Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 24. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Pétur Magnússon – 24. maí 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Pétur Magnússon. Pétur er fæddur 24. maí 1995 og því 19 ára í dag. Hann er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði.

Afrek Péturs eru þrátt fyrir ungan aldur mörg en það sem kemur fyrst í hugann er þegar Pétur var fyrir rúmum 4 árum, nánar tiltekið 2.maí 2010 á æfingahring á Hólmsvelli í Leiru. Hann hafði verið við golfæfingar í Costa Ballena á Spáni mánuðinn þar áður og var að prófa nýja Titleist settið sitt í fyrsta sinn.Pétur sló með 6-járni af 13. teig, löngu par-3 brautinni, sem ekki er sú auðveldasta með vatnið landskunna fyrir framan flötina og bolti hans flaug beint inn á flöt og rúllaði ofan í holu. Hola í höggi!!! Á sama hring fékk Pétur svo þar að auki örn.

Pétur á ekki langt að sækja golfhæfileikanna því hann er sonur Magnúsar Birgissonar, golfkennara í MP Akademíunni í Oddi og Ingibjargar Guðmundsdóttur, framkvæmdastjóri Hissia.is Pétur á tvo bræður Sindra og Birgi Björn, en sá síðarnefndi er einmitt við keppni í dag á 1. móti Eimskipsmótaraðarinnar – Nettó-mótinu.  Komast má á Facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska Pétri til hamingju með daginn hér:

Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru:   Walter Zembriski, 24. maí 1935 (79 ára);  Bill Haas, 24. maí 1982 (32 ára);  Nick Dougherty, 24. maí 1982 (32 ára)   …… og …….
Frosti Eiðsson (51 árs)

Gaui KRistins (44 ára)
 
Mokka Sýningar (56 ára)

Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið!

Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í upptalningu kylfinga, sem eiga afmæli hafið samband við golf1@golf1.is