
Bandaríska háskólagolfið: Axel, Haraldur Magnús og Mississippi State urðu í 7. sæti í Jerry Pate mótinu
Þeir Axel Bóasson, GK og Haraldur Franklín Magnús, GR luku keppni ásamt golfliði Mississippi State á Jerry Pate National Intercollegiate mótinu, í gær.
Mótið fór fram dagana 15.-16. október á golfvelli Old Overton Club í Vestavia Hills, Alabama og þátttakendur voru 60 frá 12 háskólum.
Axel lauk keppni í 19. sæti, sem hann deildi ásamt 5 öðrum. Hann var á samtals 10 yfir pari, 220 höggum (71 74 75). Axel var á 1.-2. besta skori í liði Mississippi State.
Haraldur Franklín var á samtals 14 yfir pari, 224 höggum (74 75 75 ) og á 4. besta skorinu í liði Mississippi State og taldi skor hans þar af leiðandi. Haraldur Franklín lauk keppni einn í 30. sæti.
Mississippi State varð í 7. sæti í liðakeppninni.
Sjá má grein um góða frammistöðu Axels og Haraldar Franklín á heimasíðu Mississippi State Bulldogs. Þar kemur m.a. fram að Axel sé meðal efstu 25 í mótinu og Haraldur Franklín hafi verið að spila fyrsta leik sinn með liði Mississippi State. SMELLIÐ HÉR:
Næsta mót Mississippi State Bulldogs er Bridgestone Golf Collegiate í Greensboro, Norður-Karólínu dagana 27.-28. október n.k.
Til að sjá úrslitin á Jerry Pate National Intercollegiate mótinu SMELLIÐ HÉR:
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024