PGA: Zach Johnson sigraði á John Deere Classic mótinu – hápunktar og högg 4. dags
Það er Zach Johnson, sem sigraði á John Deere Classic 2012. Hann spilaði á 20 undir pari, samtals 264 höggum, líkt og sá sem búinn var að vera í forystu allt mótið Troy Matteson og því varð að koma til bráðabana milli þeirra til að skera úr um úrslit. Allt var jafnt á fyrri holu umspils en 18. braut var spiluð tvívegis. Í seinna skiptið fékk Zach fugl, en Troy Matteson par og með parinu tapaði hann 1. sætinu. Sjá má stutt viðtal við Johnson eftir sigurinn með því að SMELLA HÉR: Í 3. sæti varð Scott Piercy 2 höggum á eftir forystumönnunum og í 4. sæti var eini „útlendingurinn“ Lesa meira
Enn um nektarmyndir Suzann Pettersen
Nektarmyndirnar af Suzann Pettersen eru meðal allra vinsælustu golffrétta þessa dagana. Sú, sem birtist með þessari frétt hlaut heilmikið áhorf og athugasemdirnar ekki sparaðar á Facebook, aðallega meðal karlkyns aðdáenda. Það voru athugasemdir á borð við: „Oh, ég vildi gjarnan sjá hægra sveifluplanið hennar!“ eða „Hvar er holan?“ …. já, líklega með hliðsjón af því að ekkert flagg sést á ströndinni…. hvert er Suzann eiginlega að slá? Einn ósvífinn Frakki sagði: „Já, golfmottan er skítug“ o.fl., o.fl. Flestum fannst þó líkami Suzann fallegur enda vel þjálfaður. Grannur og stæltur líkami íþróttamannsins er líka það sem fjölmarga dreymir um að öðlast …. meðal flestra kvenna þó með þeim formerkjum að kvenleg Lesa meira
Evróputúrinn: Jeev Milkha Singh sigraði á Opna skoska
Það má segja að Indverjinn Jeev Milkha Singh, hafi stolið sigrinum af Ítalanum Francesco Molinari, sem búinn var að spila eins og engill allt mótið, þ.e. Aberdeen Asset Management Scottish Open. Báðir voru þeir Singh og Molinari á 17 undir par eftir hefðbundið 72 holu spil. Það varð því að koma til bráðabana milli þeirra, þar sem Singh hafði betur fékk fugl á par-5 18. lokaholuna, en Molinari „aðeins“ par. Singh fékk €518. 046,- sigurtékka en Molinari „aðeins“ €345.360,- Þriðja sætinu deildi heimamaðurinn Marc Warren bróðurlega með Alex Norén frá Svíþjóð, en báðir voru aðeins 1 höggi frá að komast í bráðabanann, á samtals 16 undir pari. Daninn Sören Kjeldsen Lesa meira
LET: Caroline Masson sigraði á South African Women´s Open í dag
Dagurinn í dag líður Caroline Masson eflaust seint úr minni. Í dag vann hún nefnilega fyrsta titil sinn á Evrópumótaröð kvenna. Það gerðist í Kwa-Zulu Natal í Suður-Afríku á South African Women´s Open, sem lauk í dag. Caroline spilaði á samtals 1 undir pari og var sú eina sem var með heildarskor undir pari. Samtals spilaði hún hringina 3 á 215 höggum (69 75 71). „Ég er svo ánægð. Þetta var erfitt í vindinum í dag,“ sagði Caroline Masson, sem alltaf er kölluð Caro í Þýskalandi. Þegar hvassast var, varð að fresta mótinu í 1 tíma en vindhraðinn fór í 81 km/klst. Öðru sætinu deildu „heimakonan“ Lee-Anne Pace og golfboltabaðkersdaman Lesa meira
GD: Kristófer Dagur Sigurðsson og Sigrún María Ingimundardóttir eru klúbbmeistarar Golfklúbbsins Dalbúa 2012
Í dag lauk Meistaramóti Golfklúbbsins Dalbúa, en klúbburinn er í Miðdal við Laugarvatn. Þátttakendur voru 30 í ár og spilað í einum opnum flokki, dagana 14.-15. júlí 2012. Spilaður var höggleikur án forgjafar. Klúbbmeistari Golfklúbbsins Dalbúa er Kristófer Dagur Sigurðsson, GKG, en hann spilaði hringina tvo á samtals 20 yfir pari, 160 höggum (79 80). Í 2. sæti varð Sigurjón Guðmundsson, GKG, en hann var 4 höggum á eftir Kristófer Degi. Úrslit í Meistaramóti GD 2012: Staða Kylfingur Klúbbur Fgj. Síðasti hringur Hringir Alls Hola F9 S9 Alls Mismunur H1 H2 Alls Mismunur 1 Kristófer Dagur Sigurðsson GKG 10 F 40 41 81 11 79 81 160 20 2 Sigurjón Lesa meira
GA: Stefanía Kristín Valgeirsdóttir og Örvar Samúelsson klúbbmeistarar GA 2012
Akureyrarmótinu – Meistaramóti Golfklúbbs Akureyrar lauk í gær. Klúbbmeistarar árið 2012 eru þau Stefanía Kristín Valgeirsdóttir og Örvar Samúelsson. Örvar spilaði á samtals 14 yfir pari, 298 höggum (79 7 77 67). Lokahringinn spilaði Örvar á glæsilegum 67 höggum sem er besta skor á hvítum teigum síðan framkvæmdir hófust við enduruppbyggingu á vellinum – leikið var hreyfingalaust golf. Í 2. sæti varð golfkennarinn víðkunni Ólafur Auðunn Gylfason. Stefanía Kristín lék á 339 höggum (86 88 83 82) og átti 4 högg á nöfnu sína Stefaníu Elsu Jónsdóttur, sem varð í 2. sæti. Alls tóku 188 þátt í Meistaramóti GA 2012 og hafa aldrei fleiri verið skráðir til keppni. Keppt var í Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Óli Kristján Benediktsson – 15. júlí 2012
Afmæliskylfingur dagsins er Óli Kristján Benediktsson. Óli Kristján er fæddur 15. júlí 1991 og því 21 ára í dag. Hann er í Golfklúbbi Hafnar í Hornafirði (GHH) og er nýkrýndur klúbbmeistari klúbbsins. Komast má á heimasíðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Óli Kristján Benediktsson Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Stephen Dodd, 15. júlí 1966 (45 ára); Marcel Siem, 15. júlí 1980 (32 ára); Carmen Alonso, 15. júlí 1984 (28 ára) ….. og …… Andy Scheer (43 ára) Stjörnustál Ehf (40 ára) Hrafn Sveinbjarnarson (24 ára) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til Lesa meira
GSG: Hulda Björg og Aron Örn Viðarsson klúbbmeistarar Golfklúbbs Sandgerðis 2012
Meistaramóti GSG 2012 lauk í gær. Það eru þau Hulda Björg Birgisdóttir og Aron Örn Viðarsson, sem eru klúbbmeistarar Golfklúbbs Sandgerðis 2012. Aron Örn spilaði á samtals 16 yfir pari 304 höggum (74 75 79 76). Hann átti 2 högg á þann sem varð í 2. sæti Svavar Grétarsson. Hulda Björg Birgisdóttir, klúbbmeistari kvenna spilaði Kirkjubólsvöll á 92 yfir pari (94 98 93 95). Í 2. sæti varð hinn keppandinn í meistaraflokki kvenna, Sigríður Erlingsdóttir. Það voru 66 sem tóku þátt í Meistaramóti GSG 2012 og spiluðu í 11 flokkum. Helstu úrslit urðu eftirfarandi: Meistaraflokkur karla Staða Kylfingur Klúbbur Fgj. Síðasti hringur Dagar Alls Hola F9 S9 Alls Mismunur D1 D2 Lesa meira
Bubba Watson í viðtali hjá Jay Leno
Þann 11. júlí s.l. var Masters sigurvegarinn 2012 Bubba Watson í viðtali hjá Jay Leno. Þar kom ýmislegt fróðlegt fram m.a. að Bubba heitir í raun Gerry Lester Watson Jr. og Bubba byrjaði í golfi aðeins 6 ára. Síðan segir hann frá fyrstu kynnum þeirrum Angie, sem nú er konan hans, en hann sá til þess að meðal fyrstu stefnumóta, sem hann átti með henni, væri að fara á golfvöllinn að spila golf, þar sem hann heillaði hana með hring upp á 66. Bubba hefir sagt í viðtölum að Angie sé uppáhaldsspilafélagi sinn. Bubba segist hafa sagt sig úr nokkrum mótum á árinu til þess að geta verið meira með Lesa meira
PGA: Troy Matteson leiðir enn á John Deere Classic fyrir lokahringinn – hápunktar og högg 3. dags
Það Troy Matteson sem enn leiðir á John Deere Classic fyrir lokahringinn. Hann og Steve Stricker og Zach Johnson spiluðu allir á 5 undir pari, í dag en Troy er samtals búinn að spila á 18 undir pari, Stricker sem er í 2. sæti á 15 undir pari og Zach deilir 3. sætinu með Brian Harman á 14 undir pari. „Ég hef verið í stöðunni sem Troy er í og það er erfið staða vegna þess að maður býst við að maður eigi að fara þarna út og sigra,“ sagði Stricker sem sigrað hefir 12 sinnum á PGA Tour. „Það er samt erfitt vegna þess að strákarnir sem eru fyrir aftan (á skortöflunni) Lesa meira






