Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 8. 2014 | 09:00

GV: Hreggviður sigraði í Icelandair Volcano Open

Dagana 4.-5. júlí s.l. fór fram Icelandair Volcano Open.  Þátttakendur í ár voru tæp 150, þar af 35 kvenkylfingar. Spilaðir voru tveir 18 holu hringir og var keppnisformið punktakeppni. Sigurvegari í ár var Hreggviður Jónsson, GR en hann var samtals með 77 punkta dagana tvo (37 40). Glæsilegur árangur það!!! Sjá má heildarúrslitin á Icelandair Volcano Open hér að neðan: 1 Hreggviður Jónsson GR 24 F 23 17 40 37 40 77 2 Dean Edward Martin GV 24 F 20 11 31 44 31 75 3 Júlíus Hallgrímsson GOT 1 F 16 20 36 38 36 74 4 Friðrik Þór Sigmarsson GV 21 F 16 21 37 33 37 70 Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 8. 2014 | 07:00

EM landsliða hefjast í dag

EM karlalandsliða. Landslið karla tekur þátt í Evrópukeppni karlalandsliða sem fram fer í Finnlandi 8. -12. júlí n.k.  Íslenska landsliðið tryggði sér rétt til þátttöku á Evrópumótinu þegar það náði 2. sæti í undankeppni fyrir Evrópumót landsliða í Tékklandi á síðasta ári. Einungis 16 sterkustu lið Evrópu hafa þátttöku rétt í mótinu. Keppt verður á Linna golfvellinum sem er staðsettur um 100 km frá Helsinki rétt utan við bæinn, Hameenlinna. Karlalandsliðið: Andri Þór Björnsson, Golfklúbbi Reykjavíkur Bjarki Pétursson, Golfklúbbi Borgarness Gísli Sveinbergsson, Golfklúbbnum Keili Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Golfklúbbi Reykjavíkur Haraldur Franklín Magnús, Golfklúbbi Reykjavíkur Ragnar Már Garðarsson, Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar Þjálfari: Birgir Leifur Hafþórsson Liðsstjóri: Gauti Grétarsson Hægt er Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 8. 2014 | 00:01

Hver er kylfingurinn: IK Kim?

IK Kim sigraði nú um helgina ISPS HANDA European Ladies Masters í Buckinghamshire golfklúbbnum í Englandi. In-Kyung „I. K.“ Kim fæddist 13. júní 1988 í Suður-Kóreu og er því 26 ára. Kim var í golflandsliði Kóreu 2003 og 2004 og vann 3 mót á International Junior Golf tour. Árið 2005, spilaði Kim á mótum bandaríska golfsambandisns fyrir unglina (the American Junior Golf Association (AJGA)), þar sem hún sigraði á  Hargray Junior Classic. Árið 2005 vann Kim líka U.S. Girls’ Junior og var í efsta sæti á   U.S. Women’s Amateur. Atvinnumennskan Kim varð jöfn annari í 1. sæti á LPGA Final Qualifying Tournament í  Flórida í desember 2006 og ávann sér full Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 7. 2014 | 23:00

Hvað er heitt og hvað afleitt?

Nú í sumar verður nýr greinarflokkur hér á  Golf 1 sem ber heitið „Hvað er heitt og hvað afleitt?“, sem er í raun bein þýðing og stæling á sambærilegum greinaflokki hjá CBSsports.com, sem heitir þar „What´s hot and what not … on the PGA tour.“ Á CBS er alltaf getið um 5 atriði (kylfinga, atburði, eitthvað innan golfheimsins), sem þykja hafa skarað fram úr í vikunni áður en greinin birtist og er þ.a.l. heitt og að sama skapi eitthvað sem var afleitt í vikunni þar á undan. Í hinum íslenska greinaflokki er ekkert loforð gefið um fjölda þess sem er heitt eða afleitt að öðru leyti en því að alltaf Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 7. 2014 | 21:00

Rory með írsku módeli?

Sú frétt hefir farið eins og eldur í sinu um golffréttamiðla að fyrrum nr. 1 á heimslistanum, Rory McIlroy og írska módelið Nadia Forde, séu byrjuð saman. Til þeirra sást nú um helgina á lífinu í Dublin, skv. Daily Mail en þau eiga að hafa verið saman mest allt kvöldið á bar einum Dublin’s House á Leeson Street í hópi 15 annarra sameiginlegra vina sinna. Rory og Nadia eru sögð hafa yfirgefið samkvæmið saman kl. 3:00. Rory er sagður hafa borgað reikninginn, sem nam u.þ.b. £5,500. Forde ber það af sér að þau Rory séu par, segir að þau séu bara góðir vinir og hann hafi sent sér nokkur SMS.

