Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 10. 2013 | 16:15

GK: Sigurlaug hlaut þrautseigjuverðlaun

Í gær fór fram aðalfundur Golfklúbbsins Keilis (GK) í Hafnarfirði.

Alls mættu 83 klúbbfélagar og kusu nýja stjórn sem gerð verður grein fyrir hér síðar.

Einnig voru veitt ýmis verðlaun fyrir góða frammistöðu unglinga í GK.

Sigurlaug Rún Jónsdóttir hlaut sérstök þrautseigjuverðlaun.