Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 26. 2020 | 16:00

LET: Guðrún Brá með keppnisrétt á sterkustu kvenmótaröð Evrópu!!!

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, tryggði sér í dag, með glæsilegum hætti, keppnisrétt á sterkustu kvenmótaröð Evrópu, ens.: Ladies European Tour (skammst.: LET). Hún er 2. Keiliskonan og 4. íslenski kvenkylfingurinn til þess að komast á LET. Stórglæsileg!!! Hinar sem komist hafa á LET á undan Guðrúnu Brá eru: Ólöf María Jónsdóttir, GK; Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR og Valdís Þóra Jónsdóttir, GL, sem spilar enn á mótaröðinni. Íslendingar eiga því a.m.k. 2 íslenska kvenkylfinga í mótum LET 2020; þar sem eru Guðrún Brá og Valdís Þóra og e.t.v. einnig Ólafíu Þórunni, sem gæti komist inn í einhver mót og þá eru íslensku kvenkylfingarnir 3. Ólafía Þórunn hefir þó gefið út að Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 26. 2020 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Una Sveinsdóttir og Bjarni Benediktsson – 26. janúar 2020

Afmæliskylfingar dagsins eru tveir: Bjarni Benediktsson og Una Sveinsdóttir. Bjarni er fjármálaráðherra, formaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrum forsætisráðherra. Hann fæddist 26. janúar 1970 og er því 50 ára STÓRAFMÆLI í dag. Komast má á facebook síðu Bjarna hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með daginn Bjarni Benediktsson (50 ára) – Innilega til hamingju með stórafmælið! Una er fædd 26. janúar 1960 og á því 60 ára merkisafmæli í dag. Komast má á facebook síðu Unu hér að neðan til þess að óska henni til hamingju með merkisafmælið   Una Sveinsdóttir (60 ára) – Innilega til hamingju með merkisafmælið! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru m.a.: Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 26. 2020 | 15:00

Evróputúrinn: Herbert sigraði í Dúbaí

Það var franski kylfingurinn Lucas Herbert, sem sigraði á Omega Dubai Desert Classic. Herbert og suður-afríski kylfingurinn Christiaan Bezuidenhuit voru efstir og jafnir eftir hefðbundnar 72 holur; báðir á 9 undir pari. Það varð því að koma til bráðabana milli þeirra, þar sem Herbert hafði betur í. Þriðja sætinu deildu 3 kylfingar 2 höggum á eftir forystumönnunum; Adri Arnaus frá Spáni; Dean Burmester frá S-Afríku og enski kylfingurinn Tom Lewis. Sjá má lokastöðuna á Omega Dubai Desert Classic með því að SMELLA HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 25. 2020 | 23:59

PGA: Rahm leiðir f. lokahring FIO

Það er Jon Rahm, sem leiðir fyrir lokahring Farmers Insurance Open. Rahm hefir spilað á samtals 12 undir pari, 204 höggum (68 71 65). Á hæla hans er forystumaður hálfleiks mótsins, Ryan Palmer, aðeins 1 höggi á eftir á samtals 11 undir pari, 205 höggum (72 62 71). Í 3. sæti á samtals 9 undir pari, 207 höggum eru 4 kylfingar, þeir Rory McIloy, Harry Higgs, Sung Kang frá S-Kóreu og Cameron Champ. Aðrir sem vert er að fylgjast með eru eftirfarandi: Forystumenn 1. dags: hinn ungi, danski Sebastian Cappelen, sem var í forystu 1. dag er nú T-7; Tiger Woods er T-14 og Keegan Bradley, sem leiddi með Cappelen Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 25. 2020 | 21:00

LPGA: Sagström enn m/ forystu f. lokahringinn

Hin sænska Madelene Sagström er enn með forystuna í Gainbridge LPGA at Boca Rio mótinu eftir 3. dag þ.e. fyrir lokahringinn. Sagström er samtals búin að spila á 15 undir pari, 201 höggi (72 62 67). Sagström er e.t.v. ekki þekktasti kylfingurinn á LPGA, en sjá má kynningu Golf 1 á henni með því að SMELLA HÉR:  Í 2. sæti aðeins 2 höggum á eftir Sagström er hin japanska Nasa Hataoka. Danielle Kang frá Bandaríkjunum og Sei Young Kim frá S-Kóreu deila síðan 3. sætinu á samtals 12 undir pari, hvor. Sjá má stöðuna á Gainbridge LPGA mótinu með því að SMELLA HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 25. 2020 | 20:00

Golfgrín á laugardegi (4/2020)

Hér er einn á ensku: Phil was a 15-handicap and a terrible putter. As he lined up a 60-foot, left-to-right breaking putt, he offered a wager to his group saying, “I have a dollar that says I can make this putt.” Naturally, everyone takes him up on the bet and Phil misses the putt by some five feet. “Alright, boys, pay up. You all owe me a dollar,” Phil says. His buddies look at each other, confused. “What are you talking about, Phil? That wasn’t even close,” his buddy John says. Phil reaches into his wallet, pulls out a dollar, hands it to his John and says, “See? You guys Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 25. 2020 | 17:00

Evróputúrinn: Wu efstur í Dúbaí f. lokahringinn

Það er kínverski kylfingurinn Ashun Wu, sem er efstur fyrir lokahring Omega Dubai Desert Classic. Wu hefir samtals spilað á 11 undir pari 205 höggum (69 69 67). Í 2. sæti er franski kylfingurinn Victor Perez, 1 höggi á eftir Wu og í 3. sæti eru 3 kylfingar, allir 2 höggum á eftir Wu. Þetta eru þeir Bryson DeChambeau, Kurt Kitayama frá Bandaríkjunu og enski kylfingurinn Tom Lewis. Til þess að sjá stöðuna á Omega Dubai Desert Classic SMELLIÐ HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 25. 2020 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Heimir Hjartarson, Svandís Thorvalds og Brynja Sigurðardóttir – 25. janúar 2020

Afmæliskylfingar dagsins eru þrír: Heimir Hjartarson, Svandís Thorvalds og Brynja Sigurðardóttir. Heimir er fæddur 25. febrúar 1958 og á því 62 ára afmæli í dag. Heimir er mörgum að góðu kunnur en hann er í GS. Hann er kvæntur Kristbjörgu Gunnbjörnsdóttur. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Heimi til hamingju með afmælið hér að neðan: Heimir Hjartarson (62 ára– Innilega til hamingju með afmælið!!!) Svandís er fædd 25. febrúar 1978 og á því 42 ára afmæli í dag. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Svandísi til hamingju með afmælið hér að neðan: Svandís Thorvalds (41 árs– Innilega til hamingju með afmælið!!!) Brynja Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 25. 2020 | 14:00

Úrtökumót f. LET 2020: Guðrún Brá T-10 og komin í gegnum niðurskurð!!!

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK, nálgast markmið sitt um sæti á LET. Hún spilaði 4. hring á parinu; fékk fugl og skolla bæði á fyrri og seinni 9, á 4. hring. Samtals er Guðrún Brá búin að spila á samtals 1 yfir pari, 289 höggum (73 69 74 73). Guðrún er T-10 eftir 4. hring og komst í gegnum niðurskurð, en aðeins 60 efstu fá að spila lokahringinn á morgun þar sem ræðst hvaða 20 efstu fá fullan spilarétt á LET. Stórglæsilegt hjá Guðrúnu Brá!!! En það er einn stressandi hringur eftir. Vonandi gengur allt eins og hingað til hjá Guðrúnu Brá!!! Í efsta sæti á lokaúrtökumótinu fyrir lokahringinn eru Amy Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 25. 2020 | 10:00

6 ára golfstrákur gagnrýnir Koepka!

Nr. 1 á heimslistanum, Brooks Koepka var við keppni í Abu Dhabi fyrir viku á 1. móti ársins á Evróputúrnum; HSBC Abu Dhabi Championship. Hann varð T-34 með skor upp á 66-75-70-69, sem mörgum hefði nú þótt ansi gott, að því gefnu að hann er að ná sér eftir hnémeiðsli. Það var hins vegar 6 ára framtíðar „Fálki“ en svo heita meðlimir golfklúbbsins í Abu Dhabi, Daníel sem lá ekki á gagnrýninni á nr. 1, Brooks Koepka. Meðal þess sem Daníel fann að var sveifla Koepka og golfvallarstjórnun hans og fannst honum að nr. 1 ætti endilega að fara í tíma til Mark (golfkennara Daníels). Ja, Claude Harmon, „golfkennari“ Brooks Koepka Lesa meira