Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 9. 2014 | 12:00
Evróputúrinn: Þokunni létti – Leikar hafnir á Madeira!

Mót vikunnar á Evrópumótaröðinni, Madeira Islands Open, átti að hefjast í gær en fresta varð 1. hring vegna þoku. Nú er þokunni létt og hver kylingurinn á fætur öðrum að fara út. Til þess að fylgjast með gengi mála á Madeira Islands Open SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 9. 2014 | 09:00
GSG: Steinunn Jóns, Haraldur Jóns og Reynir Ólafsson sigruðu í 1. REK mótinu

Í gær, 8.maí 2014, fór fram 1. mótið í REK mótaröð eldri kylfinga á Suðurnesjum. Leikið var í 3 flokkum: konur 45 ára og eldri, karlar 50 ára og eldri og í flokki 65 ára og eldri karla. Þáttakendur voru 43. Í kvennaflokki voru 5 keppendur og þar sigraði Steinunn Jónsdóttir, GSG með 31 punkt. Í flokki karla 50 ára og eldri sigraði Haraldur Jónsson, GVS á 37 pkt. og í flokki 65+ sigraði heimamaðurinn Reynir Ólafsson, GSG en hann var á 34 punktum. Úrslitin í heild voru eftirfarandi: Kvenkylfingar 45 + 1 Steinunn Jónsdóttir GSG 28 F 17 14 31 31 31 2 Guðrún M. Rogstad-birgisdóttir GSG 28 F Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 9. 2014 | 08:00
GA: Vinnudagur á morgun, laugardag 10. maí

Á morgun laugardaginn 10 maí 2014 verður vinnudagur á Jaðarsvelli á Akureyri. Hugmyndin er að hittast og gera skálann og hans umhverfi snyrtilegt. Það sem ætlunin er að gera er að bera á pallinn og úthúsgögnin. Jafnramt að snyrta tré og runna í kringum skálann, taka aðeins til inn í skálanum og þrífa hann ásamt öðrum skemmtilegum verkefnum. Vinnudagurinn hefst kl. 10:00 og er boðið upp á léttar veitingar. GA vonast til að sjá sem flesta félagsmenn.
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 9. 2014 | 05:00
PGA: Mickelson pirraður á 1. hring á Players

Phi Mickelson á erfitt verk fyrir höndum ef hann ætlar sér að spila á The Players meistaramótinu nú um helgina. Mickelson lék TPC Sawgrass Stadium golfvöllinn á 3 yfir pari, 75 höggum, sem er hæsta skor hans frá því að lokahring hans 2009 í mótinu, en þá var hann á 76 höggum. Mickelson fékk m.a. 4 skolla og 11 feta pútt á 4. holu sem rataði ofan í var eini fuglinn hans á opnunarhring hans á The Players. Mickelson sem sigraði á The Players 2007 hitti aðeins 8 brautir og 13 flatir á tilskyldum höggafjölda og þarfnaðist 33 pútta. „Völlurinn er mjúkur og það er fullt af fuglafærum,“ sagði Mickelson. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 9. 2014 | 03:00
PGA: Hvað gerðist eiginlega hjá Adam Scott á 1. hring the Players?

Fyrir Players mótið voru margir að spá í að 4 kylfingar gætu hrundið Tiger úr efsta sæti heimslistans. Sá sem átti mestu möguleikana á því er nr. 2 á heimslistanum, Adam Scott, en hann þarf aðeins að verða meðal efstu 16 til þess að honum takist það. En það er ekki margt sem bendir til að svo verði eftir 1. hring the Players, þar sem Scott lék á 5 yfir pari, 77 höggum og er í einu neðsta sætinu T-133 af 144 keppendum og verður hreinlega að eiga hring ævi sinnar, bara til þess að komast í gegnum niðurskurð. Scott hefði getað verið í fríi á Bahamas – horft á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 9. 2014 | 03:00
PGA: Glæsiörn Justin Leonard – Högg 1. dags á the Players – Myndskeið

Það var Justin Leonard sem átti högg 1. dags á The Players, en það var glæsiörn, sem flaug beint ofan í holu hjá honum! Reyndar var höggið svo mikið þegar boltinn lenti ofan í holunni að holan skemmdist og gera varð við hana. Leonard er fæddur 15. júní 1972 og er því 41 árs. Hann á að baki 12 sigra á PGA Tour þ.á.m. sigraði hann eftirminnilega í The Players mótinu 1998. Hér má sjá myndskeiðið af glæsierni Justin Leonard, þ.e. höggi 1. dags á The Players 2014 SMELLIÐ HÉR:
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 9. 2014 | 01:00
PGA: Kaymer efstur á The Players – Hápunktar 1. dags

Mikið af umræðunni fyrir 1. hring Players snerist um þá 4 sem gætu velt Tiger úr 1. sæti heimslistans. Eftir hringinn er ekki margt sem lítur út fyrir að svo verði í nánustu framtíð. Sá sem stal senunni var fyrrum nr. 1 á heimslistanum, Martin Kaymer, sem jafnaði í kvöld vallarmetið á TPC Sawgrass Stadium golfvellinum, með hring upp á 9 undir pari, 63 höggum og er í 1. sæti í fyrsta skipti í langan tíma. Kaymer hefir á undanförnum misserum verið á hraðferð niður heimslistann (er sem stendur í 61. sæti listans). Hann hefir unnið hörðum höndum að sveiflubreytingum hjá sér og það hefir tekið sinn toll í mótum Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 8. 2014 | 20:00
Viðtalið: Pétur Sigurdór Pálsson, GHG

Viðtalið í kvöld er við 12 ára sigurvegara Jaxlamóts Steingríms. Hann hefir þrátt fyrir ungan aldur verið sigursæll m.a. á meistaramóti í klúbbnum sínum, GHG og á Suðurlandsmótaröð barna og unglinga. Hér fer viðtalið: Fullt nafn: Pétur Sigurdór Pálsson. Klúbbur: Golfklúbbur Hveragerðis (GHG). Hvar og hvenær fæddistu? Í Reykjavík 8. janúar 2002. Hvar ertu alinn upp? Í Hafnarfirði til 5 ára aldurs og Hveragerði til dagsins í dag. Í hvaða starfi/námi ertu? Grunnskólanum í Hveragerði. Hverjar eru fjölskylduaðstæður og spilar einhver í fjölskyldunni golf? Pabbi (Páll Sveinsson fgj. 11) og mamma (Arndís Mogensen fgj. 26) spila golf, Matthías eldri bróðir minn æfði en er hættur og kominn í tónlistina og litla systir mín , Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 8. 2014 | 18:00
Nýju strákarnir á PGA Tour 2014 (efstu 25 af peningalista Web.com): Benjamin Alvarado (7/25)

Efstu 25 af peningalista Web.com Tour 2013 hlutu kortin sín á PGA Tour, keppnistímabilið 2013-2014. Í dag verður kynntur sá, sem varð í 19. sæti, en það er Benjamin Alvarado. Alvarado lék ekki eins og öllum efstu 25, af peningalista Web.com Tour, stendur til boða á Web.com Tour Finals, um bætta stöðu og því bætti hann stöðu sína ekkert. Benjamín Alvarado fæddist 2. september 1985 í Santiago, Chile og er því 28 ára. Alvarado spilaði í bandaríska háskólagolfinu með golfliði Arizona State University og hlaut All-American heiðursviðurkenningu árin 2006 og 2007. Alvarado gerðist atvinnumaður í golfi 2007. Alvarado spilaði síðan á Challenge Tour árin 2008 og 2009; á Tour de Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 8. 2014 | 16:00
Afmæliskylfingur dagsins: Raphaël Jacquelin – 8. maí 2014

Afmæliskylfingur dagsins er franski kylfingurinn Raphaël Jacquelin. Raphaël fæddist 8. maí 1974 í Lyon í Frakklandi og á því 40 ára stórafmæli í dag! Raphaël gerðist atvinnumaður í golfi 1995 eftir að verða franskur meistari. Raphaël hóf ferilinn á Áskorendamótaröðinni. Árið 1997 sigraði hann tvívegis og varð í 4. sæti á peningalistanum þannig að hann komst á Evrópumótaröðina 1998. Það var samt ekki fyrr en í 238. mótinu sem hann tók þátt í á Evrópumótaröðinni að hann vann fyrsta sigur sinn. Það var árið 2005 á Open de Madrid. Hann vann í 2. sinn, 2007 á BMW Asian Open. Besti árangur hans á stigalista Evrópumótaraðarinnar (Order of Merit) var 20. sætið Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

