Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 27. 2013 | 10:15
PGA: Billy Horschel spilar 2 hringi með Tiger

Það er einn sem er ánægður með þokuna og tafirnar á Farmers Insurance Open… Billy Horschel. – Þokan hefir nefnilega haft þau áhrif að keyra á Farmers Insurance mótið áfram í dag, ekki verður skorið niður eftir 3. hring og eins verða hollin látin halda sér þ.e. ekki verður endurraðað í holl eins og venjulega er gert, allt til að drífa mótið áfram. Þetta hefir valdið því að Billy Horschel, sem er í 2. sæti, 2 höggum á eftir Tiger Woods á samtals 9 undir pari á Farmers Insurance Open fær að spila í fyrsta sinn á ævinni í holli með draumaspilafélaga margrs kylfingsins, Tiger og það ekki 1 sinni Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 27. 2013 | 09:30
PGA: Þoka setti strik í reikninginn á 3. hring Farmers Insurance Open – Þokan hefir engin áhrif á Tiger – til í slaginn í dag!

Þriðji hringur á Farmers Insurance Open var fluttur til dagsins í dag vegna þykkrar þoku og 3 metra skyggnis í gær. Hefja á leik snemma dags í dag og er ætlunin er að spila 3. hring og eins mikið af 4. hring og mögulegt er og ef einhverjir eiga eftir að klára hringi sína, ljúka leik mánudagsmorgun. Aðeins nokkrir hófu leik í gær en urðu frá að hverfa vegna þokunnar. Keppendur skemmta sér við það að fara aukaferðir á hlaðborðið eða slá brelluhögg á æfingasvæðinu. Tiger, efsti maður mótsins, á 11 undir pari samtals, mætti ekki einu sinni á svæðið en lætur þokuna og tafirnar af völdum hennar ekki fara Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 26. 2013 | 16:00
Evróputúrinn: Nokkrar staðreyndir um sigur Chris Wood á Qatar Masters

Englendingurinn Chris Wood sigraði nú fyrir stuttu á Commercial Bank Qasters Masters 2013. Hér fara nokkrar staðreyndir um sigurinn og hvað hann inniber: Þetta er fyrsti sigur Chris Wood í 116. mótum, sem hann hefir tekið þátt í. Með sigrinum fer Chris í 4. sæti peningalista Evrópumótaraðarinnar eftir að hafa hlotið sigurtékkann upp á € 314,598. Chris Wood fer á topp-60 á heimslistanum úr 142. sætinu. Sigurinn er besti árangur Chris Wood á Evrópumótaröðinni. Þar áður var 2. sætið á Iberdrola Open 2011 og Sicilian Open, 2012 besti árangurinn. Chris Wood var líka T-2 á Africa Open 2011. Chris Wood er annar kylfingurinn á 2013 keppnistímabilinu á Evrópumótaröðinni, sem er Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 26. 2013 | 14:00
Evróputúrinn: Chris Wood sigraði á Qatar Masters

Englendingurinn Chris Wood sigraði svo sannarlega á lokametrunum í Commercial Bank Qatar Masters, með því að fá örn á 18. holuna. Örninn tryggði honum 1 höggs sigur á George Coetzee frá Suður-Afríku og Sergio Garcia frá Spáni sem deildu 2. sæti á samtals 17 undir pari, hvor. Chris Wood var á samtals 18 undir pari, 270 höggum sléttum (67 70 64 69). Skorkortið hjá Wood var ansi skrautlegt en hann byrjaði illa fékk skramba á 3. holuna og skolla á 6. holuna. Hann tók þetta aðeins aftur með 4 fuglum og 11 pörum, en 1 undir hringur dugði ekki til þess að knýja fram sigur. Það var því örninn á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 26. 2013 | 11:50
Afmæliskylfingur dagsins: Sir Henry Cotton – 26. janúar 2013

Afmæliskylfingur dagsins er Sir Henry Thomas Cotton, KCMG og MBE, en hann fæddist 26. janúar 1907 og hefði því orðið 106 ára í dag, hefði hann lifað, en Henry dó 22. desember 1987 og er því 26 ára afmæli dánardægurs hans jafnframt síðar á þessu ári. Henry fæddist í Holmes Chapel í Cheshire á Englandi. Hann er þekktastur fyrir að hafa unnið Opna breska risamótið þrisvar sinnum, 1934, 1937 og 1948. Eins var Sir Henry 4 sinnum í breska Ryder Cup liðinu og fyrirliði þess tvívegis. Eftir að hann hætti keppnisgolfi varð hann golfvallararkítekt við góðan orðstír, en hann hannaði m.a Le Meridien Penína golfvöllinn frábæra í Portúgal. Sir Henry Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 26. 2013 | 11:00
Ólafur Björn með sinn 1. sigur sem atvinnumaður og með nýja facebook síðu

