Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 26. 2014 | 21:30

Eimskipsmótaröðin 2014 (5): Ólafía Þórunn leiðir fyrir lokahringinn á Íslandsmótinu í höggleik í kvennaflokki

Það er Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, sem leiðir fyrir lokahring Íslandsmótsins í höggleik. Ólafía Þórunn er á samtals 7 yfir pari, 220 höggum (76 70 74).  Í dag lék Ólafía Þórunn á 2 yfir pari, spilaði jafnt og stöðugt golf nema hvað um miðbikið þ.e. á 10. holu fékk hún skramba og síðan tvo skolla í röð á 11. og 12. holum.  Hún náði sér þó aftur á strik á 14. braut þar sem Ólafía fékk fugl. Í 2. sæti aðeins 2 höggum á eftir Ólafíu Þórunni er Valdís Þóra Jónsdóttir, GL.  Hún hefir leikið á samtals 9 yfir pari, 222 höggum (75 73 74). Í 3. sæti er síðan Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 26. 2014 | 21:00

Eimskipsmótaröðin 2014 (5): Birgir Leifur leiðir á 12 undir pari fyrir lokahring Íslandsmótsins

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, jók forystu sína í dag á Íslandsmótinu í höggleik. Hann leiðir nú með 12 undir pari, 201 högg (66 68 67). Eftir gærdaginn þ.e. 2. mótsdag lofaði Birgir Leifur að vera grimmari úti á velli en þá lék hann á þremur höggum undir pari. Í dag lék hann á fjórum höggum undir pari. Aðspurður hvort hann hafi verið jafn grimmur úti á vellinum og hann hafi lofað sagði Birgir Leifur: „Já, í huganum var ég grimmur. Ég hef oft slegið betur en í dag, þetta var kannski ekkert alveg út úr kú. Ég var alltaf í þokkalegum leik og gerði það sem ég þurfti að gera. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 26. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Guðmundur Arason – 26. júlí 2014

Það er Guðmundur Arason sem er afmæliskylfingur dagsins. Guðmundur fæddist í Reykjavík, 26. júlí 1956 og er því 58 ára í dag! Guðmundur er í Golfklúbbi Reykjavíkur. Hann hefir tekið þátt í fjömörgum opnum golfmótum á árinu m.a. 1. maí mótinu 2014 á Hellu. Golf 1 tók fyrir nokkru viðtal við afmæliskylfinginn, sem sjá má með því að SMELLA HÉR:  Innilega til hamingju með afmælið!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:  Mick Jagger 26. júlí 1943 (71 árs); Allen Doyle, 26. júlí 1948 (66 ára);  Hannah Jun, 26. júlí 1985 (29 ára);  Pedro Oriol, 26. júlí 1986 (28 ára); Andreas Hartø, 26. júlí 1988 (26 ára) …… og …… Sigridur Rosa Bjarnadottir Hulda Soffía Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 26. 2014 | 14:15

Eimskipsmótaröðin 2014 (5): Guðrún Brá tyllir sér í 1. sætið hjá konunum e. fyrri 10 á 3. hring

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, er komin í efsta sæti Íslandsmótsins í höggleik í kvennaflokki eftir fyrri 10 á 3. degi, 1 höggi á undan Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur, GR. Þær stöllur eru í síðasta ráshóp kvenkylfinganna 18, sem komust í gegnum niðurskurð. Aðeins 1 höggi munaði á þeim stöllum Ólafíu Þórunni í hag, þar til Guðrún Brá fékk ólukkans skolla á par-4 8. holuna og munurinn milli þeirra Ólafíu Þórunnar því orðinn 2 högg. Ólafía Þórunn var líkt og Guðrún Brá búin búin að para allar 7 fyrstu holurnar, fékk líka par á 8.  en  síðan slæman skramba á par-3 9. holuna og þar með voru hún og  Guðrún Brá orðnar Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 26. 2014 | 14:00

Dustin Johnson ánægður með 30 ára afmælið

Dustin Johnson er yfir sig ánægður með síðasta afmæli sitt, en hann varð 30 ára s.l. 22. júní s.l. Johnson er hins vegar ekki sá duglegasti á félagsmiðlunum, þannig að hann dettur stundum út svo vikum skipti. Nú í s.l. viku sendi hann frá sér mynd af afmælisdeginum sínum og er ekki annað að sjá en að vel hafi farið um hann í örmum sinnar heittelskuðu. Hann tvítaði: „Þetta var besti afmælisdagurinn. Ég elska þig Paulina Gretzky“ Meðfygjandi var mynd af þeim skötuhjúum, sem sjá má með því að SMELLA HÉR:   


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 26. 2014 | 13:00

Eimskipsmótaröðin 2014 (5): Allir farnir út á 3. degi

Birgir Leifur Hafþórsson, Sigmundur Einar Másson og Þórður Rafn Gissurarson, síðasti ráshópur 3. dags á Íslandsmótinu í höggleik 2014 voru að fara út nú rétt í þessu, en  áætlaður rástími þeirra var kl. 12:40. Þar með eru allir keppendurnir 90, sem komust í gegnum niðurskurð (72 karlkylfingar og 18 kvenkylfingar)  í gær komnir út á Leirdalsvöll. Veðrið á höfuðborgarsvæðinu er fínt – 15° hiti, skýjað en hann hangir þurr. Um leið og Golf 1 mun áfram halda kröftugri umfjöllun um Íslandsmótið, hvetur það alla til þess að mæta á Leirdalsvöll og fylgjast með þeirri golfveislu, sem þar á sér stað. Allir okkar bestu kylfingar mættir í eitt mót á sama Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 26. 2014 | 12:30

Barkley: „Tiger ekkert fyrir að sósíalisera“

Fyrum NBA MVP og núverandi golffréttaskýrandi  TNT fréttamiðilsins, gamla körfuboltahetjan, Charles Barkley,  segir oftast það sem honum liggur á hjarta og er sjaldnast að skafa af því og er reyndar hrikalega beinskeyttur stundum. Það nýjasta er að honum finnst Tiger ekkert fyrir að blanda geði við aðra m.ö.o. Tiger er ekkert fyrir að sósíalisera.“ Í Mike Missanelli Show á útvarpsstöðinni 97,5 FM í Filadelfíu í gær var Barkley spurður að því að einhverjum sem hringdi inn hvort hann væri enn vinur Tiger. „Við erum ekki vinir lengur,“ svaraði Barkley, áður en hann fór í fremur langdregnar vangaveltur um það hvort nokkur þekkti í raun Tiger. Barkley svaraði þeirri staðhæfingu Missanelli Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 26. 2014 | 10:00

GEY: Pálmi Hlöðversson klúbbmeistari 2014

Meistaramóti Golfklúbbsins Geysis (GEY) fór fram 24. júlí s.l. Þátttakendur í ár voru 13. Klúbbmeistari Golfklúbbsins Geysis 2014 er Pálmi Hlöðversson. Enginn kvenkylfingur tók þátt í meistaramótinu í ár. Úrslitin í meistaramóti GEY 2014 er eftirfarandi: 1 Pálmi Hlöðversson GEY 6 F 44 39 83 9 83 83 9 2 Agnar Reidar Róbertsson GEY 2 F 43 40 83 9 83 83 9 3 Karl Ingi Vilbergsson GKG 8 F 40 44 84 10 84 84 10 4 Gylfi Geir Guðjónsson GEY 11 F 44 51 95 21 95 95 21 5 Arnar Jónsson GR 10 F 53 46 99 25 99 99 25 6 Sævar Dór Halldórsson GR 16 Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 26. 2014 | 09:00

Champions Tour: Langer með 7 högga forskot í hálfleik á næstu keppendur

Bernhard Langer heldur forystu sinni og gerir gott betur,  eykur hana á Senior Open Championship, sem fram fer á Royal Porthcawl vellinum í Wales. Langer fylgdi glæsilegum 1. hring sínum uppá 65 högg eftir með öðrum upp á 66 högg og er samtals á 11 undir pari, 131 höggi. Með þessu jafnaði Langer 36 holu  skormet sem Fred Funk setti í Sunningdale 2009. „Ég spilaði af mikilli skynsemi, mjög aggressívt og síðan aftur mjög skynsamlega og var heppinn að nokkru leyti, en ég hef verið að spila vel s.l. tvo daga,“ sagði fyrrum nr. 1 á heimslistanum (Langer) eftir glæsilegan 2. hring sinn á Senior Open Championship. Heilum 7 höggum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 26. 2014 | 08:00

Evróputúrinn: Horsey heldur forystu e. 2. dag

Enski kylfingurinn David Horsey er efstur á M2 Russian Open, sem er mót vikunnar á Evrópumótaröðinni. Hann er búinn að leika á samtals 11 undir pari, 133 höggum (65 68). Í 2. sæti, 2 höggum á eftir, er Belgíumaðurinn Thomas PIeters á samtals 9 undir pari. Leikið er á Jack Nicklaus hannaða Tsleevo golfvellinum fyrir utan Moskvu, en sjá má kynningu Golf 1 á vellinum með því að SMELLA HÉR:  Meðal þeirra sem ekki komust í gegnum niðurskurð eru: Sören Kjeldsen og Nick Dougherty. Sjá má stöðuna eftir 2. dag á M2 Russian Open með því að SMELLA HÉR: