Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 24. 2014 | 19:45

Áskorendamótaröð Íslandsbanka 2014 (1): Logi Tómasson sigraði í strákaflokki

Fyrsta mót Áskorendamótaraðar Íslandsbanka fór fram í dag, 24. maí 2014,  á Setbergsvelli í Hafnarfirði. Það voru 51 kylfingur skráðir í mótið en 45 luku keppni.  Golf 1 var á staðnum og má sjá myndaseríu með því að SMELLA HÉR: Strákaflokkur (flokkur stráka 14 ára og yngri) var fjölmennastur, en keppendur þar voru 25. Sigurvegari í strákaflokki var Logi Tómasson, GKG, en hann var á 89 glæsihöggum og á 3. besta skori yfir mótið í heild! Í 2. sæti var Jón Otti Sigurjónsson, GO, en í 3. sæti Pétur Sigurdór Pálsson, GHG,  en Pétur sigraði nú nýverið á Jaxlamóti Steingríms í Hveragerði og má sjá viðtal Golf1 við Pétur með því Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 24. 2014 | 19:30

Áskorendamót Íslandsbanka nr. 1 á Setbergsvelli 24. maí 2014

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 24. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Pétur Magnússon – 24. maí 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Pétur Magnússon. Pétur er fæddur 24. maí 1995 og því 19 ára í dag. Hann er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Afrek Péturs eru þrátt fyrir ungan aldur mörg en það sem kemur fyrst í hugann er þegar Pétur var fyrir rúmum 4 árum, nánar tiltekið 2.maí 2010 á æfingahring á Hólmsvelli í Leiru. Hann hafði verið við golfæfingar í Costa Ballena á Spáni mánuðinn þar áður og var að prófa nýja Titleist settið sitt í fyrsta sinn.Pétur sló með 6-járni af 13. teig, löngu par-3 brautinni, sem ekki er sú auðveldasta með vatnið landskunna fyrir framan flötina og bolti hans flaug beint inn á flöt og rúllaði ofan Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 24. 2014 | 14:00

Sjarmatröllið Jiménez

Sjarmatröllið Miguel Angel Jiménez, elsti sigurvegari í sögu Evrópumótaröðinni, heillaði alla upp úr skónum í rigningarhléi sem tekið var á 2. hring á  BMW PGA Championship í Wentworth golfklúbbnum. Hinn 50 ára golfsnillingur er þekktur fyrir að vera afar alþýðlegur og aðeins nokkrum vikum nú eftir að hafa sigrað á Champions Tour í Bandaríkjunum stillti sér upp í ljósmyndatökum með aðdáendum sínum og veitti eiginhandaráritanir í  Championship Village. Jiménez mun keppa á Senior Open Championship Presented by Rolex á Royal Porthcawl linksaranum í Wales, en mótið fer fram 2.,-27. júlí í sumar og hann tók sér tíma til þess að skoða myndir af klassísku velsku golfvöllunum sem voru til sýnis þarna, Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 24. 2014 | 12:00

Nýju strákarnir á PGA Tour 2014 (efstu 25 af peningalista Web.com): Tim Wilkinson (16/25)

Efstu 25 af peningalista Web.com Tour 2013 hlutu kortin sín á PGA Tour, keppnistímabilið 2013-2014. Í dag verður kynntur sá, sem varð í 10. sæti, en það er  Tim Wilkinson.  Wilkinson lék eins og öllum efstu 25, af peningalista Web.com Tour, stendur til boða á Web.com Tour Finals, um bætta stöðu og varð í 38. sæti, (af 50) og bætti því stöðu sína ekkert. Timothy David Wilkinson fæddist 26. júlí 1978 í Palmerston North, Nýja-Sjálandi og er því 35 ára. Hann varð ný-sjálenskur meistari í höggleik árið 2000 og gerðist atvinnumaður 2003. Wilkinson var kominn á Nationwide Tour 2005, en vann sér ekki inn nægilega mikla peninga til þess að komast Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 24. 2014 | 10:00

Patrick og Justine Reed eignast fyrsta barn sitt

Patrick og Justine Reed eignuðust sitt fyrsta barn fimmtudaginn s.l. 22. maí 2014. Windsor-Wells Reed fæddist kl. 1:42 p.m. í Memorial Hermann Hospital-Texas Medical Center, en fæðingarlæknirinn var Dr. Daniel Mundy, sem sjálfur er mikill áhugamaður um golf. Reed dró sig úr HP Byron Nelson til þess að vera hjá konu sinni, en dóttir þeirra var sett á 26. maí. Justine er og hefir alltaf verið kylfuberi Patrick allt þar til í upphafi þessa árs. Bróðir hennar  Kessler Karian tók við störfum systur sinnar í ársbyrjun 2014. Reed hefir sigrað í 2 mótum í ár með Karian á pokanum þ.e. Humana Challenge í samvinnu við Clinton Foundation  World Golf Championships-Cadillac Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 24. 2014 | 08:00

14 mót á landinu í dag – um 800 kylfingar við keppni!

Í dag, 24. maí 2014 er mikið um að vera í golfi á Íslandi.  U.þ.b. 800 kylfingar spila golf í dag í 14 mótum – Ekki er gefinn upp þátttakandafjöldi í 2 mótum; skráðir í mót eru nákvæmlega 762 en síðan má gera a.m.k. ráð fyrir 38 samtals í mótunum tveimur. Þrjú GSÍ mót eru í dag en mótaraðir bestu kylfinga landsins hefjast og fara allar fram í dag þ.e. Eimskipsmótaröðin, Íslandsbankamótaröðin og Áskorendamótaröð Íslandsbanka.  Golf 1 verður sem fyrr með ítarlega umfjöllun um gang mála á þessum mótaröðum. 1. Eimskipsmótaröðin – Nettó-mótið – Hólmsvöllur í Leiru – Þátttakendur 84 (67 karl- og 17 kvenkylfingar keppa).  Meðalforgjöf: 2,6 2. Íslandsbankamótaröðin Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 24. 2014 | 07:00

GBE: Rósmundur Örn með ás!

Föstudaginn 23. maí 2014  gerðist sá skemmtilegi atburður að einn klúbbmeðlimur í Golfklúbbi Byggðarholts á Eskifirði þ.e. hann Rósmundur Örn sló draumahöggið á 8. braut. Hann var að spila með Steinari Snæ og átti hann þetta góða högg í blíðunni, sem var á Austfjörðum í gær. Golf 1 óskar Rósmundi Erni til hamingju með  ásinn!!!

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 24. 2014 | 06:00

PGA: Walker slær í fljúgandi fugl á Colonial – Myndskeið

Á 2. hring á Crowne Plaza Invitational á Colonial, sló Jimmy Walker teighöggið sitt í fugl á flugi og boltinn lenti í karga. Atvikið átti sér stað á par-4 17. holunni á Colonial. Engum sögum fer af líðan fuglsins, en hann virðist hafa haldið flugi sínu áfram og því vonandi í lagi með hann! Sjá má myndskeið af teighöggi Jimmy Walker með því að SMELLA HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 23. 2014 | 23:20

PGA: Brice Garnett leiðir í hálfleik á Crowne Plaza – Hápunktar 2. dags

Það er bandaríski kylfingurinn Brice Garnett sem leiðir eftir 2. hring Crowne Plaza mótsins, í Texas. Sjá má kynningu Golf 1 á Garnett með því að SMELLA HÉR:  Garnett er samtals búinn að spila Colonial á 7 undir pari, 133 höggum (67 66). Í 2. sæti eru Robert Streb og Chris Stroud, 1 höggi á eftir Garnett; á 6 undir pari, 134 höggum. Sjö kylfingar deila síðan 4. sætinu, þ.á.m. Dustin Johnson og Jimmy Walker, allir á 5 undir pari, 135 höggum. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag á Crowne Plaza SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá hápunkta 2. dags á Crowne Plaza SMELLIÐ HÉR: (bætt við um leið og Lesa meira