Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 4. 2014 | 22:30
PGA: JB Holmes sigraði á Wells Fargo mótinu

Bandaríkjamaðurinn JB Holmes stóð uppi sem sigurvegari á Wells Fargo mótinu í Quail Hollow í Norður-Karólínu. Hann lék á samtals 14 undir pari, 274 höggum (70 67 66 71). Aðeins 1 höggi á eftir varð Jim Furyk á 13 undir pari, 275 höggum (72 69 69 65). Í 3. sæti varð Martin Flores (á samtals 12 undir pari); í 4. sæti Jason Bohn (á samtals 11 undir pari) og í 5. sæti varð síðan Justin Rose (á samtals 10 undir pari). Phil Mickelson átti skelfilegan lokahring (76 högg) og fór úr 2. sætinu, sem hann var í fyrir lokahringinn, niður í það 11. sem hann deildi með Kevin Chappell og Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 4. 2014 | 22:00
LPGA: Lewis sigraði í Texas

Stacy Lewis sigraði í dag á North Texas LPGA Shootout… með yfirburðum. Lewis lék á samtals 16 undir pari, 268 höggum (71 64 69 64) og átti hvorki meira né minna en 6 högg á þá sem næst kom, þ.e. Meenu Lee frá Suður-Kóreu, en hún lék á samtals 10 undir pari, 274 höggum (70 64 70 70). Í 3. sæti varð síðan Michelle Wie á samtals 9 undir pari. Fjórða sætinu deildu síðan Na Yeon Choi frá Suður-Kóreu og hin bandaríska Kim Kaufmann, báðar á samtals 8 undir pari, hvor. Til þess að sjá lokastöðuna á North Texas LPGA Shootout SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 4. 2014 | 21:00
Afrekskylfingar GSÍ í æfingabúðum á Akranesi

Helstu afrekskylfingar Íslendinga í golfi voru í æfingabúðum GSÍ á Garðavelli á Akranesi nú um helgina. Aðstæður voru að sögn landsliðsþjálfarans, Úlfars Jónssonar, afar krefjandi í gær, laugardaginn 3. maí 2014, en í mikil blíða, nú í dag, sunnudaginn 4. maí 2014. Úlfar sagði Garðavöll líta afar vel út og hvetur alla kylfinga til kíkja þangað. Flatirnar séu þegar orðnar frábærar þó vorið sé nýkomið, sagði hann. Ásamt Úlfari voru Brynjar Eldon og Birgir Leifur Hafþórsson með afrekskylfingunum.
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 4. 2014 | 20:00
GR: Þorvaldur Freyr, Gestur Jóns og Kristinn Árna sigruðu á Opnunarmóti Korpu

Opnunarmót Korpúlfsstaðavallar fór fram í dag, 4. maí 2014, en um innanfélagsmót var að ræða. Leikin var lykkjan Sjórinn/Áin. Alls luku 163 leik, þar af 18 kvenkylfingar. Keppnisfyrirkomulag var forgjafarskipt punktakeppni með forgjöf. Eftirfarandi lentu í sigursætum: Forgjöf 0 – 8,5; 1. sæti: Þorvaldur Freyr Friðriksson. GR. 39 pkt. Hann hlaut í verðlaun gjafabréf með WOW air að verðmæti 40.000 kr. 2.sæti: Karl Ómar Jónsson. GR. 38 pkt. Hann hlaut í verðlaun flug innanlands með Flugfélagi Íslands 3.sæti: Árni Freyr Sigurjónsson. GR. 35 pkt. (Var með 19 pkt. á seinni ) og hlaut í verðlaun gjafabréf á Grillmarkaðinn að verðmæti 15.000 kr. Forgjöf 8,6 – og hærra 1. sæti: Gestur Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 4. 2014 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Rory McIlroy ——— 4. maí 2014

Afmæliskylfingur dagsins er nr. 11 á Rolex-heimslistanum, norður-írski kylfingurinn Rory McIlroy. Hann er fæddur 4. maí 1989 og á því 25 ára stórafmæli í dag. Rory er trúlofaður tennisdrottningunni Caroline Wozniacki, en þau trúlofuðust nýársdag 2014 og munu giftast í New York í haust. Sjá grein Golf 1 um það með því að SMELLA HÉR: Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Charles Ross „Sandy“ Somerville, f. 4. maí 1903 – d. 17. maí 1991; Betsy Rawls, 4. maí 1928 (86 ára); Jyoti Randhawa, 4. maí 1972 (42 ára – Indverskur); Örvar Samúelsson, (GA) 4. maí 1991 (23 ára) ….. og …… Guðrún Ösp Þórgnýsdóttir F. 4. maí Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 4. 2014 | 14:00
Nýju strákarnir á PGA Tour 2014 (efstu 25 af peningalista Web.com): Wes Roach (4/25)

Efstu 25 af peningalista Web.com Tour 2013 hlutu kortin sín á PGA Tour, keppnistímabilið 2013-2014. Í dag verður kynntur sá, sem varð í 22. sæti, en það er Bandaríkjamaðurinn Wes Roach. (Úff það hefir örugglega ekki verið auðvelt að vaxa úr grasi með þetta eftirnafn í Bandaríkjunum en fyrir þá sem ekki vita það þýðir roach, kakkalakki!) Roach lék eins og efstu 25 af peningalista Web.com Tour á Web.com Tour Finals, um stöðu og varð hann í XX. sæti og hlaut ekki aukinn status við að taka þátt í því móti. Í báðum tilvikum rétt slapp hann inn á PGA Tour og hefir ekkert gengið sérlega vel frá upphafi 2013-2014 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 4. 2014 | 12:00
GL: Davíð Búason efstur þeirra 16 sem áfram komust e.1. mót Frumherjabikarsins

Í gær fór 1. mótið í Frumherjabikarnum á Garðavelli á Akranesi. Frumherjabikarinn var haldinn í fyrsta skipti árið 1986 á 20 ára afmæli Leynis. Gefendur voru Svein Hálfdánarson, Leifur Ásgrímsson, Guðmundur Magnússon, Þorvaldur Þorsteinsson og Guðmundur Sigurðsson, en þessir heiðursmenn skipuðu fyrstu stjórn Golfklúbbsins Leynis árið 1965, sem þá hét Golfklúbbur Akraness. Í gær var leikinn 18 holu höggleikur og komust 16 áfram í næsta mót sem haldið verður 15 maí n.k. Eftirfarandi 16 komust áfram: 1 Davíð Búason GL 3 F 39 39 78 6 78 78 6 2 Axel Fannar Elvarsson GL 9 F 42 39 81 9 81 81 9 3 Búi Örlygsson GL 6 F 44 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 4. 2014 | 10:00
Hver er kylfingurinn: Lee Westwood? (1/4)

Lee John Westwood OBE varð 41 árs í s.l. mánuði og sigraði á Maybank Malaysian Open nú 20. apríl s.l. Í þessum mánuði (2/5 2014) komst hann síðan ekki einu sinni í gegnum niðurskurð á Wells Fargo mótinu í Quail Hollow í Norður-Karólínu. Sem stendur er Lee ekki einu sinni meðal topp-10 kylfinga á heimslistanum, en hann vermir 30. sætið á heimslistanum, sem stendur. Á þessum tímamótum í lífi Westwood, sem oft er nefndur Westy er ætlunin hér á Golf1.is að birta grein um hann í greinaflokknum: Hver er kylfingurinn? Hér birtist sem sagt 1. hlutinn í 4 greina greinaröð um Lee Westwood: Lee Westwood er fæddur í Worksop, Nottinghamshire, 24. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 4. 2014 | 08:30
Evróputúrinn: Aguilar sigraði í Singapúr

Það var Felipe Aguilar frá Chile sem stóð uppi sem sigurvegari á móti vikunnar á Evróputúrnum, The Championship at Laguna National, í Laguna National G&CC, í Tampines, Singapúr. Þetta er fyrsti sigur Aguilar á Evróputúrnum. Hann var að vonum kátur með sigurinn og sagði m.a. að honum loknum: „Í gær (þ.e. laugardag) átti ég ekki góðan hring og þegar maður dettur svona langt aftur þá telur maður sig ekki eiga sjéns,“ en hann var í forystu þar til hann fékk skramba á 13. holu eftir að fara í vatn. „Í dag var eftir 9 holur var ég 2 höggum á fetir og vissi að ég yrði að kafa djúpt inn Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 4. 2014 | 08:00
GHG: Pétur Sigurdór Pálsson sigraði á Jaxlamóti Steingríms

Sumardaginn fyrsta sl. fór fram Jaxlamót Steingríms á Gufudalsvelli þeirra Hvergerðinga. Þetta var 9 holu punktamót, innanfélagsmót, fyrir þá sem tóku þátt í hreinsunardeginum á golfvellinum. Alls tóku 21 þátt í mótinu, þar af 2 kvenkylfingar, Harpa Rós Björgvinsdóttir og Helga Svanlaug Bjarnadóttir. Í mótinu sigraði Pétur Sigurdór Pálsson, en hann fékk 21 punkt á holurnar 9. Í 2. sæti varð Þorsteinn Ingi Ómarsson, en hann var með 20 punkta og annar kvenkylfinganna sem þátt tók, Harpa Rós Björgvinsdóttir varð í 3. sæti á 18 punktum! Sjá má heildarúrslit úr Jaxlamóti Steingríms hér að neðan: 1 Pétur Sigurdór Pálsson GHG 15 F 0 21 21 21 21 2 Þorsteinn Ingi Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

