Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 5. 2014 | 21:15

Champions Tour: Elkington með í Toshiba mótinu

Í næstu viku hefst á öldungamótaröð PGA Tour, Champions Tour, Toshiba Classic mótið á Newport Beach í Kaliforníu. Meðal þátttakenda er Stephen Elkington, sem sagði smekklausan hommabrandara í síðustu viku og hefir ekkert verið að biðjast afsökunar á því. Sjá frétt Golf 1 um það með því að SMELLA HÉR:  Næsta víst er talið að hann verði spurður um brandarann og önnur smekklaus tvít sín á blaðamannafundi sem haldinn verður fyrir mótið. Mestallir peningar sem koma inn á mótinu renna til góðgerðarmála. Aðalframkvæmdastjóri mótsins Jeff Purser sagði m.a. eftrfarandi um þátttöku Elkington í mótinu: „ Hann endurspeglar ekkert mótið og er ekki fulltrúi If Toshiba eða (Hoag) Hospital.“ „Ég hef enga Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 5. 2014 | 21:00

GR: Marólína á toppnum eftir 7. púttmót GR-kvenna – Besta skorið – 27 pútt – átti Áslaug Svavars

Fyrir nákvæmlega viku síðan fór fram 7. og næstsíðasta púttmót GR-kvenna.  Hér fer fréttatilkynning kvennanefndar GR um púttkvöldið: „Um eitthundrað konur létu sig ekki vanta á sjöunda og næstsíðasta púttkvöld GR kvenna enda fer nú tækifærunum fækkandi til að slá um sig á Korpunni í keppninni um púttmeistara GR kvenna.  Völlurinn í kvöld var laaaangur og þröngur og þurftu púttarar á tíðum að skáskjóta sér á milli hola. Það var nú bara gaman og jók á nándina.  Besta skorið var 27 högg og það átti Áslaug Svavars. Frábær frammistaða þar! Staðan er óbreytt að loknum sjö kvöldum. Marólína trónir á toppnum og í humáttina, jafnar á aðeins tveimur fleiri höggum Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 5. 2014 | 20:45

GSG: Soffía Þorvaldsdóttir fór holu í höggi!

Á laugardeginum sl. var vor í loft á Suðurnesjum, þótt harla erfitt sé að trúa því í dag, miðvikudag, aðeins nokkrum dögum síðan, þegar vetur konungur hefir tekið völdin að nýju og snjónum kyngir niður. Sl. laugardag fóru hvorki fleiri né færri en 2 holu í höggi sama dag. Annar Einherjanna var Soffía Þorvaldsdóttir, sem  fór holu í höggi á 2. holu Kirkjubólsvallar. Golf 1 óskar Soffíu innilega til hamingju með ásinn!!!


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 5. 2014 | 20:15

Afmæliskylfingur dagsins: Elías Jónsson —— 5. mars 2014

Afmæliskylfingur dagsins er Elías Jónsson. Elías er fæddur 5. mars 1991 og er því 23 ára í dag. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan: Elías Jónsson F. 5. mars 1991 (23 ára) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Earl Dennison Woods (pabbi Tiger f. 5. mars 1932 – d. 3. maí 2006); Dale Douglass Wewoka, 5. mars 1936 (78 ára); Mats Lanner, 5. mars 1961 (53 ára); Tracy L. Kerdyk, 5. mars 1966 (48 ára); Bengt Johan Axgren, 5. mars 1975 (39 ára); Sue Kim, 5. mars 1991 (23 ára); Salvör Jónsdóttir Ísberg, NK, 5. mars 1997 (17 ára);  Hulda Clara Gestsdóttir, GKG, 5. Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 5. 2014 | 20:00

Vonn með krökkum Tiger

Lindsey Vonn varði tíma sínum með börnum Tiger, þ.e.a.s. dóttur hans Sam en „stelpurnar“ í lífi Tiger, þessa dagana, fylgdust með honum á Honda Classic. Þrátt fyrir mikinn stuðning þeirra gekk honum ekkert sem best, enda alveg að drepast í bakinu, þannig að jafnvel er óvíst að hann taki þátt á Cadillac heimsmótinu á morgun. Sam leit fallega út í rauðum og svörtum bol eins og pabbi, í svörtum buxum og með svart der og Vonn var í bleikum stuttermabol og buxum í stíl. Einn heimildarmanna sagði að afar vel hefði fari á með hinni 29 ára skíðadrottningu og 6 ára dóttur Tiger, en þær hlógu mikið og gerðu grín Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 5. 2014 | 19:45

