Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 6. 2014 | 09:00
GLF: GA sér um rekstur Lundsvallar næstu 5 ár

Þann 30. apríl 2014 var undirritaður samstarfssamningur milla GA og Lundsgolfs þar sem GA tekur við rekstri Lundsvallar frá og með 1. maí 2014 og er samningurinn til 5 ára. (Uppsagnarákvæði er í samningum að einu ári liðnu) Samningur þessi hefur það í för með sér að Lundsvöllur verður hluti af Golfklúbbi Akureyrar á samningstímanum og muna félagar í GA því hafa úr tveimur golfvöllum að velja. Samningsaðilar er mjög ánægðir með þennan samning og telja hann mikið framfaraskref fyrir golfíþróttina hér á svæðinu og sé til þess gerður að efla og styrkja stöðu klúbbanna. Samningur þessi hefur engar breytingar í för með sér gagnvart GA félögum, heldur er þetta Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 6. 2014 | 07:00
GK: Stefán Ingvarsson sigraði í hreinsunar- mótinu – Sissó á frábærum 68 höggum!!!

Hreinsunarmót GK fór fram sunnudaginn, 4. maí s.l. Um innanfélagsmót var að ræða og 63 sem luku keppni (þar af 10 kvenkylfingar) eftir að grillað hafði verið og tekið til á Hvaleyrarvelli. Keppnisfyrirkomulag var punktakeppni með forgjöf. Hana sigraði Stefán Ingvarsson á frábærum 45 punktum. Í 2. sæti varð Ólafur Ágúst Ingason á 39 punktum (21 pkt. á seinni 9) og í 3. sæti varð Sissó líka á 39 punktum og í 4. sæti varð Ólafur Andri Davíðsson á 38 punktum. Á besta skorinu var Sigurþór Jónsson (Sissó), GB á 3 undir pari, 68 glæsihöggum!!! Sigurlaug Rún Jónsdóttir var á besta skori kvenna, 86 höggum og Ellý Erlings var með Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 5. 2014 | 21:00
Nýju strákarnir á PGA Tour 2014 (efstu 25 af peningalista Web.com): Daníel Chopra (5/25)

Efstu 25 af peningalista Web.com Tour 2013 hlutu kortin sín á PGA Tour, keppnistímabilið 2013-2014. Í dag verður kynntur sá, sem varð í 21. sæti, en það er sænsk-indverski kylfingurinn Daníel Chopra. Chorpa lék eins og efstu 25 af peningalista Web.com Tour á Web.com Tour Finals, um stöðu og varð hann í 41. sæti og hlaut ekki aukinn status við að taka þátt í því móti. Í báðum tilvikum rétt slapp hann inn á PGA Tour og hefir ekkert gengið sérlega vel frá upphafi 2013-2014 tímabilsins, þ.e. október á s.l. ári. Daníel Samir Chopra fæddist 23. desember 1973 í Stokkhólmi og varð því 40 ára á s.l. ári. Hann á Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 5. 2014 | 20:45
Hver er kylfingurinn: Stacy Lewis?

Stacy Lewis sigraði í gær á North Texas LPGA Shootout. Þetta er fyrsti sigur hennar á LPGA frá því hún sigraði í Ricoh Opna breska kvenrisamótinu á síðasta ári. En hver er þessi hægláti kylfingur, fyrrum nr. 1 á Rolex-heimslista kvenna? Stacy fæddist 16. febrúar 1985 í Toledo, Ohio og varð því 29 ára á árinu. Stacy á því sama afmælisdag og Marlene Hagge, en hún var ein af 13 stofnendum LPGA, en Stacy vann einmitt RR Donnelley LPGA Founders Cup á árinu 2013, sem er mót til heiðurs stofnenda LPGA. Stacy á alls að baki 9 sigra á LPGA, þar af á 2 risamóti, auk þess hefir hún 1 Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 5. 2014 | 20:00
Afmæliskylfingur dagsins: Arnar Már Ólafsson – 5. maí 2014

Það er einn af okkar bestu golfkennurum Arnar Már Ólafsson sem er afmæliskylfingur dagsins. Arnar Már er fæddur 5. maí 1966 og því 48 ára. Arnar Már kennir um þessar mundir golf í Berlín. Hann er ásamt samhöfundi sínum, landsliðsþjálfaranum okkar, Úlfari Jónssyni, einn afkastamesti golfbókarhöfundur landins, en eftir þá félaga liggja m.a. bækurnar „Betra Golf“ og „Enn Betra Golf“ og kennslumyndbandið „Meistaragolf.“ Armar Már hefir hlotið gullmerki GSÍ fyrir framlag sitt til golfíþróttarinnar. Arnar Már er kvæntur Helgu Lárusdóttur og á dæturnar Ástrósu og Sólrúnu. Til þess að óska afmæliskylfingnum til hamingju með daginn má komast hér á Facebook síðu hans: Arnar Már Ólafsson Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 5. 2014 | 19:00
Hver er kylfingurinn: Lee Westwood (2/4)

Atvinnumannsferill Lee Westwood Árið 1996 vann Westwood fyrsta atvinnumannsmót sitt þ.e. Volvo Scandinavian Masters og síðan Sumitomo VISA Taiheiyo Masters í Japan. Velgengni hans hélt áfram árið 1997, þar sem hann varði japanska titilinn sinn og sigraði á Malaysian Maybank Open, Volvo Masters á Spáni og Holden Australian Open, þar sem hann vann Greg Norman í umspili. Hann var einnig félagi Nick Faldo í Ryder Cup á þessu ári. Westwood hefir sigrað í 22 mótum á Evrópumótaröðinni og hefir líka sigrað í mótum í Norður-Ameríku, Afríku, Asíu og Ástralíu. Árangursríkasta ár hans til þessa hefir verið árið 2000 þegar hann vann 7 mót um allan heim og var í 1. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 5. 2014 | 14:30
Jesper Parnevik sem kynnti Elínu fyrir Tiger segist hafa fyrirgefið Tiger framhjáhaldsskandala hans

Jesper Parnevik, sem hefir verið einn harðasti gagnrýnandi Tiger Woods vegna framhjáhalda þess síðarnefnda, sem komst upp um 2009 segir þá hafa samið frið yfir golfhring. „Tiger er félagi í sama klúbbi og ég í Flórída, The Medalist,“ sagði Parnevik, 49 ára í símaviðtali við Golf Magazine. „Ég erfi aldrei neitt lengi við neinn. Reiði mín fjaraði út býsna fljótt en þetta voru harkaleg viðbrögð mín vegna þess að Elín var eins og dóttir okkar. Tiger og ég spiluðum 9 holur á Medalist, þannig að það er gróið um heilt núna. Allir gera mistök. Hann hefir þurft að fást við nóg í lífi sínu. Maður segir bara það sem manni Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 5. 2014 | 12:00
Champions Tour: Langer sigraði á Insperity Inv.!

Bernhard Langer sigraði í The Woodlands á Insperity boðsmótinu, á Champions öldungamótaröð PGA. Langer rétt marði sigurinn en hann hélt þessu spennandi; var á 2 yfir pari, seinni 9 á 3. og lokahringnum, þ.e. fékk skolla á 16. og 18. holu og lék þriðja hring alls á 1 undir pari, 71 höggi og var á samtals á 11 undir pari, 205 höggum (66 68 71). Með þessum sigri, sem er 2. sigur hans á tímabilinu jók hinn 54 ára Þjóðverji bilið á Couples sem er í 2. sæti á Schwab Cup stigalistanum og varð 10. kylfingurinn til þess að sigra a.m.k. 20 sinnum á Champions Tour mótum. Þetta er 3. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 5. 2014 | 09:00
PGA: Rory þreyttur á „bakdyra“ topp-10 árangri

Það er ekki ofmælt þegar sagt er að Rory sé metnaðarfullur. Hann varð T-8 þ.e. deildi 8. sætinu á móti helgarinnar á PGA Tour, Wells Fargo Championship oog þetta er í 5. sinn á þessu ári að hann er meðal 10 efstu á PGA Tour. Engu að síður yppti hann bara öxlum og ranghvolfdi augunum, nákvæmlega sama um þennan, að mati margra, ágætis árangur. „Ég er meðal efstu 10 í hverri viku og það er fínt, það er bara hvað sem er, bara ekki sigrar.“ sagði Rory eftir að hafa verið á 2 undir pari, 70 höggum, 6 höggum á eftir sigurvegaranum JB Holmes í mótinu. „Þetta er önnur stöðug vika. Lesa meira
Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 4. 2014 | 23:00
GHR: Jóna Sigríður Halldórsdóttir, Auður Ósk Þórisdóttir og Unnur Pétursdóttir sigruðu á Lancôme mótinu

Í dag fór fram á Strandarvelli hið árlega Lancôme kvennamót. Þátttakendur voru 86 kvenkylfingar, sem kepptu í 3 flokkum eftir forgjöf í punktakeppni. Verðlaun frá Termu voru að vanda vegleg, snyrtivörur u.þ.b. að verðmæti kr. 704.000,- auk þess sem hver kona fékk í teiggjöf krem og serum frá Lancôme. Golf 1 var á staðnum og má sjá myndarseríu úr mótinu með því að SMELLA HÉR: Heildarúrslit: Fgj. 0-14 1 Jóna Sigríður Halldórsdóttir GR 11 F 19 22 41 41 41 2 María Málfríður Guðnadóttir GKG 4 F 19 20 39 39 39 3 Sigrún Edda Jónsdóttir NK 12 F 18 18 36 36 36 4 Kristín Sigurbergsdóttir GK 11 F Lesa meira
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024

