Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 4. 2014 | 07:30
LPGA: Lee og Lewis leiða fyrir lokahringinn í Texas

Það eru Meena Lee frá Suður-Kóreu og fyrrum nr. 1 á Rolex-heimslista kvenna, Stacy Lewis, sem eru í efsta sæti á North Texas LPGA Shootout Presented by JTBC. Báðar eru þær Lee og Lewis búnar að spila á samtals 9 undir pari, 204 höggum. Lewis var með 3 fugla og 1 skolla í hring sínum upp á 69 og var komin í 9 undir par á par-4 12. holu. Það var ekki fyrr en á 14. holu þegar Lee fékk skolla að þær voru jafnar. „Þetta var pirrandi“ sagði Lewis. „Ég var að slá boltann virkilega, virkliega vel í dag og gaf sjálfri mér fullt af tækifærum og hitti fullt af Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 4. 2014 | 07:00
GBR: Óskar Bjarni Ingason og Magnús Kári Jónsson sigruðu á 1. maí mótinu

Á Verkalýðsdaginn, 1. maí 2014, fór fram mót á hinum nýja Brautarholtsvelli á Kjalarnesi. Leikformið var höggleikur án forgjafar og punktakeppni með forgjöfþ Þátttakendur voru 70 kylfingar þar af 2 kvenkylfingar. Á besta skori í mótinu var Óskar Bjarni Ingason, GR, 72 höggum og hlaut hann í verðlaun 10 skipta aðgangskort í Brautarholt og inneignarkort í golfverslun að verðmæti kr. 10.000. Í punktakeppninni voru sigurvegarar eftirfarandi: 1. sæti Magnús Kári Jónsson, GKG, var á 37 punktum. Hann hlaut í verðlaun 10 skipta aðgangskort í Brautarholt og inneignarkort í golfverslun að verðmæti kr. 10.000. 2. sæti Davíð Hlíðdal Svansson,GOB, 34 punktar (18 punktar á seinni 9). Hann fékk í verðlaun 5 skipta aðgangskort í Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 4. 2014 | 00:30
Champions Tour: Langer með 3. högga forystu á Insperity Inv. e. 2. dag

Þýski kylfingurinn Bernhard Langer leiðir eftir 2. dag Insperity Invitational, sem er mót vikunnar á Champions Tour. Langer er búinn að spila á samtals 134 höggum (66 68). Í 2. sæti 3 höggum á eftir er Colin Montgomerie, Monty á 137 höggum (71 66). Þriðja sætinu deila 3 kylfingar, allir á 6 undir pari, 138 höggum, hver: þ.e. Esteban Toledo, Bart Bryant og Gary Hallbert. Til þess að sjá stöðuna á Insperity Invitational e. 2. dag SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 3. 2014 | 22:40
PGA: Holmes í forystu fyrir lokahring Wells Fargo – Hápunktar 3. dags

J.B. Holmes hefir tekið forystu á Wells Fargo mótinu. Holmes er búinn að spila á samtals 13 undir pari, 203 höggum (70 67 66). Í 2. sæti er Martin Flores 1 höggi á eftir og í 3. sæti er Phil Mickelson enn öðru höggi á eftir. Mickelson átti glæsihring, sem skaut honum upp í 3. sætið eða upp á 9 undir pari, 63 högg!!! Til þess að sjá stöðuna á Wells Fargo eftir 3. dag SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 3. dags Wells Fargo mótsins SMELLIÐ HÉR: (Verður sett inn um leið og PGA er til með myndskeiðið)
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 3. 2014 | 21:00
Golfgrín á laugardegi

Kaþólski presturinn situr í skriftarstólnum þegar dauðþreyttur golfari kemur í kirkjuna og sest við hliðina á skriftarstólnum, en segir ekki neitt. Presturinn verður samt var við að golfarinn er eitthvað að brasa, en golfarinn segir enn ekkert. Loks missir presturinn þolinmæðina og bankar í gluggann til að vita hvort golfarinn ætli ekki að skrifta. Enn ekkert svar. Presturinn bankar aðeins harkalegra nú og þá segir golfarinn: „Þetta þýðir ekkert það er heldur enginn pappír hérna meginn.“
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 3. 2014 | 20:30
LET ACCESS: Valdís Þóra í 92. sæti eftir 2. dag í Sviss

