Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 21. 2014 | 10:45
Heimsmótið í holukeppni 2014: Hápunktar 2. umferðar – Myndskeið

Í 2. umferð datt síðasti enski kylfingurinn Justin Rose úr heimsmótinu í holukeppni 2014, en í 1. umferð duttu á undan honum út þeir: Luke Donald, Lee Westwood og síðast en ekki síst „Mr. Match Play“ Ian Poulter. Allir ensku kylfingarnir búnir að pakka saman og farnir heim! En einnig nr. 1 í Evrópu 2013 Henrik Stenson laut í lægra haldi fyrir Louis Oosthuizen frá Suður-Afríku. Einna hæst í 2. umferð bar þó að Harris English tókst að sigra nr. 7 á heimslistanum Rory McIlroy og hann líka farinn heim!!! Sjá má myndskeið um hápunkta 2. umferðar þ.e. 32-manna úrslitin í Marana með því að SMELLA HÉR: Í 16 manna Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 21. 2014 | 10:15
Bandaríska háskólagolfið: Axel og Haraldur Franklín hefja leik í dag í Texas
Axel Bóasson, GK og golflið Mississippi State og Haraldur Franklín Magnús, GR og Louisiana Lafayette hefja leik í dag á Bayou City Collegiate meistaramótinu í Houston golfklúbbnum, í Humble, Texas. Mótið stendur dagana 21.-23. febrúar 2014 og þátttakendur eru 87 frá 15 háskólum. Axel á rástíma kl. 10:03 að staðartíma (kl. 16:03 að okkar tíma hér heima á Íslandi) af 1. teig og Haraldur Franklín fer út kl. 10:12 að staðartíma (þ.e. kl. 16:12 að okkar tíma) af 10. teig. Til þess að fylgjast með gengi Axels og Haraldar Franklín SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 21. 2014 | 09:45
Wozniacki: „Þær voru pirrandi sögusagnirnar um sambandsslitin við Rory“

Tennisstjarnan Caroline Wozniacki, kærasta Rory McIlroy, sagði í nýlegu viðtali að hún hefði fyrst hlegið að því í fyrra þegar sögusagnir fóru á flug um sambandsslit þeirra. Fljótlega, sagði hún, urðu þessar kjaftasögur þó pirrandi. Parið sem er þekkt sem’Wozilroy’ meðal áhangenda þeirra, tilkynnti um trúlofun sína á Twitter í miðri flugeldasýningu í Sydney, Ástralíu og fyrstu stundum þessa árs 2014. Carolíne sýndi síðan öllum sem sjá vildu 8 karata trúlofunarhring sinn og vísaði á bug öllum kjaftasögum síðasta árs um sambandsslit hennar og Rory á Dubai Duty Free Tennis Championships í fyrradag. Leikur hennar á tennisvellinum hefir sjaldan verið jafn slæmur en hin 23 ára danska stjarna virðist ánægð Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 21. 2014 | 03:15
LPGA: Anna Nordqvist efst e. 1. dag Honda LPGA Thailand

Í dag hófst á Pattaya Old Course, í Siam Country Club í Chonburi Thailandi, Honda LPGA Thailand mótið, á LPGA mótaröðinni. Eftir 1. dag er það sænski kylfingurinn Anna Nordqvist, sem er í forystu. Nordqvist komst í gegnum niðurskurð í Ástralíu s.l. helgi þrátt fyrir að hún hafi verið með hita og flensu og hún virðist aldeilis vera búin að ná sér! Anna lék á 6 undir pari 66 höggum og hefir 1 höggs forystu á þá sem er í 2. sæti, 1 höggi á eftir, Michelle Wie. Í 3. sæti eru Lexi Thompson, Angela Stanford og Jennifer Johnson, allar bandarískar, en þær léku allar á 4 undir pari og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 21. 2014 | 03:00
Heimsmótið í holukeppni 2014: Úrslit í 2. umferð

Í dag fóru fram leikar í 32 manna úrslitum á heimsmótinu í holukeppni. Hér eru úrslitin í heild eftir 2. umferð á heimsmótinu í holukeppni: (Sigurvegarar feitletraðir) Bobby Jones riðill: Louis Oosthuizen – Henrik Stenson 4&3 Webb Simpson – Brandt Snedeker – David Lynn 4&3 Jason Day – Billy Horschel 1&0 fór á 22. holu George Coetzee – Patrick Reed 1&0 á 21. holu Gary Player riðill: Ernie Els – Justin Rose 1&0 fór á 20. holu Jason Dufner -Matteo Manassero 2&1 Matt Kuchar – Ryan Moore 1&0 Jordan Spieth – Thomas Björn 5&4 Ben Hogan riðill: Harris English – Rory McIlroy 1&0 fór á 19. holu Jim Furyk – Charl Schwartzel 3&2 Sergio Garcia – Bill Haas 3&1 Rickie Fowler –Jimmy Walker 1&0 Sam Snead riðill: Hunter Mahan –Richard Sterne 2&0 Graeme Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 20. 2014 | 19:30
Zach Johnson landar styrktarsamningi við John Deere

