Birgir Björn Magnússon, GK. hlaut háttvísibikar GSÍ 2013. Mynd: GK
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 10. 2013 | 15:30

GK: Birgir Björn fékk háttvísibikar GSÍ!

Í gær fór fram aðalfundur Golfklúbbsins Keilis (GK) í Hafnarfirði.

Alls mættu 83 klúbbfélagar og kusu nýja stjórn sem gerð verður grein fyrir hér síðar.

Einnig voru veitt ýmis verðlaun fyrir góða frammistöðu unglinga í GK.

Sá sem hlaut háttvísibikar GSÍ er klúbbmeistari GK 2013, Birgir Björn Magnússon.