Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 8. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Raphaël Jacquelin – 8. maí 2014

Afmæliskylfingur dagsins er franski kylfingurinn Raphaël Jacquelin. Raphaël fæddist 8. maí 1974 í Lyon í Frakklandi og á því 40 ára stórafmæli í dag!  Raphaël gerðist atvinnumaður í golfi 1995 eftir að verða franskur meistari.  Raphaël hóf ferilinn á Áskorendamótaröðinni.  Árið 1997 sigraði hann tvívegis og varð í 4. sæti á peningalistanum þannig að hann komst á Evrópumótaröðina 1998.

Það var samt ekki fyrr en í 238. mótinu sem hann tók þátt í á Evrópumótaröðinni að hann vann fyrsta sigur sinn. Það var árið 2005 á Open de Madrid. Hann vann í 2. sinn, 2007 á BMW Asian Open.  Besti árangur hans á stigalista Evrópumótaraðarinnar (Order of Merit) var 20. sætið árið 2003.

Árið 2011 vann Raphaël síðan í 3. sinn á Evrópumótaröðinni, þ.e. á Sicilian Open (Opna sikileyska) átti 1 högg á Anthony Wall.  Með þessum sigri komst Raphaël Jacquelin aftur á topp-100 á heimslistanum. Það var síðan 21. apríl 2013, sem Jacquelin vann 4. titil sinn á Evrópumótaröðinni þegar hann vann þá Felipe Aguilar frá Chile og Maximillian Kiefer í bráðabana á Open de España.

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Pat Meyers, 8. maí 1954 (60 ára stórafmæli!!!);   Franklin Langham, 8. maí 1968 (46 ára);  Andrew McArthur, 8. maí 1979 (35 ára);  Andrès Romero, 8. maí 1981 (33 ára frá Argentínu); Anton Haig, 8. maí 1986 (28 ára Suður-Afríkani)   Caroline Sarah Bon, 8. maí 1987 (27 ára frá Nýja-Sjálandi)

…….. og  ………

Jens Gud (58 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is