Evróputúrinn: Birgir Leifur T-16 e. 1. dag Nordea Masters
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, tekur þátt í móti vikunnar á Evróputúrnum, Nordea Masters. Mótið fer fram á keppnisvelli Hills golfklúbbsins í Gautaborg, Svíþjóð. Birgir Leifur lék 1. hring á glæsilegum 3 undir pari, 67 höggum, fékk 4 fugla og 1 skolla. Hann er T-16 eftir 1. dag þ.e. deilir 16. sætinu ásamt 12 öðrum kylfingum þ.á.m. þekktum s.s. Martin Kaymer og Robert Karlsson. Efstur eftir 1. dag er Frakkinn Clément Sordet, en hann lék 1. hring á 8 undir pari, 62 höggum. Sjá má stöðuna á Nordea Masters með því að SMELLA HÉR:
Munaði 4 höggum hjá Andreu
Andrea Bergsdóttir, GKG, sem búsett er í Svíþjóð, en keppir fyrir Íslands hönd m.a. með stúlknalandsliði Íslands tók þátt í Opna breska áhugamótinu, fyrir kylfinga 18 ára og yngri. Mótið fer fram á Ardglass vellinum, rétt sunnan við Belfast á Norður- Írlandi og er gríðarlega sterkt. Fyrstu tvo daga mótsins var leikinn höggleikur og komust 64 í holukeppni, sem tók við í framhaldinu. Andrea lék á samtals 17 yfir pari, 157 höggum (79 78) en það dugði ekki til – niðurskurður var miðaður við 13 yfir pari eða betra og munaði því aðeins 4 höggum að Andrea næði niðurskurði. Sjá má stöðuna á Opna breska áhugamótinu, með því að SMELLA HÉR: Lesa meira
LPGA: Ólafía Þórunn við keppni – Fylgist með HÉR!!!
Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, tekur þátt í Indy Women in Tech meistaramótinu, driven by Group 1001. Mótið fer fram í Indianapolis, Indiana og gekk Ólafíu vel á þessu móti í fyrra! Hún hefir hafið keppni og lokið við að spila 7 holur þegar þetta er ritað. Ólafía er sem stendur á 2 undir pari, og er T-34 eins og staðan er nú…. en hún á eftir að spila 11 holur!!! Efst eins og er, er Angel Yin, vinkona Ólafíu, en hún hefir lokið 1. hring og lék hann á 8 undir pari, 64 höggum. Þó nokkrar eiga eftir að ljúka hringjum sínum þegar þetta er ritað og getur Lesa meira
Nordic Golf League: Guðmundur Ágúst T-6 e. 2. dag í Danmörku
Guðmundur Ágúst Kristjánsson atvinnukylfingur í GR tekur þátt í Holtsmark Open. Mótið fer fram í Holtsmark golfklúbbnum í Danmörku. Guðmundur Ágúst hefir samtals spilað á 4 undir pari, 140 höggum (70 70). Í efsta sæti fyrir lokahringinn, sem spilaður verður á morgun er Svíinn Jakob Glennemo en hann hefir leikið á 11 undir pari 133 höggum (64 69). Til þess að sjá stöðuna í mótinu SMELLIÐ HÉR:
Afmæliskylfingur dagsins: Vífill Karlsson —— 16. ágúst 2018
Afmæliskylfingur dagsins er Vífill Karlsson. Hann er fæddur 16. ágúst 1948 og því 70 ára stórafmæli í dag. Vífill er í Golfklúbbnum á Höfn í Hornafirði. Honum hefir gengið vel í opnum mótum. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Vífill Karlsson (70 ára – Innilega til hamingju með stórafmælið!!!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Temper Netverslun (77 ára); Sveinsdóttir Sveinbjörg (52 ára); Ekki Spurning (41 árs) Golf 1 óskar afmæliskylfingnum og öðrum kylfingum sem afmæli eiga í dag innilega til hamingju með afmælið! Ef þið viljið koma að afmælisgrein eða láta afmæliskylfings getið í Lesa meira
Dagbjartur og Ingvar Andri úr leik á Opna breska áhugamannamótinu