Bandaríska háskólagolfið: Haraldur varð í 6. sæti í Louisiana

Haraldur Franklín Magnús, GR og „The Raging Cajuns“, golflið Louisiana Lafayette luku í gær leik á Argent Financial Classic mótinu í Squire Creek, Choudrant, Louisiana. Mótið stóð dagana 3.-4. mars 2014. Þátttakendur voru 74 frá 13 háskólum. Haraldur Franklín lék á samtals  2 yfir pari, 146 höggum (74 72)  og varð  í 6. sæti í einstaklingskeppninni og á besta skori „The Raging Cajuns“ sem lauk keppni  í 5. sæti í liðakeppninni. Glæsilegt hjá Haraldi Franklín!!! Á seinni hringnum í gær lék Haraldur á sléttur pari.  Hann fékk 3 fugla og 3 skolla. Haraldur Franklín og golflið Louisiana Lafayette spila næst í Louisiana Classics 10. mars n.k. Til þess að sjá lokastöðuna Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 5. 2014 | 19:30

Strangar reglur um golfklæðnað og bann við notkun farsíma fæla frá

Á síðasta golfþingi kom fram að Ísland væri í forréttindastöðu hvað varðaði félaga í golfklúbbum, en hér á landi hefir klúbbfélögum ekkert fækkað í líkingu við það sem gerist í raun alls staðar annars staðar í heiminum. England Golf hefir bent á tvennt: stranga dresskóða þ.e. að strangt sé farið eftir reglum um golfklæðnað á golfvöllum og það að öll notkun farsíma sé bönnuð, sem það sem hefir mestan fráfælingarmátt. England Golf hefir sett sér það markmið að halda félagafjölda sínum óbreyttum þ.e. í 750.000 árið 2020, sem er ákaflega metnaðarfullt markmið í ljósi þess að fækkun á klúbbfélögum í Bretlandi hefir verið um 13% frá árinu 2004. Enska golfsambandið Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 5. 2014 | 16:00

Rory með eitt besta aðhögg í lengri tíma – Myndskeið

Rétt þegar leit út að Rory væri týndur og tröllum gefinn á Honda Classic mótinu s.l. helgi (en hann leiddi alla 3 dagana en tapaði síðan í bráðabana eftir slakan lokahring upp á 74 högg) sló hann eitt alflottasta aðhögg sem sést hefir í seinni tíð á 72. braut! M.ö.o. þegar hann lék 18. braut á 4. og síðasta hring sínum í mótinu þurfti hann bráðnauðsynlega að ná fugli til þess að halda sér á lífi og í keppni og hann stóðst eldraunina undir pressunni, sló þetta líka flotta högg. Á morgun hefur hann leik í Cadillac heimsmótinu í Doral og á harma að hefna – vonandi að betur gangi Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 5. 2014 | 15:30

Bandaríska háskólagolfið: Sunna varð í 17. sæti af 192 keppendum í sterku háskólamóti!

Íslandsmeistarinn okkar í höggleik, Sunna Víðisdóttir og golflið Elon og klúbbmeistari GR 2013, Berglind Björnsdóttir og golflið UNCG, tóku báðar þátt í Kiawah Island Intercollegiate: Kiawah Island Classic, en mótið fór fram í  Oak Point Golf Club & Cougar Point  á Kiawah Island, í Suður Karólínu. Mótið stóð dagana 2. – 4. mars 2014  og lauk því í gær. Þátttakendur voru 192 frá 36 háskólum. Sunna lék á samtals 10 yfir pari, 226  höggum  (75 76 75 ) og var á besta skori Elon, sem hafnaði í 10. sæti í liðakeppninni. Sunna hins vegar varð í 17. sæti í einstaklingskeppninni, sem er gríðargóður árangur í ljósi þess hversu stórt og sterkt mótið var. Berglind lék Lesa meira


Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 5. 2014 | 15:00

GK: Lovísa Hermanns best á 7. púttmóti Keiliskvenna

S.l. miðvikudagskvöld, 26. febrúar 2014 fór fram 7. púttmót Keiliskvenna. Það voru 33 konur, sem mættu til leiks og var meðalskor kvöldsins 33 pútt. Þær sem voru efstar voru: 1. sæti 29 högg Lovísa Hermannsdóttir 2-5 sæti 30 högg Guðrún Bjarnadóttir; Hjördís Ingvadóttir; Kristrún Runólfsdóttir; Þórdís Geirsdóttir Og þá eru heildarúrslit á þennan veg þegar aðeins eitt mót er eftir … 1. sæti 114 högg Þórdís Geirsdóttir 2. sæti 121 högg Ólöf Baldursdóttir 3-4 sæti 122 högg Guðrún Bjarna og Lovísa 5. sæti 124 högg Valgerður Bjarnadóttir Þær sem narta svo í hælana og eiga enn góðan séns eru  Hulda Soffía Hermanns 125, Anna Snædís Sigmarsdóttir 126, Dagbjört Bjarnadóttir 127 Lesa meira