Ólafur Björn Loftsson, NK, vann sinn fyrsta sigur sem atvinnumaður á OGA (Open Golf America) mótaröðinni í Bandaríkjunum. Sigurinn vannst á Disney Lake Buena Vista golfvellinum í Flórída, mánudaginn 21. janúar s.l. Ólafur Björn náði glæsilegu skori upp á 5 undir pari, 67 högg; en þetta var 1 dags mót og hlaut hann $ 300 í sigurlaun. Síðan þá hefir Ólafi Birni gengið ágætlega á mótaröðinni; var T-7 á West Orange, þriðjudaginn 22. janúar með 71 högg, en í sama móti spilaði einnig Þórður Rafn Gissurarson og varð T-11, með 72 högg. Á Ridgewood Lakes varð Ólafur Björn síðan í 2. sæti með 71 högg, þ.e. miðvikudaginn 23. janúar í s.l. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 26. 2013 | 09:00
PGA: Tiger trónir á toppnum þegar Farmers Insurance Open er hálfnað – Hápunktar og högg 2. dags

Tiger Woods átti frábæran 2. hring á Farmers Insurance Open – 7 undir pari, 65 högg og leiðir nú mótið með 2 högga forskot á þann sem næstur kemur. Tiger er búinn að spila á samtals 11 undir pari, 133 höggum (68 65). Tiger fékk m.a. glæsiörn á 18. holu Norðurvallarins, en auk þess 6 fugla, 10 pör og 1 skolla. Um skeið á hringnum í gær glitti í „gamla Tiger“ og snilldartakta horfinna tíma, í rigningunni í La Jolla. Í 2. sæti 2 höggum á eftir Tiger er Billy Horschel, á samtals 9 undir pari, 135 höggum (66 69). Sjá má kynningu Golf 1 á Horschel með því að Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 25. 2013 | 20:00
Viðtalið: Helgi Birkir Þórisson, GSE

Viðtalið í kvöld er við mikla landsliðskempu okkar Íslendinga, sem hefir staðið sig vel í opnum mótum undanfarið. Þannig spilaði hann Kirkjubólsvöll í Sandgerði á 1 undir pari, 12. janúar s.l. og vann höggleikshluta Janúarmóts GSG. Hér fer viðtalið við Íslandsmeistarann í holukeppni 1999. Fullt nafn: Helgi Birkir Þórisson. Klúbbur: Golfklúbburinn Setberg. Hvar og hvenær fæddistu? Í Reykjavík, 31. júlí 1975. Hvar ertu alinn upp? Í Keflavík. Hverjar eru fjölskylduaðstæður og spilar einhver í fjölskyldunni golf? Kvæntur og tveggja barna faðir. 12 ára drengurinn tekur í kylfurnar annað slagið. Hann verður öflugur fótboltamaður og stefnir ótrauður langt. Hvenær byrjaðir þú í golfi? Við 11 – 12 ára aldur. Hvað Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 25. 2013 | 17:55
Nýju stúlkurnar á LPGA 2013: Chie Arimura (23. grein af 27)

Í kvöld verður fjallað um japönsku stúlkuna Chie Arimura, sem deildi 5. sæti á lokaúrtökumóti Q-school LPGA á Daytona Beach dagana 28. nóvember – 2. desember 2012. Hin sem varð í 5. sæti, Lisa McCloskey, hefir þegar verið kynnt. Chie Arimuna er fædd 22. nóvember 1987 og því 25 ára. Hún er nr. 20 á Rolex-heimslista kvenna og var hæst „rönkuð” þeirra sem tóku þátt í lokaúrtökumótinu. Heima í Japan hefir hún sigrað 13 sinnum á japönsku LPGA. Og í Japan á Chie heima í Kuamamoto. Chie gerðist atvinnumaður 2006 og hefir spilað á nokkrum mótum LPGA, en besti árangur hennar hingað til er T-5 árangur í Mizuno Classic árið Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 25. 2013 | 16:00
Afmæliskylfingar dagsins: Sjöfn Har og Brynja Sigurðardóttir – 25. janúar 2013

Afmæliskylfingar dagsins eru Sjöfn Har og Brynja Sigurðardóttir. Sjöfn er fædd 25. janúar 1953 og á því 60 ára stórafmæli í dag. Brynja er fædd 25. janúar 1993 og á því 20 ára afmæli í dag. Brynja er klúbbmeistari Golfklúbbs Ólafsfjarðar 2012. Komast má á facebook síðu afmæliskylfinganna til þess að óska þeim til hamingju með afmælið hér að neðan: Sjøfn Har (60 ára – Innilega til hamingju!!!) Brynja Sigurðardóttir (20 ára – Innilega til hamingju!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: William Thomas Andrade, 25. janúar 1964 var í Wake Forest (49 ára); Lynnette Teresa Brooky, 25. janúar 1968 (45 ára); Laura London, 25. janúar 1980 (33 ára) …… Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

