Ragnheiður Jónsdóttir | október. 17. 2012 | 01:15

Bandaríska háskólagolfið: Axel, Haraldur Magnús og Mississippi State urðu í 7. sæti í Jerry Pate mótinu

Þeir Axel Bóasson, GK og Haraldur Franklín Magnús, GR luku keppni ásamt golfliði Mississippi State á Jerry Pate National Intercollegiate mótinu, í gær. Mótið fór fram dagana 15.-16. október á golfvelli Old Overton Club í Vestavia Hills, Alabama og þátttakendur voru 60 frá 12 háskólum. Axel lauk keppni í 19. sæti, sem hann deildi ásamt 5 öðrum. Hann var á samtals 10 yfir pari, 220 höggum (71 74 75). Axel var á 1.-2. besta skori í liði Mississippi State. Haraldur Franklín var á samtals 14 yfir pari, 224 höggum (74 75 75 ) og á 4. besta skorinu í liði Mississippi State og taldi skor hans þar af leiðandi. Haraldur Franklín lauk Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 16. 2012 | 21:00

Afmæliskylfingar dagsins: Arnór Tumi og Stefán Teitur – 16. október 2012

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir: Arnór Tumi Finnsson, GB og Stefán Teitur Þórðarson, GL.  Þeir eiga báðir sama afmælisdag upp á ár; báðir fæddir 16. október 1996 og því báðir 16 ára í dag. Arnór Tumi sigraði m.a. í ár þ.e. 12. maí 2012,á hinu árlega Kríumóti Golfklúbbs Staðarsveitar á Garðavelli undir Jökli. Golf 1 hefir nýlega tekið viðtal við hinn afmæliskylfinginn, Stefán Teit, sem lesa má með því að SMELLA HÉR: Komast má á Facebook síðu afmæliskylfinganna til þess að óska þeim til hamingju með afmælið hér að neðan: Arnór Tumi Finnsson (16 ára) Stefán Teitur Þórðarson (16 ára) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Herdís Guðmundsdóttir, (f. 16. október 1910- d. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 16. 2012 | 20:15

Birgir Leifur á 69 höggum á 1. degi í Mississippi

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, hefur í nú lokið 1. hring á úrtökumótinu fyrir PGA Tour, í Lake Caroline Golf Club í Madison, Mississippi (Til þess að komast á heimasíðu golfklúbbsins SMELLIÐ HÉR: ) Úrtökumótið stendur dagana 16.-19. október 2012. Birgir Leifur lék 1. hring á 1 undir pari, 69 höggum , en löturhægt gengur hjá þeim í Mississippi að uppfæra skorin. Á hringnum fékk Birgir Leifur örn, 3 fugla og 4 skolla.  Hann er jafn 14 öðrum í 23. sæti eftir 1. dag. Glæsilegur árangur hjá Birgi Leif!!! Tvöfaldur risamótsmeistari Angel Cabrera, sem þátt tekur í mótinu spilaði á 2 yfir pari, 72 höggum í dag, en í efsta sæti er Tommy Medina á Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 16. 2012 | 18:30

Charl Schwartzel telur breytinga þörf á Forsetabikarnum

Charl Schwartzel er þeirrar skoðunar að gera þurfi breytingar á Forsetabikarnum til þess að gera keppnina meira spennandi. „Það eru nokkrir hlutir sem þurfa að breytast til þess að Forsetabikarinn verði meira sérstakur,“ sagði Schwartzel í þessari viku. „Alþjóðaliðið þarf að byrja að ….. vinna aðeins fleiri leiki.“ Forsetabikarinn fer fram annað hvert ár, þ.e.a.s á árum sem Ryder bikar keppnin fer ekki fram. Þar keppir lið Bandaríkjamanna gegn Alþjóðaliðinu að undanskildu kylfingum frá Evrópu. Í þeim 9 keppnum, sem farið hafa fram frá upphafi, hefir Alþjóðaliðinu aðeins tekist að sigra 1 sinni og það hefir náð 1 jafntefli. „Það er þörf breytinga á leikforminu, þannig að Alþjóðaliðið komi aðeins Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 16. 2012 | 16:15

Bandaríska háskólagolfið: Ragna Björk í 6. sæti eftir fyrri dag St. Leo Invitational

Ragna Björk Ólafsdóttir, klúbbmeistari GKG 2012 og í golfliði St. Leo Lions hóf í gær leik  á St. Leo Invitational, í Flórída. Mótið er 2 daga fer fram dagana 15.-16. október  í  Lake Jovita Golf and Country Club. Sjá má heimasíðu klúbbsins með því að SMELLA HÉR:  Þátttakendur eru 76 frá 14 háskólum en auk St. Leo Lions, golfliðs Rögnu Bjarkar, taka þátt 13 önnur háskólalið frá: Tampa, Eckerd, Florida Tech, Barry, Florida Southern, Florida Southern B, Flagler, Lynn, Columbus State, Mount Olive, Nova Southeastern, Webber International, and Johnson & Wales. Ragna Björk spilaði á 74 höggum fyrri daginn og er í 6. sæti í einstaklingskeppninni. Hún er 1.-2. besta skori St. Leo Lions Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 16. 2012 | 15:15

