Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 28. 2014 | 05:45

GÞH: Gott golfveður á Hellishólum!

Í fréttatilkynningu frá Hellishólum segir eftirfarandi: „Í dag er frábært veður hér á Hellishólum og golfvöllurinn eins og á góðum sumardegi. Opið inn á sumargrín og verið hjartanlega velkomin í nafla alheims = Hellishóla.“ Nú er bara að drífa sig að Hvolsvelli og taka hring á frábærum 18 holu Þverárvellinum að Hellishólum!


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 28. 2014 | 04:00

Bandaríska háskólagolfið: Ólafía Þórunn og Berglind hefja leik á Bryan National Collegiate í dag

Íslandsmeistarinn okkar í holukeppni 2013, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og golflið Wake Forest og klúbbmeistari kvenna í GR 2013, Berglind Björnsdóttir og golflið UNCG, hefja leik í dag á Bryan National Collegiate mótinu. Mótið fer fram á Bryan Park Champions golfvellinum í Browns Summit, Norður-Karólínu. Þátttakendur eru 96 frá 19 háskólum. Berglind fer út af 1. teig en Ólafía Þórunn af 12. teig – en um shot gun start er að ræða í mótinu þ.e. allir keppendur ræstir út á sama tíma þ.e. kl. 8:45 að staðartíma (kl. 12:45 að okkar tíma hér heima á Íslandi). Til þess að fylgjast með gengi Ólafíu Þórunnar og Berglindar SMELLIÐ HÉR: 


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 27. 2014 | 20:00

PGA: Mickelson með fugl á Valero Texas Open – Myndskeið

Mót vikunnar á PGA Tour er Valero Texas Open, en mótið fer fram á TPC San Antonio, í San Antonio Texas Sem stendur, stendur yfir leikur á 1. hring. Phil Mickelson átti sérlega glæsilegan fugl á 1. hring. Til þess að sjá  fugl Phil á 16. braut TPC San Antonio  SMELLIÐ HÉR:  Til þess að fylgjast með gengi keppenda á 1. hring Valero Texas Open SMELLIÐ HÉR:     


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 27. 2014 | 18:00

GMac: „Tiger hefir misst áru ósigranleikans“

Tiger Woods finnst hann e.t.v. aðeins meiddur eina ferðina enn (nú með bakverki) en hann sé annars í frábæru formi. GMac þ.e. Graeme McDowell hins vegar trúir því Tiger hafi misst áru ósigranleika síns. „Hann hefir misst þennan kraft ósigranleikans, sem umlukti hann,“sagði McDowell við fréttamann PGATour.com. „Ára hans er ekki eins sterk. Hann er enn Tiger Woods, enn besti kylfingur allra tíma að mínu áliti.“ „Ég man ekki eftir fyrsta skiptinu sem ég spilaði við hann (en) það var virkilegur „vá“ faktor. Hann var bara að spila allt annað golf en ég. En gæjar verða bara eldri, það gerist.“ GMac bætti við: „Þeir eru ekki þarna úti og trúa Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 27. 2014 | 16:45

Charley Hull gerir samning við Woburn – hamingjuóskir frá Ian Poulter

Charley Hull hélt upp á 18 ára afmælisdaginn sinn með því að skrifa undir samning við Woburn Golf Club, sem fulltrúi klúbbsins í mótum eða tournament professional. Hull, náði nú fyrr í mánuðnum í fyrsta sigur sinn á Ladies European Tour þ.e. á LallaMeryem Cup, í Marokkó og er því ásamt  tvöföldum World Golf Championship sigurvegara Ian Poulter tournament professional klúbbsins. Likt og Poulter, mun Hull ver með  lógó Woburn golfklúbbsins á ermi sinni í öllum mótum sem hún tekur þátt í. Charley sagði við þetta tækifæri: „Ég hef spilað í  Woburn golfklúbbnum, síðan ég var lítil stúlka og það er virkilegur heiður að vera  tournament professional fyrir Woburn Golf Club. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 27. 2014 | 16:10

„Love is in the air“

Það er ekki á hverjum degi og gerist eiginlega ekki að fyrirsagnir á Golf 1 séu á ensku. Hér var ekki staðist mátið að bregða örlítið út af vananum og vísa í þetta gamla dægurlag John Paul Young (fyrir þá sem ekki þekkja það má rifja það upp og hlusta með því að SMELLA HÉR: ) Fyrirsögnin er nefnilega frábær og lýsandi því dóttir Davis Love III, Lexie er að fara að gifta sig og fer brúðkaupið fram á St. Simons Island heimili Love í Georgia. „Við ætlum að halda upp á þetta hér í garðinum hjá okkur og nota sama tjald og var notað í the McGladrey Classic pro-am draw Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 27. 2014 | 15:45

Afmæliskylfingur dagsins: Steinunn Jónsdóttir – 27. mars 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Steinunn Jónsdóttir. Steinunn er fædd 27. mars 1951 og er í Golfklúbbi Sandgerðis. Hún hefir tekið þátt í mörgum opnum mótum, með góðum árangri. Komast má á facebook síðu Steinunnar til þess að óska henni til hamingju með daginn hér að neðan: Steinunn Jónsdóttir (Innilega til hamingju með afmælið!!!) F. 27. mars 1951 Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: June Beebe Atwood, f. 27. mars 1913 – d. 10. nóvember 2003;  Ignacio Garrido, 27. mars 1972 (42 ára); David Dixon, 27. mars 1977 (37 ára); rússneski kylfingurinn María Verchenova, 27. mars 1986 (28 ára) …… og …… Dansinn Lengi Lifi F. 27. mars 1947 (67 ára) Eysteinn Marvinsson F. 27. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 27. 2014 | 15:30

Golfið varð til þess að Ivan Lendl hætti sem þjálfari Andy Murray

Tennis og golf tengjast á fjölmörgum sviðum. Óþarft er að benda á kærustu Rory McIlroy hina verðandi Caroline McIlroy, tennisdrottningu en einnig er pabbi Jessicu Korda, Petr Korda, kunnur tenniskappi og mikill vinur fyrrum nr. 1 í heiminum í tennisnum Ivan Lendl, sem er alveg forfallinn golfkappi. Talið er að Ivan Lendl spili 250 golfhringi á ári og hann er scratchari með forgjöf upp á 0. Þessi mikla golfiðja Lendl hefir orðið til þess að hann hefir hætt sem þjálfari hins efnilega skoska tennisleikara Andy Murray. Greg Garber á ESPN sagði í frétt sinni s.l. þriðjudag að Lendl hefði verið samingsbundinn að verja 25 vikum með Murray.  „Til þess að gera Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 27. 2014 | 15:00

EurAsia Cup: Evrópa 5 – Asía 0 – Hápunktar 1. dags

Í dag hófst í Glenmarie golfklúbbnum í Kuala Lumpur í Malasíu EurAsiu Cup, sem er holukeppni milli Evrópu og Asíu með Ryder Cup fyrirkomulagi. Mótið hófst á því að forsætisráðherra Malasíu, Najib Razak,  sem við þekkjum öll eftir fréttaflutning um flugvélina týndu MH370, sló upphafsheiðurshögg. Síðan spiluðu fyrirliðar beggja liða  þ.e. Miguel Angel Jiménez fyrirliði  liðs Evrópu og Thongchai Jaidee, fyrirliði liðs Asíu, en báðir eru spilandi fyrirliðar þ.e. eru þátttakendur í mótinu. Á fyrsta degi vann Evrópa alla leiki sína gegn liði Asíu og staðan því 5:0 fyrir liði Evrópu. Stærsta sigurinn unnu þeir Gonzalo Fdez-Castaño og Stephen Gallacher gegn þeim Anirban Lahiri og Gaganjeet Bhullar 4&3. Til þess Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 27. 2014 | 14:00

Nýju stúlkurnar á LET 2014: Virginia Espejo (25/31)

Það var 31 stúlka sem komst í gegnum Lalla Aicha Tour School í Marokkó og hlaut kortið sitt á Evrópumótaröð kvenna, LET (Ladies European Tour). Mótið fór fram dagana 14.-18. desember 2013 á golfvöllum Al Maaden og Samanah CC í Marrakech, Marokkó. Leiknir voru 5 hringir og eftir 4. hringinn var stúlkunum 92 sem upphaflega voru 94, fækkað niður í 60 og þar af hlutu 31 efstu eftir 5. og lokahringinn keppnisrétt á LET fyrir keppnistímabilið 2014. Nú er aðeins eftir að kynna þær stúlkur sem urðu í 9 efstu sætunum. Byrjað verður á að kynna þær 3, sem deildu 7. sætinu þ.a. þær Juliu Davidsson, Isabell Gabsa og Virigina Espejo, en þær léku Lesa meira