúrslitum sgiraði Máni, Björn Breka Halldórsson, GKG, 6/5. Sjá má úrslit allra leikja hér að neðan og með því að Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 31. 2022 | 22:00

Íslandsmót unglinga í holukeppni 2022: Fjóla Margrét Íslandsmeistari í fl. 15-16 ára telpna

Íslandsmót unglinga í holukeppni 2022 fór fram á Hlíðavelli í Mosfellsbæ dagana 27.-29. ágúst. Leikin var útsláttarkeppni án forgjafar. Fjóla Margrét Viðarsdóttir, GS, sigraði í flokki 15-16 ára. Í úrslitaleiknum var Auður Bergrún Snorradóttir, GM, mótherji Fjólu en úrslitaleiknum lauk á 19. holu í bráðabana með sigri Fjólu Margrétar. Elísabet Ólafsdóttir, GKG, varð þriðja en hún sigraði Helgu Signýju Pálsdóttur, GR, 1/0 í leiknum um bronsverðlaunin. Á leið sinni að titlinum sigraði Fjóla Margrét, Þóru Sigríði Sveinsdóttur, GR 2/0 í 16-manna úrslitum. Hún sigraði Ásdísi Evu Bjarnadóttur, GM, 3/1 í 8-manna úrslitum. Í undanúrslitum sigraði Fjóla Margrét, Helgu Signýju, GR, 6/4. Sjá má úrslit allra leikja hér að neðan eða Lesa meira