Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 26. 2014 | 10:00

GEY: Pálmi Hlöðversson klúbbmeistari 2014

Meistaramóti Golfklúbbsins Geysis (GEY) fór fram 24. júlí s.l. Þátttakendur í ár voru 13. Klúbbmeistari Golfklúbbsins Geysis 2014 er Pálmi Hlöðversson. Enginn kvenkylfingur tók þátt í meistaramótinu í ár. Úrslitin í meistaramóti GEY 2014 er eftirfarandi: 1 Pálmi Hlöðversson GEY 6 F 44 39 83 9 83 83 9 2 Agnar Reidar Róbertsson GEY 2 F 43 40 83 9 83 83 9 3 Karl Ingi Vilbergsson GKG 8 F 40 44 84 10 84 84 10 4 Gylfi Geir Guðjónsson GEY 11 F 44 51 95 21 95 95 21 5 Arnar Jónsson GR 10 F 53 46 99 25 99 99 25 6 Sævar Dór Halldórsson GR 16 Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 26. 2014 | 09:00

Champions Tour: Langer með 7 högga forskot í hálfleik á næstu keppendur

Bernhard Langer heldur forystu sinni og gerir gott betur,  eykur hana á Senior Open Championship, sem fram fer á Royal Porthcawl vellinum í Wales. Langer fylgdi glæsilegum 1. hring sínum uppá 65 högg eftir með öðrum upp á 66 högg og er samtals á 11 undir pari, 131 höggi. Með þessu jafnaði Langer 36 holu  skormet sem Fred Funk setti í Sunningdale 2009. „Ég spilaði af mikilli skynsemi, mjög aggressívt og síðan aftur mjög skynsamlega og var heppinn að nokkru leyti, en ég hef verið að spila vel s.l. tvo daga,“ sagði fyrrum nr. 1 á heimslistanum (Langer) eftir glæsilegan 2. hring sinn á Senior Open Championship. Heilum 7 höggum Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 26. 2014 | 08:00

Evróputúrinn: Horsey heldur forystu e. 2. dag

Enski kylfingurinn David Horsey er efstur á M2 Russian Open, sem er mót vikunnar á Evrópumótaröðinni. Hann er búinn að leika á samtals 11 undir pari, 133 höggum (65 68). Í 2. sæti, 2 höggum á eftir, er Belgíumaðurinn Thomas PIeters á samtals 9 undir pari. Leikið er á Jack Nicklaus hannaða Tsleevo golfvellinum fyrir utan Moskvu, en sjá má kynningu Golf 1 á vellinum með því að SMELLA HÉR:  Meðal þeirra sem ekki komust í gegnum niðurskurð eru: Sören Kjeldsen og Nick Dougherty. Sjá má stöðuna eftir 2. dag á M2 Russian Open með því að SMELLA HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 26. 2014 | 07:00

LET: Steffi Kirchmayr efst á 64 e. 1. dag Sberbank Golf Masters

Það er þýska stúlkan Steffi Kirchmayr, sem leiðir eftir 1. dag Sberbank Golf Masters sem fram fer í Golf Park Plzen Dýsina í Prag, Tékklandi. Kirchmayr lék 1. hringinn á glæsilegum 64 höggum!  Sjá má kynningu Golf 1 á Steffi Kirchmayr með því að SMELLA HÉR:  Sjá má viðtal við Steffi Kirchmayr eftir 1. hring með því að SMELLA HÉR:  Í 2. sæti aðeins 1 höggi á eftir er bandaríska stúlkan Mallory Fraiche, sem leikur á Evrópumótaröð kvenna.  Sjá kynningu Golf 1 á Fraiche með því að SMELLA HÉR:  Þriðja sætinu deila síðan 5 kylfingar sem allar léku á 66 höggum þ.e.: Julie Greciet, Nikki Garrett, Pamela Prestwell, Amy Boulden og  sænska frænka okkar Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 26. 2014 | 06:00

PGA: Furyk og Petrovic leiða í hálfleik RBC Canadian Open – Hápunktar 2. dags

Það eru Jim Furyk og Tim Petrovic, sem leiða í hálfleik á RBC Canadian Open, sem fram fer á bláa vellinum í Royal Montreal GC í Kanada. Báðir eru þeir búnir að spila á samtals 10 undir pari, 130 höggum; Furyk (67 63) og Petrovic (64 66). Þriðja sætinu deila heimamaðurinn Graeme DeLaet og Kyle Stanley á samtals 8 undir pari, hvor. Til þess að sjá stöðuna eftir 2. dag á RBC Canadian Open SMELLIÐ HÉR:  Til þess að sjá hápunkta 2. dags á RBC Canadian Open SMELLIÐ HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 25. 2014 | 22:45

Eimskipsmótaröðin 2014 (5): Rástímar 3. dag

Rástímar á 3. degi Íslandsmótsins í golfi,  26. júlí 2014 eru eftirfarandi:  07:20  0405992749 Kristján Benedikt Sveinsson GA 3.5 0711962329 Ottó Axel Bjartmarz GO 3.6  07:30 2310893229 Samúel Gunnarsson GÓ 4.0 1610982569 Jóhannes Guðmundsson GR 6.3 2012912409 Kristinn Arnar Ormsson NK 5.2  07:40  3107852109 Magnús Magnússon GKG 5.5 1302664799 Jóhann Sigurðsson GR 5.0 1101942429 Daníel Hilmarsson GKG 3.5  07:50 1301982449 Hákon Örn Magnússon GR 4.4 1707982609 Patrekur Nordquist Ragnarsson GR 3.2 2906962169 Egill Ragnar Gunnarsson GKG 1.0  08:00  1401962159 Gunnar Smári Þorsteinsson GR 4.7 0412862969 Bergur Dan Gunnarsson GKG 9.4 1412902669 Jón Hilmar Kristjánsson GKJ 4.3  08:10 2104695679 Jón Karlsson GHG 2.5 1109714199 Kristinn Gústaf Bjarnason GSE 0.6 0802913109 Bjarki Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 25. 2014 | 21:30

Fannar Ingi í 13. sæti e. 2. dag European Young Masters

Fjórir íslenskir keppendur eru meðal þátttakenda á European Young Masters en það eru þau Saga Traustadóttir, GR, Ólöf María Einarsdóttir, GHD, Henning Darri Þórðarson, GK og Fannar Ingi Steingrímsson, GHG. Mótið fer fram í Hamburger Golf Club. Eftir 2. dag er Fannar Ingi í 13. sæti á samtals 5 yfir pari og Henning Darri í 33. sætinu á samtals 14 yfir parií drengjaflokki. Ólöf María er í 29. sæti í telpnaflokki á samtals 12 yfir pari og Saga í 38. sæti á samtals 14 yfir pari. Skor hjá stúlkum má finna með því að SMELLA HÉR:  Skor hjá strákum má finna með því að  SMELLA HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 25. 2014 | 20:45

Eimskipsmótaröðin 2014 (5): Forsetinn 5 höggum frá að komast gegnum niðurskurð!

Ekki slæmt miðað við hversu lítil æfingin var að sögn Hauks Arnar Birgissonar, forseta GSÍ! Haukur Örn lauk keppni á Íslandsmótinu í höggleik á samtals 22 yfir pari (80 84) og var bara 5 höggum frá því að komast í gegnum niðurskurð, en niðurskurður var miðaður við 17 yfir pari. Það sem vantaði á vellinum bætti forsetinn upp með flottum klæðnaði á la Loudmouth, fyrirtækið sem klæðir m.a. John Daly og Ian Poulter. A.m.k. var ekkert annað kylfings-kylfuberateymi klætt í stíl og ekki spurning að forsetinn og kylfuberi hans voru flottast klæddir á 2.mótsdegi Íslandsmótsins í höggleik!!! Alls komust 18 konur og 72 karlar í gegnum niðurskurð, en það eru Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 25. 2014 | 19:45

Eimskipsmótaröðin 2014 (5): Birgir Leifur í forystu í hálfleik Íslandsmótsins á 8 undir pari!

Birgir Leifur Hafþórsson, GKG, heldur forystu sinni í karlaflokki á Íslandsmótinu í höggleik, á heimavelli sínum, Leirdalsvelli. Birgir Leifur er samtals búinn að spila á 8 undir pari 134 höggum (66 68). Í dag fékk Birgir Leifur fleiri fugla en í gær eða 6 samtals en því miður líka óþarfan skramba  á par-4 10. holuna og  skolla á par-3 2. holuna. Í 2. sæti er heimamaðurinn Sigmundur Einar Másson, GKG,  á samtals 4 undir pari, 138 höggum (71 67). Í þriðja sæti er síðan Þórður Rafn Gissurarson, GR á samtals 2 undir pari, 140 höggum (71 69) og í 4. sæti er svo Gísli Sveinbergsson, GK á 1 undir pari. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 25. 2014 | 18:30

Eimskipsmótaröðin 2014 (5): Ólafía Þórunn og Ragnhildur leiða í kvennaflokki eftir 2. dag á Íslandsmótinu í höggleik

Það eru þær Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Ragnhildur Kristinsdóttir, báðar úr Golfklúbbi Reykjavíkur sem leiða eftir 2. dag Íslandsmótsins í höggleik. Ólafía Þórunn er búin að leika á samtals 4 yfir pari, 146 höggum (76 70). Ragnhildur lék líka á 4 yfir pari, 146 höggum (75 71). Í þriðja sæti sem stendur er Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK aðeins 1 höggi á eftir þeim Ólafíu Þórunni og Ragnhildi á samtals 147 höggum (77 70). Á besta skori í kvennaflokki í dag voru þær Ólafía Þórunn og Guðrún Brá en báðar léku þær á glæsilegu 1 undir pari, 70 höggum. Staðan eftir 1. dag í kvennaflokki á Íslandsmótinu í höggleik er eftirfarandi: Lesa meira