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, tekur þátt í Association Suisse de Golf Ladies Open mótinu á LET Access mótaröðinni, sem er einskonar 2. deild og stökkbretti inn á Evrópumótaröð kvenna (LET). Mótið fer fram á golfvelli Gams-Werdenberg golfklúbbsins, í Gams, Sviss. Valdís hefir samtals leikið á 14 yfir pari, 158 höggum (78 80) og er í 92. sæti eftir 2. dag mótsins. Í dag lék Valdís Þóra á 80 höggum; fékk 9 skolla og 1 fugl. Hún er úr leik þ.e. ljóst er að hún kemst ekki í gegnum niðurskurð. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag Association Suisse de Golf Ladies Open mótinu SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 3. 2014 | 20:00
Nýju strákarnir á PGA Tour 2014 (efstu 25 af peningalista Web.com): Miguel Angel Caballo (3/25)

Efstu 25 af peningalista Web.com Tour 2013 hlutu kortin sín á PGA Tour, keppnistímabilið 2013-2014. Í dag verður kynntur sá, sem varð í 22. sæti, en það er Miguel Ángel Caballo. Caballo lék eins og efstu 25 af peningalista Web.com Tour á Web.com Tour Finals, um stöðu og varð hann í 43. sæti og hlaut ekki aukinn status við að taka þátt í því móti. Í báðum tilvikum rétt slapp hann inn á PGA Tour og hefir ekkert gengið sérlega vel frá upphafi 2013-2014 tímabilsins, þ.e. október á s.l. ári. Miguel Ángel Caballo er fæddur 22. mars 1979 í Bahía Blanca í Argentínu og er því 35 ára. Hann er kallaður Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 3. 2014 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Jóhann Friðbjörnsson – 3. maí 2014

Jóhann Friðbjörnsson, formaður Golfklúbbsins Kiðjabergs er afmæliskylfingur dagsins. Jóhann er fæddur 3. maí 1959 og því 55 ára í dag. Jóhann er kvæntur Regínu Sveinsdóttur. Til þess að óska afmæliskylfingnum til hamingju má komast á Facebook síðu hans hér Jóhann Friðbjörnsson (Innilega til hamingju með afmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar, sem eiga afmæli í dag eru: (Robert) Bob McCallister, 3. maí 1934 (80 ára stórafmæli!!!); Peter Oosterhuis, 3 maí 1948 (66 ára) ….. og …… CrossFit Hafnarfjordur (40 ára stórafmæli!!!) Freydís Eiríksdóttir, GKG (16 ára) Leikfélag Hólmavíkur (33 ára) Jóhanna Leópoldsdóttir (58 ára) Steina List Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 3. 2014 | 11:00
Evróputúrinn: Hansen efstur ásamt Pittayarat fyrir lokahringinn í Singapúr – Myndskeið frá 3. degi

Mót vikunnar á Evrópumótaröðinni er The Championship at Laguna National. Mótið fer fram í Laguna National G&CC í Tampines, Singapúr. Fyrir lokahringinn eru það Daninn Anders Hansen og Filipseyingurinn Panuphol Pittayarat sem eru í forystu; eru báðir samtals búnir að spila á 16 undir pari, 200 höggum; Pittayarat (63 68 69) og Hansen (67 66 67). Þriðja sætinu deila 2 kylfingar: Hollendingurinn Robert Jan Derksen og Bandaríkjamaðurinn David Lipsky, en þeir hafa báðir leikið á samtals 14 undir pari og eru því tveimur höggum á eftir forystumönnunum. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag á The Championship at Laguna National SMELLIÐ HÉR: Til þess að sjá hápunkta 2. dags The Championship at Laguna National SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 3. 2014 | 10:00
Bílafloti Ian Poulter

Allir áhangendur enska „kraftaverkamannsins í Medinah“ Ian Poulter vita að hann er mikill bíladellukarl. Hann á stórsafn af glæsikerrum, þ.á.m. fjöldann allan af Ferrari bílum, sem eru í miklu uppáhaldi hjá honum. Hann tvítaði nú nýverið meðfylgjandi mynd af bílaflota sínum, en á myndinni eru 7 bílar, þar af 5 Ferrari. Hinir eru Rolls Royce Ghost aftast til vinstri og Ford GT-40 að aftan til hægri. Poulter tvítaði að hann væri að hugsa um að losa sig við Rollsinn og hugsanlega kaupa Bentley seinna á árinu, hann væri með Mulsanne undirtegundina í huga, sem hugsanlega valkost í skiptum fyrir Rollsinn. Poulter hefir hlotið gagnrýni fjölmargra fyrir að „eyða“ golfpeningum sínum í Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

