Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 21. 2014 | 10:45

Heimsmótið í holukeppni 2014: Hápunktar 2. umferðar – Myndskeið

Í 2. umferð datt síðasti enski kylfingurinn Justin Rose úr heimsmótinu í holukeppni 2014, en í 1. umferð duttu á undan honum út þeir: Luke Donald, Lee Westwood og síðast en ekki síst „Mr. Match Play“ Ian Poulter. Allir ensku kylfingarnir búnir að pakka saman og farnir heim!

En einnig nr. 1 í Evrópu 2013 Henrik Stenson laut í lægra haldi fyrir Louis Oosthuizen frá Suður-Afríku.

Einna hæst í 2. umferð bar þó að Harris English tókst að sigra nr. 7 á heimslistanum Rory McIlroy og hann líka farinn heim!!!

Sjá má myndskeið um hápunkta 2. umferðar þ.e. 32-manna úrslitin í Marana með því að SMELLA HÉR: 

Í 16 manna úrslitum skiptast keppendur á eftirfarandi hátt eftir þjóðernum: flestir eða 9 eru frá Bandaríkjunum; 3 eru frá Evrópu, 3 eru frá Suður-Afríku og 1 frá Ástralíu. Í 16. manna úrslitunum mætast eftirfarandi kylfingar:

Bobby Jones riðill: 

Louis Oosthuizen – Webb Simpson

Jason Day – George Coetzee

Gary Player riðill:

Ernie Els – Jason Dufner

Matt Kuchar – Jordan Spieth

Ben Hogan riðill: 

Harris English – Jim Furyk

Sergio Garcia – Rickie Fowler

Sam Snead riðill:

Graeme McDowell – Hunter Mahan

Victor Dubuisson – Bubba Watson