Dagbjartur Sigurbrandsson (GR) og Ingvar Andri Magnússon (GKG) eru úr leik á Opna breska áhugamannamótinu 18 ára og yngri. Mótið er eitt sterkasta áhugamannamót í heimi og voru keppendur alls 252. Leikið er á Royal Portrush og Portstewart völlunum rétt norðan við Belfast á Norður-Írlandi. Opna breska meistaramótið fer fram á Royal Portrush á næsta ári og Opna írska meistaramótið á Evrópumótaröð karla fer fram árlega á Portstewart. Keppnisfyrirkomulagið er með þeim hætti að leikinn er höggleikur fyrstu tvo keppnisdagana. Keppendur leika báða vellina og komast 64 efstu áfram í holukeppni. Dagbjartur lék á +12 samtals (78-77) 155 högg og endaði hann í 140. sæti. Ingvar Andri lék á +15 Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Kjartan Dór Kjartansson – 15. ágúst 2018
Afmæliskylfingur dagsins er Kjartan Dór Kjartansson. Kjartan Dór er fæddur 15. ágúst 1984 og á því 34 ára afmæli í dag. Kjartan Dór er í Golfklúbbi Kópvogs og Garðabæjar (GKG). Kjartani Dór hefir gengið vel í opnum mótum og eins spilaði hann á Eimskipsmótaröðinni. Kjartan Dór var t.a.m. í sigursveit GKG í 1. deild í sveitakeppni GSÍ 2012, Kjartan er búsettur í Svíþjóð og er trúlofaður Hörpu Kristinsdóttur og saman eiga þau 1 barn. Komast má á facebooksíðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan Kjartan Dór Kjartansson (Innilega til hamingju með afmælið!) Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli eru: Jack White, 15. ágúst Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Darren Clarke —— 14. ágúst 2018
Afmæliskylfingur dagsins er fyrirliði liðs Evrópu í Rydernum 2016, Darren Clarke. Clarke fæddist 14. ágúst 1968 í Dungannon á Norður-Írlandi og á því 50 ára stórafmæli í dag. Darren Clarke var líkt og Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir í Wake Forest háskólanum í Bandaríkjunum. Clarke gerðist atvinnumaður í golfi árið 1990 og hefir síðan þá unnið í 22 atvinnumannsmótum þar af 3 á PGA Tour og 14 á Evróputúrnum, 3 á japanska PGA og 1 á Sólskinstúrnum og 1 á Áskorendamótaröð Evrópu. Stærsti sigur Clarke í golfinu var án efa sigur hans á Opna breska 2011. Aðrir frægir kylfingar og golftengdir aðilar sem eiga afmæli í dag eru: GSÍ, 14. ágúst Lesa meira
Andrea hefur leik á Opna breska áhugamannamótinu í dag
Andrea Bergsdóttir úr GKG hefur leik í dag á Opna breska áhugamannamótinu fyrir kylfinga 18 ára og yngri. Í dag er leikinn höggleikur og komast 64 áfram í holukeppnina, sem tekur við í framhaldinu. Andrea er búsett í Svíþjóð en hefir á undanförnum misserum spilað með stúlknalandsliði Íslands. Hún verður í A-landsliði kvenna sem leikur á Heimsmeistaramóti áhugakylfinga á Írlandi í lok ágúst. Motið fer fram á Ardglass vellinum rétt suður af Belfast. Til þess að sjá skor keppenda SMELLIÐ HER:
Koepka fékk hamingjuóskatvít frá Trump
Donald Trump, Bandaríkjaforseti, sendi Brooks Koepka hamingjuóskaskeyti eftir að sá síðarnefndi vann 3. risatitil sinn sl. sunnudag þ.e. PGA Championship. Í skeytinu stóð: „Brooks Koepka just won his third Golf Major and he did it not only with his powerful game but with his powerful mind. He has been a man of steel on the Tour and will have many Victories, including Majors ahead of him. Congrats to Brooks and his Team on a job well done.“ (Lausleg þýðing: Brooks Koepka vann rétt í þessu 3. risamót sitt og hann gerði það ekki aðeins með kraftmiklum leik sinum heldur og með kraftmiklum huga sínum. Hann hefir verið Járnmaður á Túrnum Lesa meira









