Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 16. 2014 | 12:45

Bandaríska háskólagolfið: Sunna í 2. sæti eftir 2. dag JMU Eagle Landing mótsins!

Sunna Víðisdóttir og golflið Elon og Berglind Björnsdóttir og golflið UNCG taka þátt í JMU Eagle Invitational.

Mótið fer fram á golfvelli Eagle Landing golfklúbbsins í Orange Park, Flórída dagana 14.-16. mars 2014.

Þátttakendur í mótinu eru 93 frá 16 háskólum.

Íslandsmeistarinn okkar í höggleik (Sunna) átti svo sannarlega stórglæsilegan 2. hring en hún lék á 3 undir  pari, 69 höggum og vann sig upp úr 34. sætinu, sem hún var í eftir 1. dag mótsins, þegar hún lék á 75 höggum í 2. sætið af 93 keppendum!!!  Samtals er Sunna því búin að spila á sléttu pari 144 höggum (74 69) og er búin að þjóta upp skortöfluna í 2. sætið sem hún deilir með Tiffany Chan úr Daytona State College!   Sunna var best í liði Elon, sem er í 3. sæti mótsins í liðakeppninni.

Berglind sem var T-1, þ.e. deildi 1. sætinu með öðrum keppanda eftir 1. dag, átti vonbrigðahring upp á 83 högg 2. keppnisdaginn og er dottin niður í 34. sætið í einstaklingskeppninni. Berglind er samt samtals búin að spila samtals á 8 yfir pari, 152 höggum (69 83) og var á næstbesta skorinu í liði UNCG,  sem  er  í 15. sæti í liðakeppninni.

Sjá má stöðuna eftir 2. dag JMU Eagle Invitational með því að SMELLA HÉR: