Ragnheiður Jónsdóttir | september. 27. 2018 | 04:00

Bandaríska háskólagolfið: Hlynur lauk keppni T-21 á Trinity Forest Inv.

Hlynur Bergsson, GKG eða Lenny eins og hann er kallaður í Bandaríkjunum og lið hans í bandaríska háskólagolfinu, University of North Texas, tóku þátt í Trinity Forest Invitaional, sem fram fór í Trinity Forest golfklúbbnum í Dallas, Texas, dagana 23.-25. september s.l. Þátttakendur voru 84 frá 13 háskólum. Hlynur lék á samtals 1 undir pari, 212 höggum (71 68 73) og varð T-21 í einstaklingskeppninni. Lið Hlyns, University of North Texas varð í 5. sæti í liðakeppninni. Til þess að sjá lokastöðuna á Trinity Forest Invitational SMELLIÐ HÉR:  Næsta mót Hlyns og University of North Texas er 6. október n.k. í Texas.

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Tryggvi Valtýr Traustason – 26. september 2018

Afmæliskylfingur dagsins er klúbbmeistari GÖ 2018 Tryggvi Valtýr Traustason. Tryggvi Valtýr er fæddur 26. september 1962 og á því 56 ára afmæli í dag!!! Tryggvi Valtýr er jafnframt liðsmaður í Öldungalandsliðs karla. Komast má á facebook síðu afmæliskylfingsins til þess að óska honum til hamingju með daginn hér að neðan: Tryggvi Valtýr Traustason – 56 ára- Innilega til hamingju með afmælið!!! Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Neil Coles, 26. september 1934 (84 árs); Adam Hunter, f. 26. september 1963 – d. 14. október 2011 úr hvítblæði; Spanish Golf Options · 54 ára; Robin Hood, 26. september 1964 (54 ára); Cowboys Issolive (50 ára – Innilega til hamingju Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2018 | 07:15

Bandaríska háskólagolfið: Stefán lauk keppni T-40 á Cougar Inv.

Stefán Bogason, GR keppti ekki með liði sínu Flórída Tech, en spilaði sem einstaklingur í 1. móti sínu á 2018-2019 keppnistímabilinu í bandaríska háskólagolfinu, 24.-25. september 2018. Mótið sem Stefán tók þátt í er Cougar Invitational Presented by Aflac, en gestgjafi var Columbus State University. Þátttakendur voru 90 frá 17 háskólum. Stefán varð T-40 en hann lék á samtals 6 yfir pari, 219 höggum (77 70 72). Til þess að sjá lokastöðuna á Cougar Invitational Presented by Aflac SMELLIÐ HÉR:  Næsta mót Florida Tech er í Palm Beach Gardens 8. október n.k.

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 26. 2018 | 06:45

Bandaríska háskólagolfið: Helga best þegar Albany landaði 6. sætinu í Boston

Helga Kristín Einarsdóttir, GK og golflið hennar í bandaríska háskólagolfinu University at Albany urðu í 6. sæti á Boston College Intercollegiate. Þátttakendur voru 89 frá 17 háskólum. Mótið fór fram 24.-25. september 2018 í Blue Hill CC í Canton, Massachusetts. Helga ásamt liðsfélaga sínum, Madison Walker, voru bestar í liði University at Albany, en þær deildu 21. sæti í einstaklingskeppninni. Helga lék á samtals  15 yfir pari, 231 högg (76 77 78). Sjá má lokastöðuna á Boston College Intercollegiate með því að SMELLA HÉR:  Næsta mót Helgu Kristínar og „The Great Danes“, sem er nafn golfliðs Albany, er 5. október n.k.

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 25. 2018 | 20:00

Bandaríska háskólagolfið: Björn Óskar og félagar luku keppni á Inverness Int. í 8. sæti

Björn Óskar Guðjónsson, GM og lið hans í bandaríska háskólagolfinu, The Ragin Cajuns lönduðu 8. sætinu á Inverness Intercollegiate, en mótið fór fram dagana 24.-25. september 2018 og lauk því í dag. Mótið fór fram í Inverness Club í Toledo, Ohio. Björn Óskar varð T-41 af 78 keppendum, þ.e. fyrir miðju í mótinu, en Björn Óskar lék á samtals 15 yfir pari, 228 höggum (75 79 74). Lið Björn Óskars, The Ragin Cajuns urðu í 8. sæti í liðakeppninni. Til þess að sjá lokastöðuna á Inverness Intercollegiate SMELLIÐ HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 25. 2018 | 18:00

Evróputúrinn: Guðmundur Ágúst T-8 e. 1. dag Frillford úrtökumótsins

Atvinnukylfingarnir Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Andri Þór Björnsson, báðir úr GR, hófu í dag keppni í Abingdon í Englandi á Frillford Heath golfvellinum, þar sem fram fer 1. stigs úrtökumót fyrir Evrópumótaröð karla. Guðmundur Ágúst er T-8 eftir 1. dag en hann lék 1. hring á 1 undir pari, 71 höggi. Glæsilegt!!! Andri Þór átti ekki óskabyrjun en hann lék 1. hringinn á 7 yfir pari, 79 höggum og er T-104. Efstu 25% fara á 2. stig úrtökumótsins. Til þess að sjá stöðuna á Frillford úrtökumótinu SMELLIÐ HÉR: 

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 25. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingar dagsins: Aron Atli Bergmann, Belen Mozo og Jodie Kidd ——— 25. september 2018

Afmæliskylfingar dagsins eru 3: Aron Atli Bergmann, Belen Mozo og  Jodie Kidd. Aron Atli er fæddur 25. september 1998 og á því 20 ára stórafmæli í dag. Komast má á facebook síðu Arons Atla til þess að óska honum til hamingju með afmælið hér að neðan: Aron Atli Bergmann – Innilega til hamingju með 20 ára afmælið!!! Belen Mozo hefir spilað bæði á LET og LPGA. hún er fædd 25. september 1988 og á því 30 ára stórafmæli í dag. Jodie Kidd fæddist 25. september 1978 í Guildford í Englandi og á því 40 ára stórafmæli í dag. Afmæliskylfingurinn Jodie Kidd er þekkt sjónvarpsstjarna og módel í heimalandi sínu og jafnframt Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 25. 2018 | 07:00

Golf 1 sjö ára í dag!

Golf 1 er sjö ára í dag, þ.e. 7 ár eru frá því að fyrsta fréttin birtist á Golf 1 golffréttavefnum. Það var frétt í greinaflokknum „Frægir kylfingar“ og um John F. Kennedy 35. forseta Bandaríkjanna, sem enn í dag þykir fremstur í golfi af þeim sem setið hafa í forsetastóli í Bandaríkjunum.. Sjá fyrstu grein Golf 1 með því að SMELLA HÉR: Frá því fyrir sjö árum síðan hafa tæp 20.000 greinar birtst á Golf1, þar af m.a. greinar á ensku og þýsku. Golf 1 er því eini golffréttavefurinn í heiminum sem skrifar golffréttir á íslensku, ensku og þýsku. Golf 1 mun áfram flytja fréttir af 2. vinsælustu íþróttagrein Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 24. 2018 | 16:00

Afmæliskylfingur dagsins: Katrín Björg Aðalbjörnsdóttir – 24. september 2018

Það er Katrín Björg Aðalbjörnsdóttir klúbbmeistari kvenna í GHR (Golfklúbbnum á Hellu) m.a. 2017, 2016 og 2014, sem er afmæliskylfingur dagsins. Katrín er fædd 24. september 1961. Katrín hefir gegnt ýmsum stjórnarstörfum fyrir GHR og er núverandi ritari klúbbsins. Hún er gift formanni klúbbsins Óskari Pálssyni og á 3 börn þ.á.m. afrekskylfinginn Andra Má. Á þeim fimm árum sem Golf 1 hefir verið starfandi hefir verið tekin fjöldi viðtala, sem stendur yfir 300, víð íslenska sem erlenda kylfinga og var viðtal Golf 1 við Katrínu Björg eitt af því fyrsta og má sjá með því að SMELLA HÉR: Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Tommy Armour, (f. Lesa meira

Ragnheiður Jónsdóttir | september. 24. 2018 | 06:00

Bandaríska háskólagolfið: Gísli bestur Íslendinganna á Maui Jim Intercollegiate

Það voru 3 íslenskir kylfingar, sem luku keppni á Maui Jim Intercollegiate; Gísli Sveinbergsson, GK; Bjarki Pétursson, GB og Egill Ragnar Gunnarsson, GKG. Mótið stóð frá 21.-23. september 2018 og fór fram í Mirabel golfklúbbnum í Scottsdale, Arizona. Þátttakendur voru 78 frá 14 háskólum. Gísli stóð sig best Íslendinganna; lauk keppni í 16. sætinu með skor upp á samtals 6 undir pari, 204 höggum (67 68 69). Bjarki varð T-20 á samtals 4 undir pari, 206 höggum (70 66 70). Lið Gísla og Bjarka, Kent State varð í 4. sæti í liðakeppninni. Egill Ragnar lék á samtals 7 yfir pari, 207 höggum (73 67 77) og varð T-63. Lið Egils Lesa meira