Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 16. 2014 | 18:00
LET: Charley Hull vann fyrsta mót sitt í Marokkó

Unga, enska Solheim Cup stjarnan Charley Hull sigraði í dag fyrsta mót sitt á Evrópumótaröð kvenna, Lalla Meryem Cup í Marokkó með stórkostlegum hring upp á 9 undir pari, 62 höggum!!! Á hringnum fékk Charley 7 fugla og 1 örn!!! Hún byrjaði með látum fékk tvo fugla á 1. og 2. braut og fékk síðan örn á par-5, 6. holu og síðan fylgdu fuglar á 7. og 9. braut og hún lauk fyrri 9 á 6 undir pari, 30 höggum. Charley náði enn öðrum fugli á 11. holu og setti pressu á Gwladys Nocera sem leiddi fyrir lokahringinn, þannig að hún þrípúttaði á lokaholunni og Hull var komin í umspil Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 16. 2014 | 12:45
Bandaríska háskólagolfið: Sunna í 2. sæti eftir 2. dag JMU Eagle Landing mótsins!

Sunna Víðisdóttir og golflið Elon og Berglind Björnsdóttir og golflið UNCG taka þátt í JMU Eagle Invitational. Mótið fer fram á golfvelli Eagle Landing golfklúbbsins í Orange Park, Flórída dagana 14.-16. mars 2014. Þátttakendur í mótinu eru 93 frá 16 háskólum. Íslandsmeistarinn okkar í höggleik (Sunna) átti svo sannarlega stórglæsilegan 2. hring en hún lék á 3 undir pari, 69 höggum og vann sig upp úr 34. sætinu, sem hún var í eftir 1. dag mótsins, þegar hún lék á 75 höggum í 2. sætið af 93 keppendum!!! Samtals er Sunna því búin að spila á sléttu pari 144 höggum (74 69) og er búin að þjóta upp skortöfluna í 2. sætið sem Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 16. 2014 | 12:00
PGA: Garrigus:„Átti eitt af bestu 5 höggum ævinnar hér“

Bandaríkjamaðurinn Robert Garrigus hefir 1 höggs forystu á Kevin Na á Copperhead golfvellinum á Innisbrook golfstaðnum, sem er mótsstaður Valspar PGA mótsins í Flórída. Og nú er bara á eftir að spila lokahringinn, en hann fer fram í kvöld. Spurningin stóra er hvort honum takist að halda þetta út, eða hvort aðrir t.d. Na (með öll vöggin sín) takist að taka fram úr? Garrigus er 36 ára (fæddur 11. nóvember 1977) í Idaho. Takist Garrigus að sigra, er þetta 2. sigur hans á PGA Tour, en fyrsti sigur hans á PGA Tour kom 3 dögum eftir 33 ára afmælisdaginn, þ.e. 14. nóvember 2013 á Childrens Miracle Network Classic mótinu. Eftir Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 16. 2014 | 02:53
PGA: Garrigus enn efstur – hápunktar 3. dags Valspar mótsins

Bandaríkjamaðurinn Robert Garrigus situr sem fastast í 1. sæti á Valspar mótinu eftir 3. mótsdag en hann er búinn að spila á samtals 8 undir pari. Fast á hæla honum aðeins 1 höggi á eftir er landi hans Kevin Na. Síðan eru John Senden í 3. sæti og Justin Rose í 4. sæti, Senden á 6 og Rose á 5 undir pari. Retief Goosen, Charlie Hoffman og Scott Langley deila svo 5. sætinu allir á 4 undir pari, hver. Til þess að sjá stöðuna að öðru leyti eftir 3. mótsdag Valspar mótsins SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 3. mótsdags á Valspar mótinu SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 15. 2014 | 20:00
Golfgrín á laugardegi

Kylfingur nokkur fer í sumarfrí á nektarnýlendu. Hann fær bréf frá ömmu sinni þar sem hún biður hann um að senda sér mynd af sér úr fríinu. Kylfingurinn er of skömmustulegur til þess að láta ömmu sína vita að hann búi í nektarnýlendu þannig að hann ákveður að klippa myndina sem hann tekur af sér nöktum á golfvelli í tvennt og senda henni bara mynd af sér berum að ofan með pálmatré í baksýn. Fyrir mistök sendir hann ömmu sinni neðri hluta myndarinnar. Hann hefir miklar áhyggjur þegar hann gerir sér grein fyrir að hann hafi sent vitlausan helming myndarinnar, en reynir að hugga sig við að amma hans sé Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 15. 2014 | 19:45
LET: Nocera efst fyrir lokahring Lalla Meryem í Marokkó