Landbúnaðarvélaframleiðandinn John Deere hefir skrifað undir samning til margra ára um að gerast styrktaraðili PGA Tour kylfingsins Zach Johnson. Johnson, sem er nr. 6 á heimslistanum sem stendur mun því vera með John Deere lógóið á golfpokanum sínum í öllum keppnum. Hluti af styrknum rennur til góðgerðarmála sem Zach styrkir gegnum Zach Johnson Foundation, en stofnunin einbeitir sig að þurftugum börnum og fjölskyldum. „Við dáumst að Zach Johnson sem keppanda og heildar gildunum sem hann stendur fyrir í lífi sínu,“ sagði James Field, forseti Deere’s Worldwide Agriculture & Turf Division. „Við teljum að Zach sé fulltrúi gilda í kjarnann sem John Deere vörumerkið er þekkt fyrir. Hann hefir heilindi sem ekki Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 20. 2014 | 18:00
Nýju stúlkurnar á LET 2014: Maria Salinas (16/31)

Það var 31 stúlka sem komst í gegnum Lalla Aicha Tour School í Marokkó og hlaut kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour). Mótið fór fram dagana 14.-18. desember 2013 á golfvöllum Al Maaden og Samanah CC í Marrakech, Marokkó. Leiknir voru 5 hringir og eftir 4. hringinn var stúlkunum 92 sem upphaflega voru 94, fækkað niður í 60 og þar af hlutu 31 efstu eftir 5. og lokahringinn keppnisrétt á LET fyrir keppnistímabilið 2014. Það voru 4 stúlkur sem deildu 15. sætinu (voru jafnar í 15.-18. sætinu) og komust inn á mótaröðina með skor upp á samtals 1 undir pari, 359 högg: Anais Magetti; Maria Salinas; Isabelle Boineau og Cathryn Bristow, en þar Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 20. 2014 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Erlingur Arthúrsson – 20. febrúar 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Erlingur Arhúrsson, formaður Golfklúbbs Hveragerðis. Erlingur fæddist 20. febrúar 1961 og er því 53 ára í dag. Sjá má viðtal sem Golf 1 tók við afmæliskylfinginn með því að SMELLA HÉR: Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Murle Breer, 20. febrúar 1939 (75 ára); Stewart Murray „Buddy“ Alexander 20. febrúar 1953 (61 árs); Leonard C Clements, 20. febrúar 1957 (57 ára); Charles Barklay, 20. febrúar 1963 (51 árs); Jeff Maggert, 20. febrúar 1964 (50 ára stórafmæli); Fredrik Anderson Hed, 20. febrúar 1972 (42 ára); Yeh Wei-tze, 20. febrúar 1973 (41 árs); Caroline Afonso, 20. febrúar 1985 (29 ára) á LET ….. og ….. Theodór Emil Karlsson (23 ára) Hilmar Theodór Björgvinsson (53 ára) Þórður Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 20. 2014 | 14:00
Frægir golffrasar

Þessar flatir eru svo hraðar að ég verð að halda pútternum mínum yfir boltanum og slá með skugganum. ~ Sam Snead Það er hægt að tala við feid en húkk hlustar ekki. ~ Lee Trevino Ég var með 3 yfir. Einn yfir húsið, einn yfir veröndina og einn yfir sundlaugina. ~ George Brett Reyndar var eina skiptið sem ég tók út 1-járnið til þess að drepa tarantúlu. Og það tók 7-una til að framkvæma verkið. ~ Jim Murray Eina örugga reglan í golfi er – Sá sem er með hraðasta golfbílinn þarf ekki að leika úr slæmri legu! ~ Mickey Mantle Kynlíf og golf er það eina sem hægt er Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 20. 2014 | 11:00
Opna írska 2015 fer fram á Royal County Down

Tilkynnt hefir verið um að Opna írska á Evrópumótaröðinni 2015 muni fara fram á Royal County Down linksaranum. Valið á vellinum kemur nokkuð á óvart vegna þess að takmarka verður aðgang áhorfenda. T.a.m. þegar Walker Cup fór fram á vellinum 2007 var fjöldi áhorfenda takmarkaður við 2007. Þegar Opna írska fór fram á Royal Portrush fór fram á Causeway Coast árið 2012, seldust miðar fyrir 112.000 áhangendur. Slíkur fjöldi áhorfenda er ekki mögulegur á Royal County Down vegna heilsu og öryggisþátta. Síðast fór Opna írska fram á Royal County 1939 þegar Englendingurinn Arthur Lee sigraði og síðan þá hefir völlurinn stöðugt verið talinn meðal bestu golfvalla í heiminum. „Royal County Down Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