Bandaríska háskólagolfið: Stefanía Kristín og Lady Falcons í 10. sæti eftir fyrri dag Patsy Rendleman Invitational

Stefanía Kristín Valgeirsdóttir, klúbbmeistari og púttmeistari GA 2012 og í Lady Falcon golfliði Pfeiffer háskólans lék fyrsta hring á Patsy Rendleman Invitational í gær. Þátttakendur eru 87 frá 16 háskólum. Mótið fer fram í Salisburg, Norður-Karólínu.  Þetta er tveggja daga mót en leikið er dagana 15.-16. október 2012. Spilað er í Country Club of Salisbury, á par-71 golfvelli klúbbsins, hönnuðum af Donald Ross. Sjá má heimasíðu klúbbsins með því að SMELLA HÉR:  Í gær lék Stefanía Kristín á 89 höggum og er sem stendur í 71. sæti í einstaklingskeppninni. Hún er á 4. besta skori liðs síns og telur það því. Lady Falcons eru í 10. sæti í liðakeppninni eftir 1. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 16. 2012 | 14:55

Birgir Leifur að hefja 1. hring í Madison – Mississippi

Klukkan er 14:55 og nákvæmlega núna er Birgir Leifur að tía upp í Madison, Mississippi og hefja 1. hringinn á úrtökumótinu fyrir PGA Tour. Í holli með Birgi Leif eru Blake Moore frá Denver, Colorado og Harry Rudolph, frá LaJolla, Kaliforínu. Til þess að fylgjast með stöðu SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 16. 2012 | 11:45

Golfútbúnaður: Kramski-barnapútterar

Þýski púttersframleiðandinn Kramski frá Pforzheim (Puttersmiede Kramski Pforzheim) er kominn fram með nýja pútter-línu fyrir börn á aldrinum 6-12 ára HPP 300 Junior-Serie. Pútterarnir eru allir með Mallet-hönnun og sagt er að þeir gefi háklassa „stærri bræðrum“ sínum í  Kramski High Precision Putter-Serie (HPP), ekkert eftir.  Eini munurinn er e.t.v. hversu litaglaðir barnapútterarnir eru en þeir fást í bláum lit, ljósbláum, bleikum, fjólubláum og rauðum með barnagripum í stærðum JXS og JS og reynt er að ná því fram að krakkarnir hafi gaman að golfinu. Það sérstaka við þessa barnapútera er að lengd skafta og þyngd púttershöfuðanna er hægt að laga að vexti barnsins þ.e. lengja og þyngja eftir því sem barnið Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 16. 2012 | 11:00

Phil Mickelson tókst að vippa fyrir $ 50.000 til styrktar góðgerðarmálum

Phil Mickelson reyndi í gær að vippa fyrir $ 1.000.000,- á Chip4Charity uppákomunni, sem var í hálfleik San Diego Chargers og Denver Broncos í bandaríska fótboltanum í gær í QUALCOMM Stadium í San Diego, Kaliforníu. Phil þurfti að setja golfbolta 5 fet (1,5 metra) frá stöng sem var í 100 yarda (91,5 metra) fjarlægð. Létt verk fyrir svona mikinn golfsnilling? Í stuttu máli tókst ætlunaverkið ekki, en Phil sem notað 56° fleygjárn sló yfir skotmarkið og púuðu áhorfendur á Phil. Hann getur þó huggað sig við það að einungis fyrir að koma þarna fram fá First Book góðgerðarsamtökin, sem styrkja efnaminni börn til náms (þ.e. bókarkaupa) $ 50.000, sem smá Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | október. 16. 2012 | 10:30

Bandaríska háskólagolfið: Valdís Þóra og Texas State í 2. sæti á Susie Maxwell Berning Classic mótinu eftir 1. dag

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, Íslandsmeistari í höggleik 2012 og í Bobcats golfliði Texas State hóf í gær leik á hinu 3 daga Susie Maxwell Berning Classic móti í Oklahoma. Mótið stendur dagana 15.-17. október 2012. Spilað er í Jimmie Austin OU Golf Club í Norman, Oklahoma.  Þátttakendur eru 96 frá 18 háskólum. Valdís Þóra lék fyrsta hring í gær á 2 yfir pari, 74 höggum og er í 27. sæti í einstaklingskeppninni eftir 1. dag. Valdís Þóra fékk 4 fugla, 4 skolla og 1 skramba á hringum.  Hún er á 3.-4. besta skori í liði sínu og telur skor hennar því. Bobcats golflið Texas State og Valdísar Þóru deilir 2. sætinu Lesa meira