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 7. 2014 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Tony Jacklin – 7. júlí 2014

Afmæliskylfingur dagsins er enski kylfingurinn Tony Jacklin; hann er fæddur 7. júlí 1944 og á því 70 ára stórafmæli í dag!!! Margir af yngri kylfingum dagsins í dag hafa aldrei heyrt hans getið. Hver er Tony Jacklin? Hann var sonur vörubílstjóra frá Scunthorpe í Englandi og varð síðar stjarna breska golfheimsins og aðalmaðurinn í góðum árangri Evrópu í Ryder Cup. Hátindum velgengni fylgdu miklir öldudalir lægða í stuttum en brillíant ferli Tony Jacklin. Tony Jacklin fæddist 7. júlí 1944 inn í verkamannafjölskyldu í Scunthorpe og ólíklegt virtist að hann ætti eftir að gera golfið að ævistarfi sínu. Þrátt fyrir mikinn stuðning frá föður sínum, sem var mikill golfaðdáandi þá fannst Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 7. 2014 | 15:00

GF: Hlynur Bergsson og Bergur Konráðsson sigruðu á Opna Golfdeginum

Laugardaginn s.l., 5. júlí 2014,  fór fram Texas scramble mót á Selsvelli, Golfdagurinn 2014. Keppendur voru rúmlega 60 talsins, leikinn var höggleikur með forgjöf. Úrslit voru eftirfarandi: 1. sæti – Hlynur Bergsson og Bergur Konráðsson – 61 högg 2. sæti – Guðbjörg Elín og Bragi Þorsteinn – 64 högg 3. sæti – Elías Kristjánsson og Jórunn Lilja – 65 högg 4. sæti – Jón Karlsson og Einar Karl – 67 högg 5. sæti – Hergeir Elíasson og Anna Guðmundsdóttir – 68 högg   Næst holu: 2. hola – Jónas Ragnarsson, 1,41 m. 5. hola – Elías Kristjánsson, 12,20 m. 9. hola – Jón Snorrason, 1,98 m. 11. hola – Ragnar Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 7. 2014 | 13:30

GSS: Guðlaug María sigraði í Opna kvennamóti GSS

Í gær fór fram eitt alflottasta kvennamót í golfinu og þótt víðar væri leitað: Opna kvennamót GSS. Kvennanefnd GSS, sem hefir veg og vanda að undirbúningnum safnar glæsilegum verðlaunum á risastórt verðlaunahlaðborð og fer enginn þátttakandi tómhentur úr mótinu. Keppnisfyrirkomulag er punktakeppni og sú sem er með flesta punkta velur fyrst af hlaðborðinu og síðan sú sem er með næstflesta og svo koll af kolli… Auk þess eru veitt nándarverðlaun og allskyns skemmtileg aukaverðlaun m.a. fyrir að fara sem oftast í vatn á Hlíðarenda (glæsileg silungsverðlaun) og sú sem er með flestar 6-ur hefir á undanförnum árum ævinlega hlotið glæsileg undirföt. Úrslitin Opna kvennamóts GSS voru þau að Guðlaug María Óskarsdóttir, GA sigraði Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 7. 2014 | 08:00

PGA: Cabrera sigurvegari Greenbrier Classic – Hápunktar 4. dags

Það var argentínski kylfingurinn Ángel Cabrera sem stóð uppi sem sigurvegari í White Sulphur Springs á Greenbrier Classic mótinu. Cabrera lék á samtals 16 undir pari, 264 höggum (68 68 64 64). Í 2. sæti varð bandaríski kylfingurinn George McNeill 2 höggum á eftir Cabrera og í 3. sæti varð Webb Simpson á samtals 10 undir pari. Fjórða sætinu deildu 7 kylfingar, þ.á.m. sá sem búinn var að leiða alla mótsdagana Billi Hurley III, en einnig Keegan Bradley og Brendon Todd. 4- sætis kylfingarnir léku allir á 9 undir pari, eða 7 höggum lakar en Cabrera.  Skor Hurley var 9 undir pari, 271 högg (68 63 67 73) – Hurley Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 7. 2014 | 07:56

LET: IK Kim sigraði á European Ladies Masters

Það var In Kyung Kim frá Suður-Kóreu, sem sigraði á ISPS HANDA European Ladies Masters í Buckinghamshire golfklúbbnum í gær. Sigur IK Kim var nokkuð öruggur en hún átti 5 högg á næsta keppanda, Nicki Campbell frá Ástralíu. Sigurskor Kim var 18 undir pari, 270 högg (71 68 63 68) en Campbell var á 13 undir pari 275 höggum (72 68 68 67). Þetta er fyrsti sigur Kim á LET frá árinu 2009. Í 3. sæti á samtals 11 undir pari, voru þær Caroline Masson frá Þýskalandi, Lee Anne Pace frá Suður-Afríku og Stephanie Meadow frá Englandi. Til þess að sjá lokastöðuna á ISPS HANDA European Ladies Masters SMELLIÐ HÉR: