52% af 200 kylfinga úrtaki á PGA Tour telur að víkja hefði átt Tiger úr Masters 2013
Sports Illustrated stóð fyrir skoðanakönnun þar sem 200 atvinnukylfingum á PGA Tour mótaröðunum 3 (PGA Tour, Champions Tour og Web,com Tour) var veitt nafnleynd og þeir spurðir ýmissa spurninga. Meðal spurninganna var hvort þeir teldu að víkja hefði átt Tiger Woods úr Masters risamótinu í fyrra 2013 þegar hann tók umdeilt dropp, sen talið var ólöglegt og mjög umdeilt var að láta hann spila áfram. 52% leikmannanna töldu að víkja hefði átt Tiger úr mótinu meðan 48% töldu svo ekki vera. Hins vegar taldi minnihluti kylfinga á Champions Tour 46% að víkja hefði átt Tiger úr Masters, meirihlutinn 54% taldi að rétt hefði verið að gera eins og gert var, Lesa meira
Lindsey um hvað fær samband þeirra Tiger til að virka
Lindsey Vonn hefir upplýst hvað það er sem fær samband hennar og nr. 1 á heimslistanum Tiger Woods til þess að virka þrátt fyrir stöðuga athygli fjölmiðla. Skíðadrottningin sagði í viðtali við E! News að þrátt fyrir að líf þeirra færi fram fyrir opnum tjöldum í fjölmiðlum og það væri aldrei auðvelt, þá væru það íþróttirnar og metnaður þeirra beggja til þess að vera nr. 1 sem fengi samband þeirra til að virka. Lindsey, 29 ára , sagði að þau ættu svo mikið sameiginlegt í því sambandi að það tengdi þau. Vonn, sem vann gullið á vetrarólympíuleikunum í bruni 2010 sagði að það væri sama hvað allir í kringum þau segðu, Lesa meira
Afmæliskylfingur dagsins: Ingveldur Ingvarsdóttir – 6. maí 2014
Það er Ingveldur Ingvarsdóttir, GK, sem er afmæliskylfingur dagsins. Ingveldur er fædd 6. maí 1959. Hún er í Golfklúbbnum Keili í Hafnarfirði. Af mörgum afrekum Ingveldar í golfíþróttinni er e.t.v. vert að geta þess að hún varð í 1. sæti í 4. flokk á Íslandsmóti 35+ í Öndverðarnesinu 2011. Ingveldur er gift Benedikt Jónassyni. Komast má á Facebooksíðu afmæliskylfingsins hér að neðan til þess að óska honum til hamingju með daginn: Ingveldur Ingvarsdóttir Aðrir frægir kylfingar sem eiga afmæli í dag eru: Grier Jones, 6. maí 1946 (68 ára); Timothy Jay Simpson, 6. maí 1956 (58 ára); Scott Hood, (kanadískur kylfingur) 6. maí 1959 (55 ára); Mike Grob (kanadískur kylfingur); 6. maí Lesa meira
GSS: Hlynur ráðinn þjálfari
Síðasta vetrardag var gengið frá ráðningu golfþjálfara hjá GSS fyrir sumarið 2014. Hlynur Þór Haraldsson PGA þjálfari og Pétur Friðjónsson formaður GSS skrifuðu undir samning í blíðskaparveðri í klúbbhúsinu á Hlíðarenda. Nýr þjálfari ráðinn Hlynur er útskrifaður með réttindi PGA golfkennara úr norska golfkennaraskólanum, starfaði sem yfirþjálfari hjá Sticklestad golfklúbbnum og síðustu ár sem þjálfari hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar. Hann mun sjá um alla þjálfun hjá klúbbnum og einnig koma að skipulagningu og uppbyggingu kennslutilhögunar til næstu ára. Þ að er mikill hvalreki fyrir klúbbinn að fá Hlyn til starfans og er mikil tilhlökkun og væntingar bundnar við komu hans. Nánari upplýsingar um Hlyn og kennslu má sjá með Lesa meira
Hver er kylfingurinn: Lee Westwood (3/4)
Atvinnumannsferill Lee Westwood frh. Westwood lék aftur á PGA Tour 2012 keppnistímabilið og lét m.a. frá sér fara „að honum liði vel á Ryder Cup ári“ og svolítið hræddur því hann var að spila í FedEx Cup í fyrsta sinn. Í febrúar 2012 náði Westy besta árangri sínum á WGC-Accenture Match Play Championship þ.e. heimsmótinu í holukeppni, þegar hann komst í undanúrslit í fyrsta sinn. Í öllum 11 fyrri tilraunum hafði hann aldrei komist lengra en í 2. umferð. Westy vann Nicolas Colsaerts, Robert Karlsson, Nick Watney og Martin Laird áður en hann beið lægri hlut 3&1, gegn Rory McIlroy í fjórðungsúrslitunum. Westy varð í 4. sæti eftir að tapa leiknum Lesa meira
Heimslistinn: JB Holmes á topp-100
JB Holmes, sem sigraði nú um sunnudaginn í Wells Fargo mótinu fór upp um hvorki fleiri né færri en 174 sæti þ.e. úr 242. sætinu sem hann var í, í 68. sæti heimslistans. Annar hástökkvari vikunnar á heimslistanum er Felipe Aguilar frá Chile, sem vann nú um helgina mót Evrópumótaraðarinnar The Championship at Laguna National, í Laguna National G&CC, í Tampines, Singapúr. Aguilar var í 209. sæti heimslistans fyrir mótið en er nú kominn upp um 79 sæti þ.e. í 130. sætið! Aðrir sem færðust upp heimslistann í vikunni er Hyung Sung Kim, frá Suður-Kóreu, sem nú um helgina vann 3. titil sinn á japönsku PGA Tour mótaröðinni. Hann fer úr Lesa meira
Jimenez kvænist á ný
Spænski kylfingurinn litríki, Miguel Angel Jimenez, er þekktur fyrir að lifa ljúfa lífinu, þ.e. hvað varðar vindla og hraðskreiða bíla og nú hefir hann gengið í það heilaga með hjákonu sinni til margra ára, hinni austurrísku Súsönnu Styblo. Annað sem Jimenez er þekktur fyrir eru afar óvenjulega upphitunaræfingar, en það er nú aftur efni í aðra grein. Jimenez varð í 4. sæti á Masters í s.l. mánuði og stefnir að því að verða elstur í Ryder Cup liði Paul McGinle nú í ár. Hann var sjálfur fyrirliði liðs Evrópu í EvrAsíu bíkarnum fyrr á árinu. Hjónakornin Miguel Ángel og Súsanna kvæntust á golfvelli Jimenéz í Torremolinos og voru hamingjan uppmáluð. Súsanna Lesa meira
GLF: GA sér um rekstur Lundsvallar næstu 5 ár
Þann 30. apríl 2014 var undirritaður samstarfssamningur milla GA og Lundsgolfs þar sem GA tekur við rekstri Lundsvallar frá og með 1. maí 2014 og er samningurinn til 5 ára. (Uppsagnarákvæði er í samningum að einu ári liðnu) Samningur þessi hefur það í för með sér að Lundsvöllur verður hluti af Golfklúbbi Akureyrar á samningstímanum og muna félagar í GA því hafa úr tveimur golfvöllum að velja. Samningsaðilar er mjög ánægðir með þennan samning og telja hann mikið framfaraskref fyrir golfíþróttina hér á svæðinu og sé til þess gerður að efla og styrkja stöðu klúbbanna. Samningur þessi hefur engar breytingar í för með sér gagnvart GA félögum, heldur er þetta Lesa meira
GK: Stefán Ingvarsson sigraði í hreinsunar- mótinu – Sissó á frábærum 68 höggum!!!
Hreinsunarmót GK fór fram sunnudaginn, 4. maí s.l. Um innanfélagsmót var að ræða og 63 sem luku keppni (þar af 10 kvenkylfingar) eftir að grillað hafði verið og tekið til á Hvaleyrarvelli. Keppnisfyrirkomulag var punktakeppni með forgjöf. Hana sigraði Stefán Ingvarsson á frábærum 45 punktum. Í 2. sæti varð Ólafur Ágúst Ingason á 39 punktum (21 pkt. á seinni 9) og í 3. sæti varð Sissó líka á 39 punktum og í 4. sæti varð Ólafur Andri Davíðsson á 38 punktum. Á besta skorinu var Sigurþór Jónsson (Sissó), GB á 3 undir pari, 68 glæsihöggum!!! Sigurlaug Rún Jónsdóttir var á besta skori kvenna, 86 höggum og Ellý Erlings var með Lesa meira
Nýju strákarnir á PGA Tour 2014 (efstu 25 af peningalista Web.com): Daníel Chopra (5/25)
Efstu 25 af peningalista Web.com Tour 2013 hlutu kortin sín á PGA Tour, keppnistímabilið 2013-2014. Í dag verður kynntur sá, sem varð í 21. sæti, en það er sænsk-indverski kylfingurinn Daníel Chopra. Chorpa lék eins og efstu 25 af peningalista Web.com Tour á Web.com Tour Finals, um stöðu og varð hann í 41. sæti og hlaut ekki aukinn status við að taka þátt í því móti. Í báðum tilvikum rétt slapp hann inn á PGA Tour og hefir ekkert gengið sérlega vel frá upphafi 2013-2014 tímabilsins, þ.e. október á s.l. ári. Daníel Samir Chopra fæddist 23. desember 1973 í Stokkhólmi og varð því 40 ára á s.l. ári. Hann á Lesa meira