Franski kylfingurinn Gwladys Nocera er efst fyrir lokahring Lalla Meryem í Marokkó. Nocera er á samtals 11 undir pari, 202 höggum (69 68 65). Nocera hefir 2 högga forystu á löndu sína Sophie Giquel-Bettan. Eftir 3. hring sagði Nocera m.a.: „Í dag gekk mér ekkert sem best á fyrri 9. Ég strögglaði svolítið en ég veit ekki, ég spilaði 2 hringi þar áður og var að pútta illa, en var samt á góðu skori þannig að ég hugsaði bara „haltu áfram þau munu falla“ og það komu nokkur fleiri á seinni 9.“ Thaílenski kylfingurinn Ariya Jutunugarn, sem leiddi í hálfleik er dottin niður í 3. sætið og er á samtals Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 15. 2014 | 19:00
Verchnova snýr aftur til keppni

Rússneski kylfingurinn Maria Verchenova er búin að vera frá keppnisgolfi vegna þess að hún eignaðist barn seint á árinu 2012. En nú er hún aftur byrjuð að keppa og tekur þátt í Lalla Meryem mótinu í Marokkó. Á facebook síðu sína skrifaði hún í gær: T35. Same stuff: lot of birdies, lot of bogeys… But I couldn’t believe I made a cut with rental clubs. Nice, useless experience. Thank’s to BA! Hún sem sagt segist í lauslegri þýðingu deila 35. sætinu; hún hafi fengið mikið af fuglum og skollum og trúði því varla að hún hafi náð niðurskurði með leigukylfum! Þetta er ágætis byrjun og verður gaman að fylgjast með henni Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 15. 2014 | 18:15
Evróputúrinn: Cañizares óstöðvandi – Hápunktar 3. dags

Spænski kylfingurinn Alejandro Cañizares virðist algerlega óstöðvandi á Trophée Hassan II og er enn í forystu eftir 3. dag mótsins. Samtals er Cañizares búinn að spila á 17 undir pari, 199 höggum (62 68 69) og hefur 6 högga forystu á næsta keppanda, Seve Benson. Benson er á 11 undir pari, 205 högum (63 68 74). Í 3. sæti er síðan Hollendingurinn Robert-Jan Derksen á samtals 10 undir pari. Til þess að sjá stöðuna eftir 3. dag SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 3. dags SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 15. 2014 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Íris Lorange Káradóttir – 15. mars 2014

Það er Íris Lorange Káradóttir, GK, sem er afmæliskylfingur dagsins. Íris er fædd 15. mars 2000 og á því 14 ára afmæli í dag! Íris hefir spilað bæði á Áskorendamótaröð á Unglingamótaröð Íslandsbanka. Komast má á facebook síðu Írisar til þess að óska henni til hamingju með afmælið hér að neðan Iris Lorange Káradóttir 15. mars 2000 (14 ára – Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru: Þorvaldur Ásgeirsson, golfkennari 17. mars 1917-10. október 1988 (hefði orðið 97 ára í dag); Tsuyoshi Yoneyama, 15. mars 1965 (49 ára), Helen Beatty (áströlsk), 15. mars 1975 (39 ára), Christina Kim, 15. mars 1984 (30 ára stórafmæli!!!) … Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 15. 2014 | 14:00
Bandaríska háskólagolfið: Theodór lauk keppni í 17. sæti og Ari í 27. sæti á CBU Spring Inv.

Theodór Karlsson, GKJ og Ari Magnússon, GKG og golflið Arkansas Monticello tóku þátt í CBU Spring Invitational, sem fram fór í Quail Ridge golfklúbbnum í Bartlett, Tennessee. Mótið fór fram dagana 10.-11. mars 2014. Þátttakendur voru 57 frá 10 háskólum. Theodór lék á samtals 11 yfir pari, 156 höggum (74 79) og í 17. sæti í einstaklingskeppninni, en Ari var á samtals 17 yfir pari, 157 höggum (75 82) og í 27. sæti. Theodór var á 2. besta skori Arkansas Monticello og Ari á 3. besta skorinu og töldu því skor beggja í 6. sætis árangri Arkansas Monticello í liðakeppninni. Þeir Theodór og Ari og golflið Monticello spila næst á Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

